Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1979, Síða 165
natríumsúlfíts í vatn Hitaveitu Siglufjarðar. Fallist var á þessa íblönd-
un ef nánari skilyrðum yrði fullnægt. Erindi heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins varðandi ölkelduvatn frá Lýsuhóli £ Staðarsveit. Nefnd-
in lagði áherslu á, að sömu staðlar skyldu gilda um framleiðslu og áfyll-
ingu ölkelduvatns í viðurkenndar söluumbúðir og gilda um framleiðslu
gosdrykkja, svo sem sódavatns.
Lokið var rannsóknum á blýi í göturyki í Reykjavík og á blýmagni í blóði
manna í nokkrum starfsstéttum, er hófust þegar 1972. Verða niðurstöður þess-
ara rannsókna birtar í nafni eiturefnanefndar. Haldið var áfram úrvinnslu
hársýna með tilliti til mats á magni nokkurra málma og málmleysingja x
mönnum hér á landi. Komið var á framfæri við heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið tillögum eiturefnanefndar til eflingar vörnum gegn mein-
dýrum, ekki síst í vöruskemmum og fyrirtækjum, sem starfa að matvælafram-
leiðslu eða framleiðslu fóðurvöru.
1979
Fundir, ráðstefnur, námskeið og tengsl við aðrar nefndir
Haldnir voru 21 fundir í eiturefnanefnd. Auk nefndarmanna og ráðunauta,
er sátu nokkra fundi, sátu 14 gestir fundi í nefndinni og einn þeirra tví-
vegis. Formaður sat 15.jan.ráðstefnu um vatn á vegum Heilbrigðiseftirlits
ríkisins og Orkustofnunar, jarðkönnunardeild. Nefndin hélt námskeið um
notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði og garðyrkju 12. -13. mars.
Námskeiðið fór fram á Rannsóknastofnun landbúnaðarins og sóttu það 26 ein-
staklingar.
Föst verkefni
Fjallað var um 84 umsóknir um leyfisskírteini (blá) til þess að mega kaupa
og nota efni og efnasamsetningar í X og A hættuflokkum (74 frá garðyrkju-
mönnum, garðyrkjubændum eða bændum og öðrum ræktendum, 6 frá meindýraeyðum
og 4 frá skógræktarmönnum). Mælt var með öllum umsóknunum nema 7, en í 6
tilvikum var ekki tekin endanleg afstaða til umsókna vegna þess, að upplýs-
ingar voru ófullnægjandi. Nefndin mælti með öllum 7 umsóknum, er bárust
um leyfisskírteini (rauð) til þess að mega kaupa og nota fenemal og tríbró-
metanól til útrýmingar á svartbaki og hrafni £ æðarvarpi. Mælt var með 32
af samtals 34 umsóknum um leyfissk£rteini (rauð) til þess að mega kaupa og
nota tiltekin eiturefni £ hættuflokkum I og II.
Nefndin fjallaði um framlengingu söluleyfis Sölufélags garðyrkjumanna hf.
°g umsókn Efnavers hf. um söluleyfi, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar nr.
132/1971. Mælt var með framlengingu á leyfl Isafjarðarapóteks til þess
að mega selja efni og efnasamsetningar £ B hættuflokki.
Fjallað var um 11 umsóknir um skráningu eiturefna og hættulegra efna til
nota £ landbúnaði, garðyrkju og til útrýmingar meindýra. Mælti nefndin
weð n£u umsóknum, en endanleg afstaða var ekki tekin til tveggja umsókna.
HEILBRIGÐISSKÝRSLUR 1978—79
163