Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 18
18 EYJAN N eyðarástand er í borg-inni, götur fylltust á örskömmum tíma í morgun og einstaklingar að missa stjórn á sér vegna álagsins. Verulegar truflanir eru á raforku, hús í tilteknum hverfum eru að kólna, og farið er að örla á örvæntingu meðal borgarbúa. Kjaftæðið sem kemur frá hinum og þessum útvarps- og samfélagsmiðlum ruglar almenning, og útsend- ingar eru slitróttar og furðu- legar. Símakerfið er að hruni komið og tilviljun ræður hvort samband náist auk þess sem netið er hægvirkt.“ Þessi texti er ekki úr skáld- sögu eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur heldur tekinn upp úr raunhæfu verkefni sem lagt var fyrir nemendur tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík fyrir fáeinum misserum. Þar var gert ráð fyrir að eldgos væri hafið í Henglinum – í aðeins 20 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík. Verkefnið var hluti af svokölluðum Hamfara- dögum þar sem nemendum í ýmsum fögum er kennt að vinna í samstarfi að gríðar- stórum viðfangsefnum. Áður hafði verið tekin fyrir sem skólaverkefni útbreiðsla sjúk- dóms, sem krefðist þess að landið yrði í sóttkví – en ekki svo löngu síðar var slíkt við- fangsefni orðið heldur betur raunverulegt … Gos í námunda við Reykjavík Í verkefni nemendanna höfðu miklar umferðarteppur myndast um alla borg. Gosinu fylgdi fín aska eða ryk sem smeygði sér alls staðar. Íbúar á Reykjavíkursvæðinu fyndu margir fyrir öndunarerfið- leikum. Verulegar truflanir væru á raforku, hús í tiltekn- um hverfum farin að kólna og meðal borgarbúa örlaði á ör- væntingu. Þá væri símakerfið að hruni komið og tilviljun réði því hvort samband næðist auk þess sem netið væri hæg- virkt. Þetta skólaverkefni er eðli- lega orðið miklu raunveru- legra nú, í ljósi jarðskjálfta- hrinunnar á Reykjanesskaga og þess gosóróa sem þar hef- ur mælst. Talsverð eldsum- brot hafa orðið á skaganum á sögulegum tíma, þar á meðal í næsta nágrenni höfuðborg- arsvæðisins. Má þar nefna Svínahraun (eða Kristnitöku- hraun) sem rann um árið 1000, Hellnahraun eða Hval- eyrarhraun í Hafnarfirði frá því um árið 950 og Kapellu- hraun sem er yngst, eða frá 13. öld. Fræðimenn telja ekki ósennilegt að við blasi við- varandi jarðskjálfta- og eld- virkni á svæðinu næstu ár og áratugi. Kristján Már Unnarsson, hamfarafréttamaður Stöðvar 2, ræddi við Harald Sigurðs- son eldfjallafræðing fyrir sex árum þar sem Krýsuvíkureld- stöðina bar á góma. Haraldur sagði eldgos þar geta leitt til goss í jaðri Reykjavíkur og hvatti hann til þess að gert yrði betra áhættumat fyrir Reykjavíkursvæðið. Sprungusvæðið við Rauðavatn Mál þessu tengd hafa líklega aldrei orðið jafnpólitísk og í aðdraganda borgarstjórnar- kosninganna 1982. Vinstri- meirihlutinn í borgarstjórn áformaði þá íbúðabyggð við Rauðavatn á þekktu sprungu- svæði. Davíð Oddsson, oddviti minnihluta sjálfstæðismanna, komst svo að orði um það mál í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í apríl 1981: „Ennfremur hefur verið á það bent af færustu jarðvísinda- mönnum að Rauðavatn sé á miklu sprungusvæði sem sé að verulegu leyti ókannað og óathugað. Jarðvísindamenn hafa talið það óðs manns æði að gera ráð fyrir þessum svæðum sem næstu bygginga- svæðum í borginni, áður en vísindalegar athuganir á því hafa farið fram.