Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1956, Blaðsíða 77
— 75 —
1956
Er skráður aðeins í 4 héruðum
(Rvík, Hvammstanga, Akureyrar og
Seyðisfj.), en á auk þess að hafa
orðið að bana konu á fimmtugsaldri
í Sauðárkrókshéraði, og er talið, að
hún hafi fengið veikina upp úr in-
flúenzu.
Hvammstanqa. 5 ára drengur. Varð
albata.
Sauðárkróks. Kona á fimmtugsaldri,
sem haft hefur epilepsi frá unglings-
árum, fékk þessa veiki upp úr inflú-
enzu og dó úr henni á árinu.
Akureyrar. 2 drengir 2 og 6 ára
skráðir með sjúkdóminn í nóvember.
Sjúkdómurinn batnaði til fulls i báð-
um tilfellum á tiltölulega stuttum tima.
Gæti hafa verið um fleiri tilfelli að
ræða, þótt ekki hafi verið skráð.
6. Barnsfararsótt (febris puerperalis).
Töflur II, III og IV, G.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjukl. 6 G 4 4 2
Dánir 1 ti tt 1
Á mánaðarskrám eru aðeins skráð
2 tilfelli, bæði i sama héraði (Vopna-
f]■) • Á ársyfirliti er auk þess getið
tveggja tilfella, annars í Ólafsvíkur,
sem þó er talið vafasamt, en hins i
Patreksfjarðar. Allir þessir sjúklingar
náðu skjótum og góðum bata með
súlfa- og fúkalyfjum. Banatilfellið er
óskráð, bæði á mánaðarskrár og árs-
yfirlit, og var þar um að ræða abortus
septicus.
Ólafsvikur. 1 vægt tilfelli og stóð
skammt — greint af ljósmóður, en við
að spyrja konuna þykist ég þess full-
viss, að þarna hafi blossað upp pyeli-
tis, er konan hafði in graviditate.
Patreksfj. 1 kona fékk dálitla hita-
hækkun.
Vopnafj. 2 konur fengu mjög háan
hita eftir barnsburð, með höfuðverk
°g eymslum í grindarholi. Batnaði
háðum fljótt af súlfa-pensilíngjöf. Or-
sök með öllu ókunn. Höfðu báðar fætt
sjálfkrafa undir eftiriiti ljósmóður.
Hin unga ljósmóðir hefur mér virzt
hreinlát i bezta lagi. Heimili kvenn-
anna þrifaleg og vel um gengin.
7. Gigtsótt (febris rheumatica).
Töflur II, III og IV, 7.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. 32 31 45 52 31
Dánir 1 „ „ „ 1
Skráðum gigtsóttarsjúklingum fækk-
ar nú aftur, en ýmislegt bendir til, að
þessi kvilli sé mjög vanskráður.
Akranes. 1 sjúklingur, unglingspilt-
ur. Batnaði sæmilega i bili.
Hvammstanga. 13 ára drengur; náði
fullum bata á 2 mánuðum með pensi-
líni og butazolidíni.
Akureyrar. Ég hef grun um, að
læknar muni ekki telja fram á mán-
aðarskrám öll þau tilfelli, sem þeir sjá
af febris rheumatica, og hef ég nú
beðið þá að athuga þetta sérstaklega.
Norður-Egilsstaða. Rösklega fimm-
tugur karl fékk febris rheumatica. Var
um tíma á Akureyrarspitala og batn-
aði. Kona úr öðru héraði kom til min.
Hafði hún verið í Reykjavík til lækn-
inga vegna sjúkdómsins, en versnaði,
eftir að heim kom. Allir liðir bólgnir
meira og minna, og átti sjúklingurinn
erfitt með allar lireyfingar. Við cor-
tisone-meðferð (tabl. deltacortone 5
mg) lét þetta undan, en síðan þarf
konan sifellt að nota pillurnar, ef ekki
á að sækja í sama horf, 5—10 mg á
dag. (Hvorugt tilfellið skráð á mán-
aðarskrá.)
Vestmannaeyja. 1 tilfelli vægt í des-
ember.
8. Taugaveiki (febris typhoidea).
Töflur II, III og IV, 8.
1952 1953 1954 1955 1956
Sjúkl. „ „ „ „ „
Díinir „ „ „ „ „
Landið sem fyrr taugaveikislaust,
og má það með réttu teljast upphefð
þessara tíma.
Sauðárkróks. Öldruð kona á Sauð-
árkróki talin smitberi um margra ára
skeið.