Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Page 17
DV 12. MARS 2021 EYJAN 17 Óskaði þrisvar eftir gögnum En aftur að broti Lilju á jafn- réttislögum við skipan Páls sem ráðuneytisstjóra. Eftir að tilkynnt var um skipanina óskaði Hafdís Helga eftir rök- stuðningi vegna ráðningarinn- ar og öllum gögnum málsins. Ráðuneytið hafnaði beiðni hennar um málsgögn tvisvar en lét þau af hendi við þriðju beiðni. Eftir að hún fékk gögnin í hendur ákvað Hafdís Helga að kæra ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála og úrskurður þar var birtur í maí 2020. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að ýmissa annmarka hefði gætt af hálfu Lilju við mat á kæranda og þeim karli sem starfið hlaut. Samandregið hefði Lilja van- metið Hafdísi Helgu saman- borið við Pál varðandi mennt- un hennar, reynslu hennar af opinberri stjórnsýslu, leiðtogahæfileika hennar og hæfni hennar til að tjá sig í riti, en allt hefðu þetta verið fortakslaus skilyrði sem birt- ust í starfsauglýsingu kærða. Að þessu virtu og með hliðsjón af nánari umfjöllun kærunefndarinnar um ein- staka matsþætti starfsaug- lýsingarinnar taldist Hafdís Helga hafa leitt nægar líkur að því að henni hefði verið mismunað á grundvelli kyns við ráðninguna. Samkvæmt því kom það í hlut Lilju að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hefðu legið til grundvallar ákvörðun hennar. Að mati kærunefndar- innar tókst sú sönnun ekki af hálfu Lilju og teldist hún því hafa brotið gegn jafnréttis- lögum. Einstakt í sögu - legu samhengi Um mánuði eftir að úrskurður kærunefndar er birtur berast fregnir af því að Lilja ætli að höfða mál gegn Hafdísi Helgu til að ógilda úrskurðinn. Þetta er í fyrsta, og raunar líka síð- asta, sinn sem ráðherra fer persónulega í mál við opin- beran starfsmann. Eina leiðin til að fá úrskurð- um kærunefndar jafnréttis- mála hnekkt er með því að höfða dómsmál en það hefur aldrei áður verið gert þrátt fyrir að aðrir ráðherrar hafi áður gerst brotlegir við jafn- réttislög samkvæmt úrskurði kærunefndarinnar. Þetta er þó líka í síðasta skipti sem það er gert vegna nýrra laga sem kveða á um að ekki verði leng- ur hægt að stefna einstaklingi vegna úrskurðar kærunefnd- arinnar heldur þarf að fara í mál gegn kærunefndinni til að reyna að fá úrskurði hennar hnekkt. Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins er meðal þeirra sem hafa fordæmt ákvörðun Lilju um málssókn og sagði í ályktun sem félagið sendi frá sér: „Fyrrgreind málshöfðun getur haft það í för með sér að umsækjendur veigri sér við að sækja lögvarinn rétt sinn. Auk þess að setja fé- lagsmanninn í fordæmalausa stöðu gagnvart ráðherra er hætt við að stefnan muni fæla hæfa umsækjendur frá því að sækja um störf hjá ríkinu.“ Guðfræðin þýðingarmikil Lilja hefur gefið út að hún hafi ekki viljað víkja frá mati hæfnisnefndarinnar við ákvörðun um skipan ráðu- neytisstjóra. Í dómi héraðs- dóms segir enn fremur í kafla um málsástæður og lagarök stefnanda, það er Lilju eða ís- lenska ríkisins: „Eðli málsins samkvæmt hafi ráðherra farið að ráðleggingum nefndarinn- ar og gott betur, enda hafi hún til viðbótar lagt sjálfstætt og rökstutt mat á þá fjóra ein- staklinga sem metnir voru hæfastir af nefndinni.“ Þá er því einnig haldið fram að kærunefndin geri lítið úr guðfræðimenntun Páls, en hann er með BA-gráðu í guð- fræði. „… en hér verði að hafa í huga að um er að ræða ráðu- neyti bæði mennta- og menn- ingarmála. Ráðuneytið fari því m.a. með mál er varða verndun menningararfs þjóð- arinnar, varðveislu menning- arminja, safnamál, listir og menningu. Undirstöðuþekking í guðfræði ætti því að koma sér vel í því sambandi enda standi þjóðin óumdeilanlega á menningarlegum og sögu- legum grunni kristinnar trúar og hafa verði hugfast að hin evangelíska lúterska kirkja sé þjóðkirkja hér á landi … Þá læri guðfræðinemar við Háskóla Íslands ýmislegt sem nýtist í stjórnunarstarfi og megi í því sambandi nefna sálgæslu, en lokaritgerð Páls hafi verið á því sviði. Í grunninn snúist sálgæslu- fræðin um áhrif áfalla á einstaklinga, hvernig þeir bregðist við í áföllum og hvernig best sé að styðja þá, án tillits til trúarafstöðu eða lífsskoðunar. Guðfræði sé því þýðingarmikið grunn- nám sem nýtist í starfi ráðu- neytisstjóra og sé ekkert sem bendi til þess að grunn- nám í lögfræði sé betra í því starfi …“ en grunnnám Haf- dísar Helgu var í lögfræði. Í auglýsingu um starfið var þó aðeins fjallað sérstaklega um kröfur þegar kemur að emb- ættis- eða meistaranámi. Ríkið greiðir kostnaðinn Í dómsorði héraðsdóms sem féll föstudaginn 5. mars segir: „Hafnað er kröfu stefnanda, íslenska ríkisins, um að úr- skurður kærunefndar jafn- réttismála í máli nr. 6/2020 frá 27. maí 2020 verði felldur úr gildi. Málskostnaður stefndu, Hafdísar Helgu Ólafsdóttur, þar með talin málflutnings- þóknun lögmanns hennar, Ás- laugar Árnadóttur, 4.500.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.“ Dómnum hefur Lilja ákveð- ið að áfrýja til Landsréttar. n Lilja Dögg Alfreðsdóttir stendur í málarekstri gegn konu sem sótti um starf ráðu- neytisstjóra í mennta- og menningar- mála ráðu- neytinu. MYND/ANTON BRINK 433.IS ÞRIÐJUDAGA KL. 21.30 Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, fer yfir það helsta í fótboltaheiminum. Hann fær til sín áhugaverða viðmælendur og helstu sparksérfræðinga landsins sem gera upp mál málanna. Þátturinn er sýndur samtímis á Hringbraut og 433.is kl. 21.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.