Börn og menning - 01.02.1997, Síða 22
BÖRN 06 /AENN|N6
til það deyr. Þá mætast draumamaðurinn og
jarðarbamið á gulltúninu og „fá sama líkama og
sömu sál til að fara með í himnaheimana.“ (90) Það
má því líta á draumamanninn sem annað sjálf
manneskjunnar og þetta sjálf virðist þroskast mun
hraðar en aðrir hlutar hennar því draumamaður
Gauta er gamall maður þótt hann sé aðeins 5 ára
eins og Gauti. Það er svo þetta annað sjálf eða
„þriðja auga“ sem veitir Gauta og Beggu nýja sýn
á lífið og hjálpar þeim að horfast í augu við vanda
sinn í „venjulega heiminum“. Þau læra til dæmis
að trúa öðrum fyrir leyndarmálum sem hafa valdið
þeim sársauka og þannig getur Gauti losað um sinn
stærsta ótta, það er að einn daginn komi mamma
hans ekki heim úr vinnunni eins og hún er vön. I
ferðum þeirra Beggu er einnig velt upp spuming-
um um fordóma, stríðni, öfund, reiði og fyrir-
gefningu svo fátt eitt sé nefnt og er Vigdís ekki
hrædd við stórar siðferðisspumingar hér fremur en
annars staðar í verkum sínum.
Gauti vinur minn er einlæg og hlý bók sem
gaman er að lesa með baminu sínu; hún lætur ekki
mikið yfir sér en texti hennar er auðugur og býður
upp á áframhaldandi umræður og vangaveltur hvort
sem er milli bams og fullorðins sem lesa hana
saman eða innra með hverjum og einum lesanda.
íslandsdeild IBBY
Ef þið viljið gerast meðlimir í IBB Y, eða fáið góðar hugmyndir
og viljið leggja eitthvað af mörkum til starfseminnar eða tímaritsins,
þá hafið samband!
✓
Þið getið sent okkur línu: Barnabókaráðið - Islandsdeild IBBY
Pósthólf 7191, Reykjavík
Einnig getið þið hringt í
formanninn, Iðunni Steinsdóttur í síma 553 2804, eða í
ritstjórann, Kristínu Birgisdóttur í síma 566 7264.
20