Víkingsblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 28
leiki hérlendis, hæði í Reykjavík og á Akureyri. Stjórn
deildarinnar sá um heimsóknina í samráði við Jón
Hjaltalín.
I septemiber 1971 fór meiistaraflokkur félagsins i
vikulanga utanferð til Svíþjóðar, til æfinga og keppni.
Ferðin gekk 'hið bezta, þrátt fyrir töp í báðum leikj-
um ferðarinnar, sem voru gegn I.K.F. Málmö og Lugi,
Lundi. Fararstjóri var Rósmundur Jórtsson.
Síðla vetrar árið 1972 stóð deildin fyrir heimsókn
tveggja erlendra handknattleiksliða, HSV frá Ham-
horg og TJ Gottvaldow frá Tékkóslóvakíu. Stofnað
var til móts með þessum liðum og tóku einnig þátt
í því móti Víkingur og úrvalslið HSÍ. Auk þess léku
erlendu liðin sitt Ihvorn aukaleikinn. Þótti iheimsókn
íþessi takast vel, þrátt fyrir fremur dræma aðisókn að
leikjunum. Undirhúning og móttökur önnuðust Árni
Árnason og Sigurður Jónsson.
í september 1972 fór meistaraflokkur í keppnis-
ferð til Danmerkur og Þýzkalands og höfðu gestir
o'kkar frá því fyrr á árinu, HSV í Hamborg skipu-
lagt þá ferð fyrir Víking að mestu leiti. Flogið var
til Kaupmannahafnar og þaðan ferðast með járnbraut-
arlestum á milli áfangastaða til Luxemburgar, en
það var flogið Iheim. Ferð iþessi var hin ánægjulegasta
í al'la staði, enda víða komið við. Einn var þó ljóður
á ferðinni, sá, að allir leikirnir töpuðust, 1 í Dan-
mörku og 4 í Þýzkalandi, enda gegn sterkustu liðum
landanna. Fararstjórn skipuðu þeir Sigurður Bjarna-
son, Þórir Tryggvason og Pétur Bjarnason.
Félagslíf.
Ekki ihefur verið haldið uppi reglubundnu félags-
lífi, umfram það sem af starfseminni leiðir, þ. e. æf-
ingum, keppnum og ferðalögum. Þó 'hafa stundum
komið saman einstakir flokkar í félagsheimilinu til
að spila eða ralhba saman.
Ein eftirminnileg samkoma var þó haldin. Það var
kaffiboð, sem haldið var í húsnæði Danskóla Hermanns
Ragnars við Háalleitisibraut í des. 1970. Boð þetta var
haldið í tilefni af góðum sigrum í nýafstöðnu Revkja-
víkurmóti og var til Iþess 'boðið öllum meðlimum
deildarinnar, ásamt foreldrum og einnig forráðamönn-
um félagsins. Þar voru sigurvegurum deildarinnar
og Iþeim, sem nýlega höfðu náð merkum leikfjölda-
áfanga, veittar viðurkenningar deildarinnar. Boð þetta
var mjög fjölmennt og þótti í alla staði hafa tekizt
vel. Þess Iber að igeta að hóf þetta var haldið deild-
inni að kostnaðaiilausu og Iber fyrst og fremst að
þakka það Ihandknattleikskonum félagsins og eigin-
konum stjórnarmanna, sem sáu um bakstur á öllum
26
kökum sem fram voru bornar og einnig framreiðslu
á staðnum.
Nú, góðir Víkingar, af þessu mætti ætla að allt sé
í himnalagi með handknattleik í Viking, fjárhagur
góður og keppnislið í sókn, og hægt sé að anda ró-
lega. Því fer iþó víðs fjarri að ástæða sé til að slaka á.
Víkingur er stórt félag, en ekki stórveldi, í íslenzkum
handknattleik. En það hlýtur að vera næsta skref, sem
unnið skál að, og er istaðföst trú mín, að það skref sé
styttra en margan grunar, en það kostar samstillt
átak og fórnfýsi allra handknattleiksmanna og kvenna
í félaginu.
Að lokum vil ég óska öllum Víkingum til ham-
ingju með 65 ára afmæli félagsins og megi því vegna
vel í því hlutverki sínu, að auka hreysti og hugprýði
æskufólks innan þess.
VERIÐ
VELKOMIN
í
SKÍÐAHÓTELIÐ AKUREYRI
J