Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 01.12.1992, Blaðsíða 2
Réttlœti
gefur af
frið
Enn eru að koma jól. Mitt í
svartasta skammdeginu færist
ævintýraleg birta yfir byggðina og
þrátt fyrir kalsaveður fer hlýr
straumur um hjartaræturna
ur langar tii að gleðja, njóta,
En hvað er á bak við þessar
kenndir okkar, hvað er það se
gerir þessa hátíð sí-ferska í
um okkar? Jú, það er þráin eftir
friði.
Friður! Fá orð hafa jafn altæka
merkingu, fá orð hafa jafn mikinn
kraft í máli okkar. í okkar kristna
menningararfi á þetta orð rætur
að rekja til hebreska orðsins
Sjalóm”. Þaðan sækir þetta orð
okkar kraftinn. Gyðingar líta á frið-
arhutak sitt sem óaðskiljanlegan
hluta réttlætis og jafnvægis. An
réttlætis og jafnvægis getur ekki
orðið friður. Við getum lesið um
þetta í spámannaritum gamla
testamentisins. Spámenn gyðinga
voru andófsmenn síns tíma sem
neituðu að horfa framhjá óréttlæti
gagnvart einstaka hópum í samfé-
laginu enda þótt þjóðfélagið virtist,
sgi,
'fnálamiðl-
un, engin skammtímalausn. engin
sátt gagnvart óréttlætinu.
Þann 30. nóvember s.l. ákvað
launamálaráð SFR að segja upp,
þegar í stað, samningi þeim sem
þá var í gildi varðandi kaup og
kjör. Ástæðan var gengisfelling
uppá 6% sem hafði leitt af sér
kjaraskerðingu og þar af leiðandi
ójafnvægi milli þess sem samið
var um og raunveruleika félags-
manna í SFR. Að ætlast til þess
að launafólk héldi fast í samning
sem viðsemjandinn hafði í raun
rift væri óréttlæti. “Friður á vinnu-
markaðnum” við þessar aðsæður
hefði ekki staðið undir nafni, slíkur
i.^w,.afskræming á
pl|W því sem orðið friður stendur
orðsfriður þjóðfélags
em ekki gætir hagsmuf«|.allra
inna þegna jafnt grefur undan því
og getur aðeins endað með upp-
lausn og vonleysi. Til þess að
raunverulegur friður komist á þarf
að vinna að réttlæti.
Við höldum jól t.þ.a. minnast
komu frelsarans til okkar mann-
anna og minnast þess friðar sem
hann færði okkur. Þráin eftir sönn-
um friði fékk þannig nokkurs kon-
ar vítamínsprautu við þau fyrirheit
sem Kristur flutti okkur. Friðarboð-
skapur jólanna talar til okkar hér
og nú í þeim aðstæðum sem við
erum í hverju sinni. Við skulum því
sameinast um að vinna að raun-
verulegum friði sem byggist á rétt-
læti.
Gleðileg
friðarjól
Páll Heimir Einarsson
Afsláttarkort fyrir félagsmenn
Eins og félagsmenn væntanlega
tóku eftir, þá fylgdi afsláttarkort
með síðasta blaði. Það átti að sjálf-
sögðu að fylgja með skýring á kort-
inu en það slys varð að útskýringarn-
ar féllu úr blaðinu.
Forsaga málsins er sú að launa-
málaráð samþykkti tillögu til stjórnar
um að athuga hvort fyrirtæki væru til-
búin að veita félagsmönnum SFR sér-
stakan afslátt af vöru og þjónustu
sinni. Afrakstur þeirrar athugunar er
að finna á þessu korti, þar sem félags-
mönnum er boðið upp á afslátt hjá fjöl-
mörgum fyrirtækjum. Þessi fyrirtæki
eru því miður flest á Reykjavíkur-
svæðinu, því fyrirtæki á landsbyggð-
inni voru mun tregari til að veita af-
slátt.
Vonandi koma þessi kort sér vel.
núna rétt fyrir jólin. Félagsmenn skrifa
nafn sitt og kennitölu á kortið, og þá á
það vera tilbúið til notkunar. Þetta kort
gildir til 1. september 1993 og verður
þá væntanlega endurnýjað ef það reyn-
ist vel.
Þeir félagsmenn, sem ekki hafa
fengið kortið, geta snúið sér til skrif-
stofu félagsins á Grettisgötu 89.