Víkingsblaðið - 01.05.1973, Síða 46
In memoriam
Óskar Norðmann
framkvœmdastjóri
Fœddur 4. febrúar 1902.
Dáinn 20. ágúst 1971.
Óskar Norðmann var einn af frumlherjunum í Vík-
ing, einn þeirra manna, sem mótuðu félagið hvað
mest á fyrstu árum þess. Hann var frábær knatt-
spyrnumaður og af mörgum talinn einn af snjöllustu
leikmönnum landsins á sinni tíð. Óskar tók einnig
virkan þátt í hinni félagslegu uppbyggingu Vikings.
Sökum mikil'la mannkosta voru honum falin hin marg-
víslegustu trúnaðarstörf.
í daglegum umsvifum var Óskar aðsópsmikill
kaupsýslumaður og áhrifamaður í röðum kaupmanna.
Hann var um árabil formaður IFélags ísl. byggingar-
efnakaupmanna, átti um skeið sæti í stjórn Verzlunar-
ráðs Islands og Kaupmannasamtaka Islands og var
heiðursfélagi þess. Þótt Óskari væri margt til lista
lagt, lét hann ekki mikið yfir sér og flíkaði ekki þeim
eiginleikum né tilfinningum sínum. En meðal ann-
ars var hann söngmaður góður og söng í Karlakór
KFUM og síðar Fóstbræðra í áraraðir. Næmar tón-
listargáfur hans, svo og það yndi, sem hann hafði af
söng og tónlist, hafa eflaust veitt honum margar ham-
ingjustundir í lífinu. Einnig á sviði söngmála voru
honum mörg trúnaðarstörf falin enda ósérhlífinn og
vel til forustu falfinn á hvaða vettvangi sem var. Ósk-
ar var um skeið formaður Fóstlbræðra og varð fyrsti
formaður Sambands ísl. karlakóra, þegar þau sam-
tök voru stofnuð.
Formaður Víkings var Óskar á árunum 1924—’26
og átti hann, eins og áður getur, drjúgan þátt í fé-
lagsstarfinu. Þá átti hann sæti í stjórn ílþróttasambands
íslands í nokkur ár. Eftir að Óskar hætti heinni þátt-
töku i félagsstarfinu, þá slitnuðu ekki tengslin við
Víking heldur var hann einn af styrktarstólpum fé-
lagsins. Oft var leitað ti'l hans og 'hann jafnan boðinn
og ibúinn að rétta út ihjálparhönd, þegar Víkingur var
annars vegar. Okkur yngri Víkingunum þótti það mik-
ill heiður, að Óslkar Norðmann skyldi vera Víkingur.
Eftir dagfari hans að dæma Ihefur það eflaust fyrst
og fremst vakað fyrir Óskari að stuðla að því að
gera drengi að góðum mönnum oig menn að góðum
drengjum.
Blessuð sé minning Óskars Norðmann.
INP.
Sighvatur Jónsson
verzlunarmaður
Fœddur 29. september 1913.
Dáinn 6. september 1969.
Margir mætir menn hafa komið við sögu Víkings
á liðnum árum, tekið Iþátt í drengilegri keppni og
lagt 'hönd á plóginn í hinu félagslega starfi. Einn
iþessara mætu manna var Sighvatur Jónsson. Hvað
skyldi vailda þVí, að menn bindast félagslböndum,
taka hálfgerðu ástfóstri við eitthvert félag og spara
hvorki tíma né erfiði ti'l iþess að þoka málum þess
áfram og ihærra, sé þess nokkur kostur? Það er ör-
ugglega einhver sérstakur grunntónn í fari þeirra
44