Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.02.1991, Blaðsíða 1
FELAGSTIÐINDI
Starfsmannafélags ríkisstofnana - 2. tbl. - 33. árg - Febrúar 1991
Leiðari
Þriöjudaginn 12. febrúar stóö fjár-
málaráöuneytiö fyrir ráöstefnu um
sparnað og framleiöniaukningu í rík-
iskerfinu. Þar voru haldnar framsögur
um ýmis sviö ríkisrekstrarins og auk
þess kynnt skýrsla um norræna vel-
feröarsamfélagiö sem gefin var út af
norrænu ráðherranefndinni.
Okkur launafólki er sagt aö nú séu
aðhaldstímar, menn veröi aö leggja haröar aö sér, setja
þurfi hömlur á ríkisútgjöld en hagvöxtur og framleiðni aö
aukast. Flest úrræöi sparnaðarsérfræðinganna og hag-
fræöinganna miöast þó fyrst og fremst viö aö skeröa
framlög til félagslegrar þjónustu, einkum í heilbrigöis- og
menntakerfinu. Þaö er þó oftast ekki sagt berum oröum
heldur falið meö tali um einkavæöingu, aukna skilvirkni,
hagræöingu og framleiöni. Loks er mælt meö því aö þeir
sem þurfa á félagslegri þjónustu aö halda greiði fyrir
hana. Á ráöstefnunni var t.d. ýjaö aö því aö sjúklingar
greiddu fyrir læknishjálp þá sem þeim er veitt.
Framleiönital þessara reiknimeistara er í fyllsta máta
ábyrgðarlaust því þeir einblína á kostnaðinn en van-
meta árangurinn og afköstin. í menntamálum má vissu-
lega telja þær kennslustundir sem nemendur fá og
leggja saman niöurstöður prófa en raunverulegur ár-
angur menntunar verður með engu móti metinn í tölum,
t.d. aukiö sjálfstraust nemenda þegar þeir ná tökum á
einhverju viöfangsefni, auknir mögu-
leikar ungs fólks til aö finna sér starf
við hæfi og það aö nám er ekki leng-
ur forréttindi hinna ríku. Þaö er hægt
að telja saman þá fjármuni sem fara
til tómstundastarfs ungs fólks eöa í-
þróttamála en óbeinn árangur af
slíku, þar sem unglingum er beint á
þroskavænlegar brautir, er ómælan-
legur. Heilbrigðiskerfið, sem er vin-
sælt bitbein sparnaöarsérfræöing-
anna, miöast að mjög miklu leyti viö
aö sinna öldruðum, öryrkjum og öörum sem litlar tekjur
hafa. Af stórum hluta þess fólks, sem mestu er kostað til
í heilbrigðisþjónustunni, er ekkert að hafa og út í hött aö
láta þaö borga fyrir þá umönnun sem þaö á fyllsta rétt á.
Þaö er líka vissulega hægt aö auka “framleiöni” á
sjúkrahúsum með því að útskrifa sjúklinga fyrr eftir aö-
gerö en nú er en þaö eykur líka hættuna á áföllum áöur
en þeir hafa jafnaö sig aö fullu. Og hvernig á aö meta
framleiðnina í fyrirbyggjandi aðgerðum, t.d. leit aö
krabbameini, fræðslu um mataræði og hollustuhætti
eöa starfsemi vinnueftirlits og brunamálastofnunar?
Framleiðni- og sparnaöartal í því formi sem var á áö-
urnefndri ráöstefnu miðast fyrst og fremst viö niðurskurð
til félagslegrar þjónustu, viö aö gera hana dýrari fyrir
notendur eöa draga úr henni, og auka þannig mun ríkra
og fátækra í samfélaginu. Viö eigum ekki aö sætta okk-
ur við slíkt.
S.K.
Efni í blaðinu: Þetta þarftu
Frá Fríhöfninni að vita
bls. 3 Ws.fi Skipulags- breytingar
Hverjir græöa bls.7
á vinnuvernd? bls. 4 Um sjúkraliðafálagið
bls.8