Víkingsblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 3
V í KINGSBLAÐIÐ
65 ára afmælisblað 1973
Ritnefnd:
Ágúst I. Jónsson
SHjörleiíur Þórðarson
Sigtr. Sigtryggsson, áb
/Borgarprent — maí 1973
Aðalstjórn Víkings 1973—1974,
aftari röð: Örn Guðmundsson,
Freyr Bjartmarz, Jón Aðal-
steinn Jónasson, form., Siðurð-
ur óli Si/íurðsson, Hjörleifur
Fórðarson. Fremri röð: Haf-
liði Pétursson, Áffúst Jónsson
og; Ásgrímur Guðmundsson.
Ávarpsorð
í uppeldismálum einnar þjóðar hljóta íþróttir aS
vera ofarlega á haugi í vitund fólks.
íþróttir og uppeldi æsku, Islands tvinnast saman í
öllum atriSum.
Frá íþróttahreyfingunni hefur komiS úrval íslenzkra
forustumanna og kvenna í öllum greinum þjóSlífsins.
Fólk sem hefur haft þor og dug til sjálfsákvörSunar
á öllum tímum, og er fœrt til samvinnu í smœrri og
stœrri hópum. Fólk, sem er tilbúiS lil forustu þegar
kalliS kemur, og sparar hvorki tíma né fyrirhöfn,
slíku fólki hefur Víkingur haft á aS skipa á undan-
förnum árum.
Stjórn félagsins vill þakka þessu ágæta fólki, af
alhug þeirra miklu störf.
í félaginu er starfandi fulltrúaráS og 3 deildir, sem
eru knattspyrnudeild, handknattleiksdeild og skíSa-
deild. ÞaS er gæfa félagsins ,aS þessar deildir eru skip-
aSar traustum, dugmiklum mönnum og konum, sem
bera uppi mestan hluta af störfum félagsins.
FulltrúaráS félagsins er skipaS „eldri félögum“
eins og segir í reglugcrS félagsins, þar er hvert sœti
skipaS sœmdarmönnum, sem hafa starfaS og stjórnrjþ
félaginu um árabil, veriS kjölfesta þess og hollur ráS-
gjafi á öllum tímum. íþróttafólk félagsins er alls
staSar í fremstu röS og á félagiS bjarta framtíS i
þessu unga og fallega œskufólki, sem hvergi gefur
eftir, en er drengilegt í hverri keppni og sómi ís-
lands hvar sem er.
Allir Víkingar ungir sem gamlir þurfa aS taka
höndum saman í viSleitni félagsins, í aS skapa íþrótta-
fólki þess góSa aSstöSu til íþróltaiSkana og félags-
legra starfa á komandi árum.
Stjórn félagsins á fyrir höndum mörg stór verk-
efni, og mun takast á viS þau af alefli, vitandi þaS,
og samtakamáttur Víkinga er mikill.
Stjórn félagsins vill þakka ritstjórn blaSsins þeim
Hjörleifi ÞórSarsyni, Ágústi Jónssyni og Sigtryggi
Sigtryggssyni fyrir mjög gott starf aS útgáfu þessa
blaSs.
AS endingu vill stjórn félagsins þakka öllum fé-
lagsmönnum og öSrum velunnurum félagsins á liSn-
um árum af alhug.
- Til hamingju meS afmœliS, Víkingar!
Stjórnin.
157
o v
i