Nýtt land-frjáls þjóð


Nýtt land-frjáls þjóð - 07.10.1971, Blaðsíða 5

Nýtt land-frjáls þjóð - 07.10.1971, Blaðsíða 5
NÝTT LAND s Sameining verkalýösfeiaga Sameinlng ísafjarðar og Eyrahrepps er nú komin til framkvæmda. Það verður ekki annað sagt, en að framlag þessara byggðarlaga til hag- kvæmara sambýlis sé til fyrir mjmdar. í framhaldi af sameiningu þessarra sveitafélaga samein- ast verkalýðs- og sjómanna- félag-Bnífsdælinga nú verka- lýðsféáögnnmn á ísafirði. Næturvinnubami Rcam til ársins 1930 mátti heita að atvinnurekendur væru að mestu sjálfráðir um hvort þeir létu vinna auka- vinnu, ef þeir aðeins greiddu slika vinnu samkvæmt töxt- um eða samningum við verka lýðsfélögin. Árið 1930 verða straum- hvörf í þessu efni. — Vegna skefjalausrar næturvinnu við Reykjavíkurhöfn greip Dags- brún til þess ráðs að banna alla næturvinnu. Atvinnurek- endur mótmæltu þessum ráð- stöfunum verkamanna og töldu sér heimilt að láta vinna næturvinnu þegar þeim sýnd ist svo. — Dagsbrún fylgdi næturvinnu banninu fast eftir og leið ekki á löngu þar til bannið var al- gert og síðan hafa atvinnurek endur ekki haft uppi nein and mæli gegn næturvinnubanni. Enda hafa mörg verkalýðs- félög sett á aukavinnubann um lengri eða skemri tíma. Nú bregður hinsvegar svo við að „Neytendasamtökin" hafa skorið upp herör gegn þess- um hefðbundnu réttindum verkalýðsfélaga, þ. e. rétti þeirra til þess að spyrna gegn óhóflegum vinnutíma, og láta sig enga skipta þótt meiri- hluta atvinnurekenda — kaup menn — séu á öndverðum meið við „Neytendasamtökin“. Ekki skal það dregið í efa að neytendasamtök geti kom- ið að gagni fyrir neytendur almennt. Hinsvegar orkar það ekki tvimælls, að þessi neyt- endasamtök hafa ekki umboð nema mjög lítils hluta neyt- enda, því félagsmannatala þessara samtaka er ekki nema örlitið brot neytenda. — Innan verkalýðsfélaganna er vafalaust 50 sinnum fleiri neytendur en í þessum svo- kölluðu neytendasamtökum, og eru stéttarsamtökin vafa- laust miklu betri málsvarar neytenda en neytendasamtök in. — Um nauðsyn þess að af- greiðslufólk í verzlunum vinni lengur en aðrir launþegar m.a. vegna þess að launþegar al- mennt eigi þess ekki kost að afla sér lífsnauðsynja á venju legum sölutíma verzlana skal ekki fjölyrt að sinni, það verð ur gert síðar, þegar aðstaða launþega til innkaupa á nauð synjum hefur verið könnuð ítarlega. Lífeyrissjóðslán Með samningum verkalýðs- félaganna vorið 1969 var kom- ið á fót lífeyrissjóðstryggingu fyrir alla þá félagsmenn í verkalýðsfélögum, sem þá voru ekki í lífeyrissjóðum. Þessi nýju sjóðir tóku til starfa í ársbyrjun 1970 og hafa nú starfað í nærri tvö ár. Nokkrir þessara nýstofnuðu lífeyrissjóða hafa þegar hafið lánastarfsemi til hinna tryggðu, má þar nefna Starfs stúlknafélagið Sókn og fimm sveinafélög innan Málm- og skipasmiðasambandsins, sem nú hafa auglýst eftir umsókn- um um lán. — Gert er ráð fyrir að Lífeyrissjóður Dags- brúnar og Framsóknar aug- lýsi bráðlega eftir lánsumsókn um, en sá sjóður hefur innan vébanda sinna um helming þeirra, sem fengu lífeyris- sjóðsréttindi í Reykjavík í árs byrjun 1970. í hinum eldri lífeyrissjóð- um hefur verið lögð misjafn- lega mikil áhersla á lánastarf semi sjóðanna til hinna tryggðu. Það er hinsvegar aug ljóst mál, að handbæru fé sjóð anna á að verja til lánveit- inga til þeirra launþega, sem að sjóðnum standa og eiga þá. Pétur á Langalandi Pétur á Langalandi. Langaland er lítil eyja í Danmörku, þar eru 3 kaup- staðir, þar er einnig mest at- vinnuleysi í landinu, 18-20%. Atvinna hefur gengið saman vegna aukinnar vélanotkun- ar á stórbýlum eyjarinnar, einnig brugðust vonir eyjar- skeggja um aukinn iðnað, sem reiknað var með að fylgdi í kjölfar hinnar miklu brúar, sem 'tengir byggðina við megin landið; tekjur sveita.rföag- anna hafa minnkað, bameign um fækkað o.s.frv. Þar er Pétur 56 ára gamall landbúnaðarverkamaður, at- vinnulaus. Fær sem svarar 700 kr. ísl. í atvinnuleysisstyrk á dag. Ef Pétur missir atvinnu leysisbæturnar og réttinn til þess að vera áfram í verka- lýðsfélaginu, þá er það bara sveitin. Þeir hafa boðið Pétri endurhæfingu, en til hvers er það, Pétur vill vera heima í átthögum sínum, hann trúði einu sinni á endurfæðingu, en endurhæfingu, það er af og frá. Yfirvöldin hafa samt ekki gleymt vandamálum Péturs, borgarstjórinn er að hugsa málið, vinnumarkaðsstofnun ríkisins athugar gaumgæfi- lega hvað hægt er að gera, fjölmörg mannúðarfélög eru hér líka að verki og síðast, en