Börn og menning - 01.02.1997, Síða 5
BÖRN 06 /'AENNiNG
IBBY Samtökín
Nú þegar tímaritið okkar hefur göngu sína í breyttu
formi og undir nýju nafni, er ekki úr vegi að rifja
aðeins upp sögu IBBY samtakanna og um hvað
þetta allt saman snýst.
IBBY er skammstöfun á enska heitinu The
Intemational Board on Books for Young People, en
það eru alþjóðleg samtök. IBBY deildir eru nú í
rúmlega sextíu ríkjum víðsvegar um heim. Stofnandi
samtakanna var þýsk kona að nafni Jella Lepman.
Hún áleit að góðar bamabækur gætu „byggt brú“
milli þjóða heims, miðlað fróðleik og þar með
skilningi milli ólíkra menningarsamfélaga. Samtök-
in vom stofnuð í Sviss árið 1953 og þar em enn í
dag aðalstöðvar þeirra. Þau hafa gert fæðingardag
H.C. Andersens, 2. apríl, að alþjóðlegum barna-
bókadegi.
Markmið samtakanna em meðal
annars að:
* miðla skilningi milli þjóða með bamabókum
* gefa bömum hvar sem er í heiminum tækifæri
til að njóta góðra bóka
* kynna og hvetja til útgáfu á framúrskarandi
skáldverkum og myndrænum verkum fyrir
börn og unglinga
* stuðla að rannsóknum á bamabókmenntum
* veita upplýsingar og ráðgjöf þeim sem vilja
helga sig málefnum bamabókmennta
* sameina þá aðila um allan heim, sem vinna að
framgangi góðra bóka fyrir börn og unglinga.
Annað hvort ár er haldin alþjóðleg ráðstefna þar
sem ákveðið þema er tekið fyrir. Hin næsta verður
haldin í september 1998 í Dehli og er yfirskrift
hennar á ensku: „Peace through Children’s Books“
eða „Friður með tilstuðlan barnabóka“.
Á þessum ráðstefnum em H.C. Andersen verð-
launin veitt rithöfundi annars vegar og myndlistar-
manni hins vegar fyrir feril hans. Mun ekki ofmælt,
að þetta séu virtustu verðlaun sem veitt eru á
vettvangi bama- og unglingabókmennta í heiminum,
enda em þau oft nefnd „Litlu Nóbelsverðlaunin”.
IBBY deildimar í hverju ríki geta tilnefnt sína lista-
menn, en síðan sker tólf manna alþjóðleg dómnefnd
úr um það, hverjir hljóti verðlaun hverju sinni.
í tengslum við ráðstefnurnar mega IBBY
deildirnar jafnframt tilnefna þrjár nýlega útgefnar
bækur, sem þykja skara fram úr hver á sinn hátt, á
heiðurslista IBBY samtakanna og heiðra þannig
rithöfund, myndlistarmann og þýðanda.
IBBY deildirnar þurfa að greiða gjald fyrir
tilnefningamar og getur það verið fjárvana deildum
töluverð blóðtaka. Á hinn bóginn hafa þær reynst
afbragðskynning á viðkomandi bókum og hafa
stuðlað að auknum þýðingum og útgáfu þeirra í
öðrum ríkjum, enda hafa sýningar á þeim oft farið
víða.
Árið 1988 vom svokölluð IBBY-Asahi verðlaun
veitt í fyrsta sinn. Japanska deildin stendur fyrir
þeim í samvinnu við dagblaðið Asahi Shimbun.
Verðlaunin, sem nema einni milljón japanskra jena,
eru veitt árlega samtökum eða stofnun, sem gert
hefur verulegt átak til að auka möguleika barna í
landi sínu til að njóta bóka. Oftast hafa verðlaunin
verið veitt til verkefna í þróunarríkjum, þó að á því
séu undantekningar. Öllum IBBY deildum gefst
kostur á að tilnefna til þessara verðlauna
endurgjaldslaust.
íslandsdeild IBBY
Barnabókaráðið - íslandsdeild
IBBY hefur starfað í tólf ár. Auk
þess að taka þátt í alþjóðlegu og
norrænu samstarfi eftir því sem efni og ástæður
hafa leyft, hefur það staðið fyrir ýmis konar
menningarstarfsemi hér heima, sýningum, ráð-
stefnum og þess háttar viðburðum.
Af föstum liðum í starfseminni ber kannski
hæst viðurkenningarnar, sem veittar eru árlega á
sumardaginn fyrsta, en þær eru veittar fyrir lofsvert
framlag til barnamenningar á Islandi. Einnig hafa
flest ár verið aðventusamkomur með kynningum á