Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.03.1991, Síða 1
FELAGSTIÐINDI
Starfsmannafélags ríkisstofnana - 3. tbl. - 33. árg - Mars 1991
Leiðari
Undanfarna daga hafa
borist fréttir af uppsögnum viö
Þjóðleikhúsið, bæði leikara
og annarra starfsmanna. Um
áramótin var starfsmönnum
Síldarverksmiðja ríkisins sagt
upp vegna endurskipulagn-
ingar og enn ekki Ijóst hverjir
verða endurráðnir. Yfirvofandi
eru uppsagnir í íslenska dansflokknum.
Fleiri hliðstæð dæmi má nefna um að verið
sé að minnka atvinnuöryggi ríkisstarfs-
manna með líkum hætti.
Við uppsagnirnar í Þjóðleikhúsinu var
ekki séð að farið væri eftir neinni reglu
annarri en duttlungum nýskipaðs Þjóðleik-
hússtjóra. Aðeins var sagt: “Það er ekkert
með þetta fólk að gera hér.” Ekki var nein
viðleitni höfð til að breyta skipulagi starfsins
í leikhúsinu, aðeins óæskilegum einstakling-
um í augum nýja stjórans sparkað.
Uppsagnir starfsfólk geta reynst tvíeggjað
ráð. Sumir trúa því að nýir vendir sópi best
en reynsla og velvild gamalla starfsmanna
eru líka þýðingarmikil. Uppsögn eldri starfs-
manna spillir starfsandanum og skapar tor-
tryggni því þeir, sem eftir
sitja, spyrja sjálfan sig: “Hver
verður næstur?” Það er
hugsanlegt að unnt sé að
pína meira út úr starfsfólkinu
með uppsagnarvopnið reitt
en þeir sem hafa það yfir sér
eru síður búnir til að taka á-
hættu eða sýna frumkvæði.
Mórallinn á slíkum vinnustað
mótast oft af því að hlýða yfir-
mönnunum í einu og öllu
enda eru uppsagnir eitt beittasta vopn yfir-
gangssamra stjórnenda.
Rétturinn til vinnu telst til almennra mann-
réttinda eða ætti að gera það. Á velflestum
vinnustöðum er fólki ekki sagt upp nema
knýjandi ástæður séu til þess en ekki af
duttlungum forstjóranna einum saman.
Starfsmannafélag ríkisstofnana mótmælir
harðlega þeim vinnubrögðum sem Þjóðleik-
hússtjórinn og fleiri ríkisforstjórar hafa við-
haft. Félagið mun beita sér til hins ýtrasta til
að vernda rétt þess fólks sem upp var sagt.
En það er vitað mál að þeir starfsmenn sem
ráðnir eru eftir 1974 eru á gagnkvæmum
uppsagnarfresti. Svona vinnubrögð við upp-
sagnir eiga ekki að tíðkast nú á tímum frels-
is, lýðréttinda og mannréttinda.
EÉP
Breyttur fundarstaður fyrir aðalfund
Aðalfundur SFR 1991 verður haldinn
fimmtudaginn 21. mars á
veitingahúsinu Breiðvangi í Mjódd-
inni og hefst klukkan 20.00. Þetta er
gert vegna þess að kjósa þarf um
fulltrúa SFR á þing BSRB og búast
má við mikilli fundarsókn.
rL'‘UHREKKAi
S brekka
XL
SVÉGUR
qALFAH.
‘HU Ða\
'o-
jí *JALU
^GRIHJALU
SIEKKMR — 2
ac
“GILSÁRS.fc
< z
^OEITASa-.i;
ic o:
J o
£ BRÚNASt
ÁLFABAKK
03'
ÞÖNGLAB.
BARAS.
i/i —3 ar >
ce œscy:
< H-*<