ekki sízt, eru vandamál Pét- urs hluti af eftirlætisviðfangs efnum allra stjórnmálaflokka í Danmörku. Nei, enginn hef- ur gleymt honum Pétri A Langalandi, allt kerfið J fullum gangi. STP iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Iðnskólinn í Reykjavík MEISTARASKÓLI fyrir þá, sem hugsa sér að sækja um viðurkenningu byggingarnefndar Reykjavíkur til að standa fyrir mannvirkjagerð í umdæminu, mun starfa i vetur ef næg þátttaka fæst. Kennt verður seinnihluta dags, 20 — 24 tíma á viku, og hefst kennsla væntanlega um mánaöarmótin október — nóvember n.k. Innritun fer fram í skrifstofu skólans dagana 4, til 14. október á skrifstofutíma. SKÓLASTJÓRI. AliGLÝSING um gjaldfallinn þungaskatt skv. ökumælum. Fjármálaráðuneytið minnir hér með þá bifreiða- eigendur, sem hlut eiga að máli á, að gjalddagi þungaskatts skv. ökumælum fyrir 3. ársfjórðung 1971 er 11. október og eindagi 21. dagur sama mánaðar. Fyrir 11. október n.k. eiga því eigendur ökumælisskyldra bifreiða að hafa komið með bif- reiðar sínar til álestrar hjá næsta eftirlitsmanni ökumæla. Gjaldfallinn þungaskatt ber að greiða hjá viðkom- andi innheimtumanni ríkissjóðs, sýslumanni eða bæiarfógeta, en í Reykjavík hjá tollstjóra. Þeir.bifreiðaeigendur, sem ekki hafa greitt skatt- inn á eindaga mega búast við að bifreiðar þeirra verða teknar úr umferð og númer þeirra tekin til geymslu, unz full skil hafa verið gerð. Fjármálaráðuneytið, 2. okt. 1971. Attica Framhald af bls. 1. taka að gerast hraðar. Samningaumleitunum er haldið áfram en lítið miðar. Svo kemur stórfréttin, Valdið fyrirskipar innrás hers og lögreglu í fangelsisgarðinn eftir 4ra daga umsátur. Skotvopnum er beitt misk- unnarlaust, — þó hafa fang- arnir engin skotvopn, ° þyrla er látin dæla táragassprengj - um niður í fangelsisgarðinn áður en árásin er gerð. 32 fang ar liggja dauðir, tala særðra er ekki nefnd, og til að auka enn á hryllinginn er uppslátt- urinn, 8 fangaverðir skornir á háls, mörgum timum áður en árásin er gerð. Aftan við er hnýtt, að fyrir morð á fangaverði sé dauðarefsing í New York-ríki. Enginn þeirra sem þátt tekur í innrásinno fellur. En daginn eftir eru .nýjar fréttir. Fallnir fangaverðir eru 10 og enginn þeirra' er hálsskorinn, þeir falla fyrir byssukúlum, ekki frá föngún- um, heldur lögreglu og her, og síðar bætist við, af mistök- um — auðvitað. En þegar brotunum er rað- að saman og myndin er heil- leg orðin fyrir áhorfandanum, magnast hinn óhugnanlegi grunur, og ásjóna bandaríska réttlætisþjóðfélagsins verður að ófreskjuandliti kúgarans. Það er aðeins verið að svið- setja fjöldamorð róttækra svertingja sem þátt hafa tekið í réttindabaráttu kynstofns síns gegn kúgurunum, þann- ig að það líti út sem slys. Þess vegna þarf ekki að reyna samningaleiðina til þrautar, þess vegna er ekki reynt að svelta fangana til hlýðni, þess vegna fá þeir ekki að kynnast gashernaði af full- komnustu gerð bandaríska herveldisins. Þeir eru aðeins blindaðir meðan lögreglan fremur morð sín og „slys“. Og ekki einu sinni „slysin“ eru tilviljun, heldur tæknileg mistök fjöldamorðingjanna, það þarf að hafa átýllu til að grisja fangahjörðina enn betur, átyllu til að geta dæmt saklausa fanga í rafmagns- stólinn fyrir morð á fanga- vörðum samkvæmt lögum New York-ríkis. Valdið mun án efa réttlæta gerðir sínar og hafa til þess stuðning fjölmiðla heima og erlendis. En rödd þess kúgaða heyrist ekki, kannski féll hann eða verður dæmdur fyr- ir morð á fangaverði. En hvað sem réttlætingum Valdsins líður, fá þeír aldrei hreinsað gruninn úr hugum þeiira sem raða brotunum saman. Hann verður einn ljótur dráttnrinn í viðbót í óhugnanlegri ásjónu bandarísks þjóðfélags. Þ. Meinatækni Staða meinatæknis við Sjúkrahús Húsavíkur er laus til umsóknar. Starfinu getur fylgt lítil íbúð. Góð launakjör. Sjálfstætt starf. Upplýsingar um starfið gefur framkvæmdastjóri í síma 96-4-14-33. Sjúkrahús Húsavíkur. TILKYNNING til foreldra 6 ára barna í Kópavogi. Ákveðið hefur verið, að boða 6 ára börnin í skól- ana mánudag og þriðjudag 11. og 12. október n.k. Er þá gert ráð fyrir að annað hvort foreldri barns- 1 ins verði í fylgd með því og ræði við kennara um barnið. Haft verður samband við heimilin, bréflega eða i síma, til að láta þau vita nánar um mænngartlma. Fræðslustjóri. V

x

Nýtt land-frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land-frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/1529

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.