Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.07.1991, Side 6
ásetnings, stórkostlegs gáleys-
is eða hirðuleysis þess sem
tryggður er eða vátryggðs.
4.2 Slys sem beint eða ó-
beint eru af völdum kjarna-
breytinga, jónandi geislunar,
mengunar af geislavirkum efn-
um, kjarnaeldsneyti og kjarna-
úrgangsefni eða af völdum
styrjaldar, innrásar, hernaðar-
aðgerða, borgarrósta, upp-
reisnar, uppþots eða svipaðra
aðgerða. Sama gildir um slys
sem beint eða óbeint eru af
völdum jarðskjálfta, eldgoss,
flóða, skriðufalla, snjóflóða
eða annarra náttúruhamfara.
4.3 Slys er sá sem tryggður
er verður fyrir í handalögmál-
um. við þátttöku í refsiverðum
verknaði, undir áhrifum deyfi-
eða eiturlyfja eða í ölæði nema
sannað sé að ekkert samband
hafi verið á milli ástands þessa
og slyssins.
4.4 Slys vegna ljósbaða,
röntgengeisla, radíums, día-
termi eða svipaðra geisla,
skurðaðgerða eða annarra
læknisaðgerða nema sannað sé
að þær hafi verið nauðsynlegar
og gerðar að læknisráði á við-
urkenndri heilbrigðisstofnun.
4.5 Slys sem orsakast af
matareitrun, drykkjareitrun, af
nautnalyfjum eða af lyfjanotk-
un nema það sé að læknisráði
vegna bótaskylds slyss. Slys
vegna kvalastillandi lyfja eða
svefnlyfja eru alltaf undanskil-
in bótaábyrgð.
4.6 Slys vegna eitraðra
lofttegunda nema það hafi orð-
ið skyndilega og án vilja þess
sem tryggður er.
4.7 Slys sem verður er
starfsmaður vinnur launað
starf hjá öðrum vinnuveitanda
eða við eigin rekstur og á leið
til og frá slíkri vinnu. Sama
gildir vegna aukastarfs hjá
stofnunum sem reglur þessar
taka til ef starfsmaður er
tryggður í þeim störfum skv.
öðrum skilmálum.
8. grein.
Ráðstafanir vegna slyss.
1. Slasaða ber að leita
læknis strax eftir að slys hefur
borið að höndum, gangast und-
ir nauðsynlegar læknisaðgerðir
og fara í öllu að fyrirmælum
læknis.
2. Tilkynna skal slys eins
fljótt og unnt er til launaskrif-
stofu ríkisins.
3. Deyi sá sem tryggður er
af slysförum skal tilkynna það
eins fljótt og auðið er.
4. Fjármálaráðuneytið hef-
ur rétt til að krefjast krufningar
á líki hins látna.
5. Þegar slys ber að hönd-
urn er fjármálaráðuneytinu
heimilt að láta trúnaðarlækni
sinn skoða þann sem tryggður
er.
6. Þegar læknishjálp lýkur
eða þegar unnt er að dæma um
afleiðingar slyssins skal senda
læknisvottorð og bótakröfu til
embættis ríkislögmanns vegna
fjármálaráðuneytisins.
7. Vátryggður fær endur-
greidd nauðsynleg læknisvott-
orð sem aflað er skv. reglum
þessum.
9. grein.
Dánarbætur.
1. Valdi slys dauða þess
sem tryggður er innan eins árs
frá slysdegi greiðist trygging-
arfjárhæð sú sem í gildi er í
uppgjörsmánuði skv. 2. máls-
grein greinar þessarar, sbr. 11.
grein. Bætur fyrir varanlega
örorku, sem kunna að hafa ver-
ið greiddar vegna sama slyss,
skulu framreiknaðar með
framfærsluvísitölu til upp-
gjörsmánaðar og dragast
þannig reiknaðar frá greiðslu.