“ Hitamál í borgar­ stjórnarkosningum Þjóðviljinn, málgagn Alþýðu- bandalagsins, var á öndverð- um meiði og benti á að sjálf- stæðismenn hefðu áður byggt hverfi á sams konar sprungu- svæðum í Breiðholtinu. Blaðið ræddi við Halldór Torfason jarðfræðing sem rannsakað hafði svæðið. Hann taldi hús- um á sprungusvæðinu engu meiri hætta búin en bygging- um á sprungulausum svæðum, ef menn gættu þess að sneiða hjá sjálfum jarðsprungunum þegar byggt væri. Hart var deilt um fyrirhug- aða byggð á sprungusvæðinu í aðdraganda kosninganna og án efa átti þessi einarða and- staða sjálfstæðismanna gegn byggð þar, sinn þátt í því að Sjálfstæðisflokkurinn endur- heimti meirihlutann í borgar- stjórn og Davíð Oddsson varð borgarstjóri. Eldgos í Árbæjarhverfi Sjálfstæðismenn lögðu áform um byggð á sprungusvæðinu vitaskuld til hliðar eftir kosn- ingarnar 1982, en svo fór þó löngu síðar, eftir að R-listinn var kominn til valda, að Norð- lingaholtshverfi var byggt á sprungusvæðinu og raunar liggur ein sprunga í gegnum Árbæjarhverfi. Haraldur Sig- urðsson eldfjallafræðingur telur þessar sprungur senni- lega tengjast Krýsuvíkur- kerfinu og að ekki megi úti- loka eldgos í Árbæjarhverfi. Þess má geta að stað- setningu Árbæjarlaugar var á sínum tíma breytt eftir að sprunga kom í ljós og þá hefur þurft að færa til hús í Norðlingaholti sem teiknuð höfðu verið ofan á misgengis- sprungum. Holræsaskurður var þó lagður eftir einni sprungunni og yfir þær liggja götur. Sprungurnar allar á sínum stað Um það leyti sem deilurnar um byggðina á sprungusvæð- inu stóðu sem hæst mátti lesa þetta í forystugrein Morgun- blaðsins: „Með Rauðavatns- hugmyndunum er verið að stefna framtíð borgarinnar í óefni um langa hríð.“ En hvað sem hástemmdum yfirlýsing- um af þessu tagi leið þá fór ekki einasta svo að byggt yrði íbúðahverfi á sprungusvæð- inu heldur reisti Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, þar stórhýsi undir skrifstofur sínar og prentsmiðju. Jón Magnússon lögmaður spurði í aðsendri grein í Fréttablaðinu þegar verið var að reisa nýju Morgunblaðshöllina hvað hefði breyst – sprungurnar væru allar á sínum stað: „Var e.t.v. alltaf í lagi að byggja við Rauðavatn þá eins og nú? Var þetta upphlaup Davíðs gegn Rauðavatnssvæðinu bara ómerkilegur kosningaáróður sem virkaði vel en var algjör- lega innihaldslaus?“ Þeirri spurningu verður ekki svarað hér, en svo fór að sjálfur Davíð varð ritstjóri Morgunblaðsins og hefur í á annan áratug setið á skrifstofu á hinu alræmda sprungusvæði við Rauðavatn. n Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is SKOÐANAPISTILL TALIÐ ÓÐS MANNS ÆÐI AÐ BYGGJA Á SPRUNGUSVÆÐI Engu að síður var reist fjölmennt íbúðahverfi við Rauðavatn. Sprungu- svæði hitamál í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 1982. Jarðskjálfta- virknin á Reykjanesskaga nú gerir hættuna raunverulegri í hugum fólks. 12. MARS 2021 DV Eldgos gæti verið í aðsigi á Reykjanesskaga. MYND/ANTON BRINK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.