Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.07.1991, Side 4

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.07.1991, Side 4
4 Félagstíðindi SFR 10. grein. Bætur fyrir varan- lega örorku. 1. Valdi slys þeim sem tryggður er varanlegri ör- orku innan þriggja ára frá því slysið varð greiðast bæt- ur á grundvelli þeirrar tryggingarfjárhæðar sem í gildi er í uppgjörsmánuði bóta skv. 2. tölulið greinar þessarar, sbr. 11. grein, eftir þeim reglum sem að neðan greinir. 2. Bætur vegna varan- legrar örorku greiðast í hlut- falli við tryggingarfjárhæð- ina kr. 3.353.000 þó þannig að hvert örorkustig frá 26- 50% vegur tvöfalt og hvert örorkustig frá 51-100% þrefalt. Bætur við 100% varanlega örorku verða því kr. 7.544.300. Um vísitölu- bindingu tryggingarfjár- hæðarinnar gildir ákvæði 11. greinar. 3. Við ákvörðun örorku skal fylgja eftirfarandi regl- um: 3.1 Þessi tafla skal höfð til hliðsjónar við örorkumat: Ofangreind örorka á handlimum er miðuð við betri handlim. Örorka vegna hliðstæðrar missmíði á lak- ari handlim er allt að 10% minni. 3.2 Ef missir útlima, sjónar og heyrnar er ekki al- ger bætist örorka hlutfalls- lega. Ef útlimir eru alger- lega ónothæfir telst það missir þeirra. Ef þeir eru að einhverju leyti nothæfir reiknast örorka hlutfalls- lega. 3.3 Samanlögð örorku- stig geta aldrei orðið meira en 100%. 3.4 Missir eða bæklun útlims, sem áður var bækl- aður, skal metinn í hlutfalli við þann missi sem slasaði varð fyrir við slysið. Sama gildir um líffæri. 3.5 Við ákvörðun örorku ber ekki að taka tillit til starfs, sérstakra hæfileika slasaða né þjóðfélagsstöðu. 3.6 Örorkan ákveðst í fyrsta lagi einu ári eftir slys- ið. Telji slasaði eða fjár- málaráðuneytið að örorkan A. Sjón og heyrn. Alger missir sjónar á báðum augum 100% Alger missir sjónar á öðru auga, full sjón á hinu 20% Annað augan numið burtu, full sjón á hinu 25% Algert heyrnarleysi á öðru eyra 10% Algert heyrnarleysi á báðum eyrum 50% B. Fótlimir. Stúfhögg á báðum fótlimum um lærleggi Annar fótlimur numinn burtu í mjaðmar- 100% lið, hinn um hnélið 100% Alger lömun á báðum fótlimum 100% Stúfhögg á báðum fótlimum um hnéliði 75% Stúfhögg á öðrum fótlim um lærlegg 50-65% Stúfhögg á öðrum fótlim um fótlegg 35-45% Staurhné á öðrum fótlim 25-50% Staurökkli á öðrum fótlim 20-30% Missir allra táa á öðrum fæti 10% C. Handlimir. Stúfhögg beggja handlima 100% Stúfhögg um upphandlegg 65-75% Stúfhögg um framhandlegg 60-65% Stúfhögg um úlnlið 60% Missir alls þumalfingurs 25% Missir alls vísifingurs 12% Missir allrar löngutangar 10% Missir alls baugfingurs 5% Missir alls litlafingurs 7% geti breyst getur hvor aðili um sig krafist þess að end- anlegu örorkumati verði frestað, þó ekki lengur en í þrjú ár frá slysdegi. 3.7 Ef endanleg örorka hefur ekki verið ákveðin vegna frestunar skv. tölulið 3.6 þegar launagreiðslum til starfsmanns lýkur er heimilt að greiða honum upp í bætur ef ríkar ástæður eru fyrir hendi. Við lokauppgjör skal slík greiðsla framreiknuð með framfærsluvísitölu til uppgjörsmánaðar og koma þannig reiknuð til frádráttar bótum. 3.8 Þótt gera megi ráð fyrir að ástand hins slasaða kunni að breytast skal und- antekningarlaust fram- kvæma örorkumat í síðasta lagi þremur árum eftir slys- ið. í þessu tilfelli ber að á- kveða örorkuna eins og gera má ráð fyrir að hún verði endanleg. Ef líkur eru til að ástand hins slasaða megi bæta með skurðaðgerðum eða öðrum slíkum aðgerðum og hann veigrar sér við án gildra ástæðna að gangast undir slíkar aðgerðir ber samt sem áður við ákvörðun örorku að taka tillit til hugs- anlegs bata sem slíkar að- gerðir kynnu að hafa í för með sér. 3.9 Slys sem einungis valda lýti eru ekki bóta- skyld. 11. grein. Vísitölubinding tryggingarfjárhæða. 1. Tryggingarfjárhæðir skv. 9. og 10. gr. eru vísi- tölubundnar og miðast við vísitölu framfærslukostnað- ar í apríl 1989 119,9 stig. Við uppgjör bóta skal fram- reikna fjárhæðir miðað við þær breytingar sem orðið hafa á vísitölu framfærslu- kostnaðar frá apríl 1989 til uppgjörsmánaðar bóta. Vísitölubinding bóta varir þó aldrei lengur en í 3 ár frá slysdegi. 12. grein. Bótauppgjör. 1. Embætti ríkislög- manns fjallar um bótaskyldu skv. reglum þessum og ann- ast uppgjör bóta í umboði fjármálaráðuneytisins. 2. Bætur greiðast eftir að læknisvottorð og nauð- synleg sönnunargögn fyrir bótaskyldu hafa borist og unnt er að ákvarða upphæð bótanna. Berist ekki athuga- semdir við bótafjárhæðina innan eins mánaðar frá því bótaþega var skýrt frá henni telst hún samþykkt. 13. grein. Fyrning. 1. Kröfur vegna trygg- ingar þessarar fyrnast á fjór- um árum frá lokum þess almanaksárs er kröfuhafinn fékk vitneskju um kröfu sína og átti þess fyrst kost að leita fullnustu hennar, þó í síðasta lagi á 10 árum frá slysdegi. 14. grein. Skaðabótaábyrgð. 1. Verði ríkissjóður eða vinnuveitandi skaðabóta- skyldur gagnvart hinum vá- tryggða skulu slysabætur, sem greiddar hafa verið vegna slyssins skv. slysa- tryggingu þessari, koma að fullu til frádráttar skaðabót- um er þeim kann að verða gert að greiða. 2. Beri slys að með þeim hætti að vátryggður öðlist rétt til bóta úr annarri slysa- tryggingu, er þessir aðilar kosta, skulu bætur úr þeirri tryggingu koma að fullu til frádráttar bótum skv. reglum þessum, sbr. þó 2. máls- grein, 4. töluliðs 3. greinar. 15. grein. Gildistaka. 1. Reglur þessar öðlast þegar gildi. Ákvæðum þeirra skal beita um slys sem áttu sér stað frá og með 1. apríl 1989. Fjá rm álaráðuneytið 16. janúar 1990. Ólafur Ragnar Grímsson. Birgir Guðjónsson.

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.