Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.03.1991, Qupperneq 8
Félagstíðindi SFR
Fulloröinsfrœösla -
nýtt skólastig?
Frá miðjum sjöunda ára-
tugnum hefur mjög færst í
vöxt hér á landi hvers konar
fræðsla eða nám fullorðinna.
Þessi aukning hefur haldist í
hendur við stóraukna skóla-
göngu að loknu skyldunámi.
Fullorðinsfræðslu má skipta
í þrjár tegundir náms. Nám í
hefðbundnum greinum
grunn- og framhaldsskóla,
starfstengda símenntun og
tómstundanám.
Fyrsti flokkurinn, þ.e. nám
fullorðinna í hefðbundnum
greinum grunn- og framhalds-
skóla, tók mikinn kipp með til-
komu öldungadeilda við fram-
haldsskóla um miðjan áttunda
áratuginn. Nú eru öldunga-
deildir við hátt á annan tug
framhaldsskóla og í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti
einum stunda nú um 900
manns nám í öldungadeild.
Auk þess bjóða Námsflokkar
Reykjavíkur, Bréfaskólinn og
vaxandi fjöldi málaskóla nám
af þessu tagi. Því miður hefur
Háskóli Islands ekki enn
brugðist við þessari þörf en nú-
verandi rektor H.I., dr. Sig-
mundur Guðbjarnarson, lagði
á síðasta ári til við háskólaráð
að þau mál yrðu tekin til skoð-
unar. Er ekki að efa að þúsund-
ir Islendinga munu notfæra sér
síðdegis- eða kvöldnám á há-
skólastigi þegar þar að kemur.
Líklegt er að konur yrðu þar í
meirihluta eins og gerst hefur í
öldungadeildum framhalds-
skóla.
Önnur tegund fullorðins-
fræðslu tengist störfum fólks
og nefndist endurmenntun eða
starfstengd símenntun. Upp úr
1980 verður stóraukning á
framboði og eftirspurn eftir
starfstengdri endurmenntun.
Stéttarfélög og hagsmunaaðil-
ar I atvinnulífi hafa átt mikið
frumkvæði að þessu leyti og
nú eru varla gerðir svo kjara-
samningar að ekki séu í þeim
ákvæði um endurmenntun.
Stór hluti þessarar menntunar
fer fram utan skólakerfisins og
er kostaður af þeim sem henn-
ar njóta. Framlag ríkisins hefur
einkum tengst kjarasamning-
um ófaglærðs verkafólks auk
greiðslu kostnaðar við sí-
menntun opinberra starfs-
manna. Að flestu öðru leyti má
segja að þessi menntun sé á
“frjálsum markaði.” I könnun-
um sem gerðar hafa verið m.a.
af höfundi þessarar greinar
hefur komið fram að ekki
minna en 25-30% af vinnandi
fólki í landinu sæki formlega
skipulagða endurmenntun á
hverju ári.
Lítið er um lög eða reglu-
gerðir um þessa starfsemi og
hún fer að miklu leyti fram án
tengsla við hið formlega skóla-
kerfi og án beinna ríkisafskipta
og hefur það bæði kosti og
galla. Kostimir eru þeir að
starfsemin er sveigjanlegri,
tekur nauðsynlega meira mið
af þörfum þeirra, er hana nota,
og gæðaeftirlit er í höndum
neytendanna sjálfra að svo
miklu leyti sem þeir eru færir
um slíkt. Hins vegar þegar
búið er að setja svona starf-
semi á “frjálsan markað” eins
og það er nefnt, þá er auðvitað
nauðsynlegt að um raunveru-
lega samkeppni sé að ræða
þannig að neytendur séu ekki
ofurseldir einokunaraðstöðu
eins eða tveggja aðila. Slíkt
verður erfitt hér þar sem mark-
Margrét
Björnsdóttir
endur-
menntunarstjóri
Háskóla
íslands
aðurinn er mjög lítill. Nauð-
synlegt er því að til komi neyt-
endavernd í einhverju formi.
Ókostimir á þessu fyrir-
komulagi eru þeir sömu og
annars staðar þar sem mark-
aðslögmál gilda. Sú fræðslu-
starfsemi sem ekki nýtur opin-
berra styrkja verður dýr og ein-
ungis sæmilega fjársterk fyrir-
tæki geta sent starfsmenn sína í
símenntun að einhverju marki
en einstaklingar, sem t.d. eru
heimavinnandi eða vilja
mennta sig upp úr þeim störf-
um sem þeir eru í, geta ekki
keypt þessi námskeið á því
verði sem þau mörg hver em
seld á. Á jressum ójöfnuði er
nauðsynlegt að taka þannig að
við getum áfram með nokkrum
rétti stært okkur af jöfnum
möguleikum allra til menntun-
ar. Einnig er hætta á að einung-
is sé boðið upp á það sem er
auðseljanlegt og auðfram-
kvæmanlegt. Langtímamark-
mið sitja á hakanum, svo og
þróuð sérsvið er snerta fáa að-
ila en geta haft mikla þjóð-
hagslega þýðingu. Mest af
þessari menntun fer fram á
höfuðborgarsvæðinu og er það
einnig afleiðing áðurnefndra
markaðslögmála.
Loks er það þriðja tegund
fullorðinsfræðslu sem nefnd
hefur verið tómstundafræðsla.
Þar er mjög fjölskrúðugt fram-
boð ýmissa samtaka, einka-
skóla, tómstundaskóla verka-
lýðsfélaganna o.fl. Þrátt fyrir
allt það framboð sem er á af-
þreyingarefni I fjölmiðlum,
tímaritum og dagblöðum, þá er
tómstundafræðsla, sem felur í
sér mannleg samskipti og ná-
vist, síst á undanhaldi. I Há-
skóla íslands voru s.l. haust í
tilraunaskyni haldin kvöld-
námskeið í bókmenntum,
klassískri tónlist, listasögu og
heimspeki. Námskeiðin fengu
frábærar viðtökur og nú á
vormisseri var á ný boðið upp
á ný kvöldnámskeið í þessum
greinum. Færri komustu að en
vildu og eru nú um 300 manns
á þessum kvöldnámskeiðum
sem endurmenntunardeild Há-
skólans og heimspekideild
standa sameiginlega að.
Af því sem hér hefur laus-
lega verið rakið um fullorðins-
fræðslu á Islandi má sjá að
þrátt fyrir óhóflega langan
vinnudag og yfirþyrmandi
fjölmiðlaframboð virðast Is-
lendingar staðfesta það sjálfsá-
lit að þeir séu forvitnir og fróð-
leiksþyrstir bókamenn.
Utankjörstaöakosning
Utankjörstaöakosning vegna kjörs full- bundnir eru í vaktavinnu fimmtudaginn 21.
trúa á þing BSRB fer fram mánudaginn 18. mars þegar aöalfundur SFR verður haldinn,
mars og þriðjudaginn 19. mars frá klukk- geta kosið þessa tvo daga. Þeir þurfa að
an 12.00 til 18.00. Kosið er í húsnæði SFR hafa vottorð frá yfirmanni um að þeir séu
á Grettisgötu 89. bundnir í vinnu aðalfundarkvöldið.
Félagsmenn á Reykjavíkursvæðinu, sem