Víkingsblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 5
GUNNAR MÁR PÉTURSSON:
Litið yíir farinn veg
Knattspymufélagið Víkingur varð 65 ára 'þann 21.
april 1973, og eru 5 ár nú liðin síðan síðasta afmælis-
b'lað kom út. Á þessum árum 'hafa knattspyrnudeildin
og handknattleiksdeildin eflzt og stækkað. Deildirnar
hafa tekið þátt í öllum mótum sem fram hafa farið og
oftast með góðum árangri. Hafa fleiri mót unnizt á
þessu tímabili en nokkru sinni áður. Meistaraflokkur
knattspyrnudeildar hefur tviívegis unnið sig upp í 1.
deild, á þessum árum, en leikur nú aftur í 2. deild
þetta ár. Þó vann félagið Bikarkeppni KSl 1971 og
var það síærsti sigur félagsins um áraraðir. Það er
skýlaus krafa til leikmanna og forystumanna félags-
ins, að meistaraflokkur 'komist aftur í 1. dei'ld, og að
félagið skipi sér í sæti forystuliða í landinu. Sam-
keppnin er hörð, en efniviðurinn góður.
Meistaraflokkur handknattleiksdeilar var Reýkja-
víkurmeistari 1972, en endaði í 4. sæti í nýloknu ís-
landsmóti, og hefði mátt búazt við betri árangri af
svo glæsilegu liði. Handknattleikslið félagsins er mjög
vinsælt, og gera menn sér miklar vonir um Islands-
meistaratitil á næstu árum. Með áframhaldandi starfi
á deildin glæsilega framtíð fyrir sér í öllum aldurs-
flokkum.
Skíðadeild félagsins er lítil og fámenn, en hefur
harðduglega forustumenn. Skíðaskáli félagsins í
Sleggjuibeinsskarði er nú tilbúinn til notkunar. Raf-
magn frá Rafmagnsveitu Rcykjavíkur verður lagt í
skáiann í sumar og umlhverfi skálans fegrað. Sjálft
íþróttastarfið mun þá hefjast næstkomandi haust og
verður án efa Iblómlegt skíðalíf á þessum fagra stað.
Síðastliðin 5 ár hefur verið fastráðinn húsvörður
í félagsheimilinu. Hefur hann rekið smáverzlun fyrir
félagsmenn og annast yfirumsjón með fundarsai
félagsins, sem notaður hefur verið til stjórnarfunda
og fræðslufunda deildanna. Margir bikarar, fánar og
gjafir eru þar geymdar í þrem fallegum skápum, sem
keyptir vorii fyrir gjafafé, er félaginu barst í tilefni
af 60 ára afmæli Iþess.
Árið 1969 fékk félagið skriflega staðfestingu frá
borgarstjóra um viðbótarsvæði aillt frá félagsheimil-
inu að Réttarholtsveg. Einnig hefur félagið fengið
fyrirheit um afnotarétt af grasvöllum og fleiru sem
Reykjavíkurborg ætlar að byggja í Fossvogi á næstu
árum.
Aðalstjórn Víkings á að vera kjölfesta félagsins og
koma fram út á við fyrir þess hönd. Á síðastliðnu 5
ára tímabili hafa verið meiri mannaskipti í aðalstjóm
en oftast áður og eru nú aðrir aðalstjórnarmenn í
forustu en voru á 60 ára afmæli félagsins. Ber sér-
staklega að óska Ihinum nýkjörna formanni góðs
gengis í 'hinu vandasama starfi sem 'bíður hans.
I stuttu máli má segja að félagið sem heild sé vin-
sæilt meðal íþróttaáhugamanna og nýtur það trausts
hjá öðrum íþróttafélögum og forustumönnum þeirra.
Megi félagið ávallt vinna að þroskandi íþróttastarfi
fyrir æsku höfuðborgarinnar.
VÍKINGAR
og velunnarar Víkings, eftirtaldir aðilar hafa getraunaseðla frá Víking til sölu:
Söluturninn, Sogavegi 1.
Verzlunin Réttarfiolt
KRON, Tunguvegi
Söluturninn, Bústaðavegi
Hreinsunin, Hólmgarði
Kjöthúsið, Ásgarði 22—24
Sportval, Laugavegi 116
S.S., Brekkulæk
Bústaðaúbúðin, Hólmgarði
Stefán Stefánsson c/o Coca Gola
Q