2. Bætur, sem greiddar eru
vegna hvers einstaklings ef
slys veldur dauða, eru:
2.1 Ef hinn látni var ógiftur
og lætur ekki eftir sig barn
undir 18 ára aldri og hefur ekki
séð fyrir foreldri eða foreldrum
67 ára og eldri, kr. 266.400.
Rétthafar þessara dánarbóta
eru lögerfingjar.
2.2 Ef hinn látni var ógiftur
en lætur eftir sig bam (böm)
undir 18 ára aldri og/eða hefur
sannanlega séð fyrir foreldri
eða foreldrum 67 ára og eldri,
kr. 816.100. Rétthafar þessara
dánarbóta eru foreldrar og
börn. Taki báðir þessir aðilar
bætur rennur 1/3 hluti bóta til
foreldra en 2/3 hlutar bótanna
skiptast milli barna að jöfnu.
2.3 Ef hinn látni var í hjú-
skap eða sambúð sem að öðru
leyti má jafna til hjúskapar og
FELAGSTÍÐÍÍT
Starfsmannafélogs ríkisstofnana
SFR er stofnað 17. nóvember 1939
Skrifstofa þess er á Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
Opið: 8.00-16.00-Sími: 91-629644
Ábyrgðarmaður Félagstíðinda: Sigríður Kristinsdóttir
Ljósmyndir: Pétur Óskarsson
Prentun: Prentsmiðja Guðjóns Ó
sem staðið hefur a.m.k. í 2 ár
samfellt fyrir andlát hans skulu
bætur til maka eða sambúðar-
aðila vera kr. 1.116.400. Rétt-
hafi þessara dánarbóta er við-
komandi maki eða sambúðar-
aðili.
2.4 Ef hinn látni lætur eftir
sig barn undir 18 ára aldri, kr.
266.400 til hvers barns. Stundi
bam hins látna á aldrinum 18-
25 ára nám á framhaldsskóla-
eða háskólastigi í a.m.k. 6
mánuði ársins er hinn tryggði
andaðist á það sama rétt til
bóta. Rétthafar dánarbóta þess-
ara em viðkomandi börn. Bæt-
ur greiðast til fjárhaldsmanns
ófjárráða barns.
2.5 Með börnum í tölulið-
um 2.2 og 2.4 er átt við kyn-
börn, kjörbörn, stjúpböm, böm
sambúðaraðila og fósturbörn
sem hinn látni var framfærslu-
skyldur við skv. 14. gr. barna-
laga nr. 9 árið 1981.
2.6 Bætur greiðast aðeins
skv. einum af töluliðum 2.1,
2.2 og 2.3. Til viðbótar tölulið-
um 2.2 og 2.3 geta komið bæt-
ur skv. tölulið 2.4.
3 Um vísitölubindingu
tryggingarfjárhæða, skv. 2.
tölulið greinar þessarar, gildir
ákvæði 11. greinar.
10. grein.
Bætur fyrir
varanlega örorku.
1. Valdi slys þeim sem
tryggður er varanlegri örorku
innan þriggja ára frá því slysið
varð greiðast bætur á grund-
velli þeirrar tryggingarfjár-
hæðar sem í gildi er í uppgjörs-
mánuði bóta skv. 2. tölulið
greinar þessarar, sbr. 11. grein,
eftir þeim reglum sem að neð-
an greinir.
2. Bætur vegna varanlegrar
örorku greiðast í hlutfalli við
tryggingarfjárhæðina kr.
2.146.000 þó þannig að hvert
örorkustig frá 26-50% vegur
tvöfalt og hvert örorkustig frá
51-100% þrefalt. Bætur við
100% varanlega örorku verða
því kr. 4.828.500. Um vísitölu-
bindingu tryggingarfjárhæðar-
innar gildir ákvæði 11. greinar.
3. Við ákvörðun örorku
skal fylgja eftirfarandi reglum:
3.1 Þessi tafla skal höfð til
hliðsjónar við örorkumat: