Víkingsblaðið - 01.05.1973, Page 11
þeim málum, sem leysa þarf Ihverju sinni, þannig að
áætla má að vinnutími stjórnarmanna á vegum deild-
arinnar sé aldrei undir 30—35 stundir á vi'ku hverri.
Sem dæmi um hvernig að æskunni er búið og eitt
af þeim ótal mörgu verkefnið sem við er að fást,
skal hér sagt frá einu máli, sem nú er unnið að.
Um miðjan marz fékk knattspyrnudeildin bréf frá
Danmörku, þar sem félagið Averda býður Víking
þátttöku í alþjóðlegu unglingamóti, unglinga fæddra
á árunum 1956 og 1957. í þessu móti taka þátt félög
frá Júgóslavíu, Búlgaríu, Ungverjalandi Tékkósló-
vakíu, Austurríki, Vestur-iÞýzkalandi, Noregi, Svíþjóð,
Víkingur og svo gestgjafarnir. Boð þetta er höfðing-
legt þar sem boðið er 14 leikmönnum og þrem farar-
stjórum, frítt uppihald og gisting dagan 5.—11. júní.
Nú skyldu menn halda að þetta yrði ekki svo dýrt
ferðalag fyrir drengina á sama tíma og stjórnmála-
flokkar og ferðaskrifstofur auglýsa y2 mánaðar ferðir
til Kaupmannahafnar fyrir félaga A.S.Í. og B.S.R.B.
fyrir 8.600,00 kr. og þar um kring! En hvað skeður,
þrátt fyrir það, að á fundum Norðurlandaráðs hafi
verið rætt og komið fram tillaga um sameiginlegan
sjóð til eflingar samskipta iþróttaæsku Norðurlanda
til nánari samskipta, þökk sé þeim er að stóðu, þó
enn hafi ekki náðzt árangur, en vonandi kemur það
ef málinu er fylgt eftir.
En iþetta var nú ekki svo einfalt. Þegar barið var
dyra hjá íslenzku flugfélögunum, þá kom upp að far-
gjald fram og til baka kostar um 25 þús. kr., en jú,
hópafslátt var hægt að fá og 10% afslátt að auki fyrir
drengina vegna þess hve ungir þeir væru! Eða kr.
20 þús. fyrir þjálfara og farastjóra og kr. 17 þús.
fyrir drengina. Og lái svo hver og einn mönnum þó
þeim sárni svo hrópílegt óréttlæti — en þetta er að-
eins eitt dæmi af mörgum, sem við er að kljást og
mikillar vinnu krefst að koma kostnaðinum niður í
viðunandi tölu. Að því er nú unnið ásamt nefnd frá
drengjanna hálfu er reyna að afla peninga til farar-
innar, þannig að ferðin megi verða þeim viðráðanleg.
Þannig má segja að af mörgu sé að hyggja og í
mörg horn að líta og eitt er það verkefni, sem nú er
orðið árlegur viðburður hjá deildinni, en það er að
senda 30 drengi 10—12 ára í viku í sumarbúðir
íþróttamiðstöðvarinnar á Laugarvatni, ásamt þjálfara
og tveim til þrem öðrum aðstoðarmönnum og eru
þetta mjög þroskandi og ánægjulegar ferðir hjá
drengjunum.
Eins og að framan greinir eru verkefnin óþrjótandi
í ihverju félagi og samanlagður tími í sjálfboðavinnu
er um 6000 klst. eða sem svarar fullu ársstarfi þriggja
manna, því vill stjórn knattspyrnudeildar hvetja for-
eldra þeirra drengja, sem æfa hjá okkur og keppa,
Stjórn knattspyrnudeilclar.
Fremri röð frá vinstri: Sveinn
Jónsson, Kristján Pálsson, for-
maður, Jóhannes Tryffgjvason,
Eiríkur Þorsteinsson. Efri röð:
Vilberg: Skarphc‘ðinsson, Már
Jóhannsson, Vilhelm Andersen.
ojr ÁsReir Ármannsson.