Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 01.12.1992, Page 3
3
Félagstíðindi SFR
Skálmöld,
Þjóða-ósómi
Bræður berjast í Júgóslafíu
Afríku og Sri Lanka
í heilagri Jerúsalem
er barist um fyrirheitna landið
Kynkvíslum er útrýmt
Palistínumenn hraktir burt
Á ég að gæta bróður míns?
Feður, bræður og synir
særðir og limlestir
falla um aldur fram
Ungviði fæðist vanskapað
af geislavirkni
frá Hiroshima
og Chernónbyl
Selir og hvalir í sárum
verða sjálfdauðir
mengun að bráð
Heimur er á heljarþröm
Forðum grænar grundir
orðnir jörð þjáist?
Hún byltir sér
og kveinkar
Völva ásanna
sá fyrir ragnarök
Hvirfilbylir geisa
eldfjöll gjósa
fljót flæða
fljótið ekki sofandi
að feigðarósi
Stefanía Eyjólfsdóttir
Viðtalstímar
hópa
Viðtalstímar hópa
verða sem hér segir:
Heilbrigðishópur
Fimmtudag 7. janúar klukkan 16
Skrifstofuhópur
Þriðjudag 12.janúarkl. 1620
Tæknihópur
Miðvikudaginn 13. janúar kl. 16 22
Fram
til sigurs
Verkalýðshreyfingin stendur á
tímamótum um þessar mundir, það
er sótt að henni úr öllum áttum, það
er verið að troða landinu í ESS og
þaðan í EB, það er vitað mál að
verkalýðsfélög eru ekki háttskrifuð
meðal valdhafa innan EB og dagar
þeirra jafnvel taldir. Það er stefnan
að stjórna með tilskipunum. Við
verðum að berjast af öllum þunga
gegn aðild að ESS og EB.
Hér innanlands er verið að gera
verkalýðshreyfinguna áhrifalausa.
í undanförnum tveim samningum
hefur henni verið stýrt með
hræðslupólitík. í síðustu samning-
um voru engir peningar til skift-
anna eftir því sem stjómvöld
sögðu, en það vita allir að pening-
arnir eru til í þjóðfélaginu. Það þarf
bara að skipta þeim upp á nýtt en
það er það sem ríkisstjórnin vill
ekki, tekjujöfnun er ekki á dagskrá,
hinir ríku eiga að fá að verða ríkari
í friði, braskið og skattsvikin eiga
að halda áfram.
Nú verður verkalýðshreyfingin
að rísa upp af fullum þunga og fara
í sóknarbaráttu, þvinga stjórnvöld
til að breyta tekjuskiptingunni í
þjóðfélaginu og ná aftur þeim
kaupmætti sem tekinn hefur verið
síðustu mánuði. Við verðum að
beita öllum þeim ráðum sem við
höfum og ekki vera hrædd við að
beita verkfallsvopninu, sá tími
kemur að annað er ekki hægt og nú
stefnir allt í að sá tími sé í nánd.
Við höfum verið í varnarbaráttu
undanfarið og ríkisstjórninni hefur
tekist að beygja okkur, það er ætl-
unin að gera verkalýðshreyfinguna
áhrifalausa og það versta er að við
höfum aðstoðað við það með því að
láta undan og taka þátt í bölmóðar-
söngnum. Nei nú er kominn tími til
að snúa vörn í sókn, gera verka-
lýðshreyfinguna sterka, sækja fram
af fullum krafti, það er engu að
tapa, á morgun getur það verið of
seint. Sú aðferð sem ríkisstjórnin
hefur notað undanfarið er farin að
skila árangri, semsé að telja alþýð-
unni trú um að við þurfum að
lækka launin og vera stillt og góð,
gera engar kröfur, það jaðrar við
landráð, það verði að draga úr vel-
ferðinni, hún er komin út í öfgar.
Við verðum að hætta að hlusta á
þennan söng, það eru til peningar í
þessu landi, það verður bara að
skipta upp á nýtt, það verður að
tekjujafna.
Kæru félagar, fylkjumst undir
merki okkar félags, höfnum alfarið
þessari aðför að alþýðunni. leggj-
um upp í sterka baráttu, styrkjum
verkalýðshreyfinguna og sigrum.
Ekki meiri varnarbaráttu, núna er
það sóknarbarátta. Það er um líf
eða dauða að tefla fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. Stöndum saman, gef-
Reynir Már
Ragnarsson
skrifar
um ekkert eftir, við erum ekki síst
að berjast fyrir velferð barnanna
okkar.
Hugsið ykkur máttlaus verka-
lýðsfélög sem hafa það eina hlut-
verk að úthluta orlofshúsum og rík-
isstjóm sem stjórnar alþýðunni
með tilskipunum. Nei, það má
aldrei koma, en þeir tímar gætu
verið ansi nærri ef við gerum ekk-
ert.
Hendur úr vösum, samstöðu og
sigurbaráttu landi okkar og niðjum
til blessunar.
Byrjum strax að undirbúa sigur-
förina, trúnaðarmannaráð, launa-
málaráð og hver og einn meðlimur.
Ræðum um baráttuna, styðjum
og örfum hvort annað og umfram
allt stöndum saman.
Fram til sigurs.