Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.1991, Blaðsíða 1
FELAGSTIÐINDI
Starfsmannafélags ríkisstofnana - 1. tbl. - 33. árg. - janúar 1990 ?/
Leiðari
Stjórn SFR vill óska öllum fé-
lögum í starfsmannafélaginu
gleðilegs nýs árs og þakkar jafn-
framt samstarfið á liðnu ári. Nýja
árið heilsar að sönnu með vá-
legum tíðindum utan úr heimi
þar sem fréttir af styrjöldinni við
Persaflóa og ofbeldisverkum í
Eystrasaltsríkjunum fylla forsíður blaðanna og
fréttatíma útvarps og sjónvarps. Ervonandi að
síðari hluti ársins verði friðsamlegri en upphaf-
ið og takist að kveða hernaðarhyggjuna, hers-
höfðingjana og vopnaframleiðendurnar hvar-
vetna í kútinn. Okkar þjóð hefur verið svo
lánsöm að komast lengstum hjá vopnuðum á-
tökum innanlands og við önnur ríki og þyrftu
stjórnvöld að halda þeirri arfleifð í heiðri með
því að beita sér af alefli á alþjóðavetvangi fyrir
því að deilumál verði jafnan leyst með samn-
ingum en ekki vopnavaldi.
Nú fer að líða að aðalfundi félagsins, sem á
að halda í mars, og verður fundartíminn nánar
auglýstur í næstu Félagstíðindum. Á aðalfund-
inum verða bornar fram tillögur um ýmis konar
lagabreytingar, m.a. til að
auðvelda kosningafyrirkomu-
lagið og breyta uppbyggingu
félagsins í þá veru að stofna
landshlutadeildir og/eða
deildir sérhópa. Verða þessar
lagabreytingartillögur kynntar
félagsmönnum sem best.
í ágústlok verða þeir kjara-
samningar lausir sem kenndir
hafa verið við “þjóðarsátt.” Við
hljótum öll að fara að huga að
kröfugerð í næstu samningum og ræða bar-
áttuleiðir. Það er Ijóst að aðeins með því að
standa saman að kröfum okkar getum við gert
okkur vonir um árangur. Síðustu tvö ár hafa
verið mikil kjaraskerðingarár hjá almennu
launafólki, kaupmáttur hefur minnkað um 10-
15% og hjá sumum hópum jafnvel um 20% en
á sama tíma er ekki annað að sjá en nógir
peningar séu til í þjóðfélaginu. Launafólk hefur
lagt sitt til svokallaðrar þjóðarsáttar. Er ekki
kominn tími til að aðrir leggi sitt að mörkum
meðan kaupmáttur verkafólks er bættur? Að
því þurfum við öll að vinna í næstu samning-
um.
S.K.
Vinnu- Um talningu
staðurinn minn veikindadaga
Reykingabann á ríkisspítölunum Sjúkraliðar
og félög
Vinna við tölvur