Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.09.1991, Qupperneq 1
FELAGSTIÐINDI
Starfsmannafélags ríkisstofnana - 7. tbl. - 34. árg. - september 1991
Leiðari
Kæru félagar.
Enn einu sinni stöndum viö á
þeim tímamótum aö vera með
lausa samninga og eiga það erf-
iöa hlutverk fyrir höndum aö
reyna að fá ríkisvaldið til aö
skilja það, að stór hópur af fólk-
inu þeirra er ekki á mannsæm-
andi launum, það nái ekki einu
sinni skattleysismörkum. Það getur ekkert lagt
að mörkum til samneyslunnar þar sem launin
eru svo lág að það nær ekki einu sinni að
borga skatta.
A sama tíma á sér stað ein mesta árás á ís-
lenska velferðarkerfið. Það hefur oft verið sagt
að höfuðkostir þess að búa á íslandi hafi jafn-
an verið taldir að við hefðum gott og vel búið
velferðarkerfi. Nú leita ráðamenn þjóðarinnar
logandi Ijósi að sparnaðarleiðum, og Ijósið skín
aðeins á velferðarkerfið. Það verður að fara
varlega í sakirnar þegar skera á niður þjónustu
og gera sér grein fyrir afleiðingunum. Það er
ekki stórmannlegt ef það á að skera niður
þjónustu við veikt fólk og gamalmenni eða
leggja þjónustugjöld á námsfólk, svo eitthvað
sé nefnt.
Vafalaust má ná fram sparnaði og hagræð-
ingu á ýmsum sviðum í ríkisbúskapnum. Þar
eins og annars staðar í þjóðfélagi okkar á sér
stað bruðl og óráðsía. En þær hugmyndir og
ákvarðanir þarf að taka á faglegum grunni,
byggðum á hagfræðilegum og stjórnunarleg-
um rökum. Það mætti líka
spyrja, af hverju má ekki
mæta vanda ríkissjóðs með
því að leggja skatta á fjár-
magnstekjur og taka upp eitt
eða jafnvel fleiri skattþrep á
háar tekjur?
Nú síðustu daga hefur
kvisast út að samninganefnd
ríkisins sé búin að gefa sér á-
kveðnar forsendur fyrir næstu
samninga. Þærforsendur
byggja á að samið verði til
þriggja ára eða til áramóta
1993 og að samið verði út frá einhvers konar
núllpunkti. Sem sagt að kaupmátturinn standi í
stað út samningstímann. Þó eigi hann að geta
lækkað á næsta ári vegna samdráttar í fisk-
veiðum og annarra spádóma. Það á sem sagt
að fara niður fyrir núllpunktinn á.árinu 1992 en
síðan er reiknað með að kaupmátturinn hækki
aftur á árinu 1993 þannig að hann verði sá
sami og í upphafi samninga.
Ekki veit ég hvernig samninganefnd ríkisins
getur ímyndað sér að við getum treyst ríkis-
valdinu miðað við þær upplýsingar og fréttir
sem flæða yfir okkur síðustu daga og vikur. Að
semja til langs tíma væri óðs mann æði. Þær
álögur, hvort sem þær nefnast vaxtagjöld,
þjónustugjöld, hækkun lyfja eða niðurskurður á
þjónustu ríkisins, eru allar íþyngjandi fyrir hinn
almenna launamann.
Ágætu félagar í SFR, róðurinn virðist því
ætla að verða erfiður, margt og mikið ber á
milli í samninganefndum okkar og þeirra, en
sameinuð stöndum vér.
Baráttukveðjur. T.H.
Hver á að liggja Um komandi
sólarmegin? kjarasamninga
Ögmundur Jónasson skrifar Sigríður Kristinsdóttir skrifar
Sjötíu þúsund á mánuði er Fréttir frá lífeyris-
hógvær krafa Rætt viö þrjá fulltrúa í þega deild
samninganefnd