Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Síða 26
Staðsetning: Laugavegur 22 Týpan: Þeir sem elska að dansa, hinsegin fólk og allir sem eru almennt hýrir í lífinu. Staðsetning: Austurstræti 12a Týpan: Táningar með fölsuð skilríki, eldri tímaskekkjur og túristar. Staðsetning: Klapparstígur 27 Týpan: Fólk sem kann meira en tíu aukastafi pí, tölvunarfræðingar og full- orðið fólk sem klæðist búningum á hrekkjavöku. Staðsetning: Bankastræti 7a Týpan: Marineraðar skinkur, spægipylsur og lögfróðir. Staðsetning: Ingólfsstræti 2a Týpan: Huppar, rauðvínsbeljur og fólk sem fer í fótsnyrtingu. 26 FÓKUS KIKI QUEER BAR Þröngt mega sáttir sitja. Sá málsháttur ætti að vera slagorðið á Kiki en á góðu kvöldi (þegar ekki er CO- VID) þurfa gestir helst að standa á öðrum fæti til að komast fyrir. Kiki er hinseginbar en þangað eru þó allir velkomnir. Þangað fer fólk til að stíga trylltan dans við hressa tónlist á borð við Eurovision-slagara, diskó, gamla og nýja poppslagara og að sjálfsögðu Pál Óskar. ENGLISH PUB Íþróttaknæpa á daginn og sveittir trúbadorar á kvöldin. Hér kennir ýmissa grasa. Mikið af mönnum í maka- leit og slegist um sætin. Aðrir standa og bíða færis. Algengt að fólk staldri stutt við og besta stemmingin er á sumrin þegar hægt er að sitja úti. Þeir sem eru fyrir að taka áhættu geta tekið snúning á bjórhjólinu og mögulega orðið vinsælasti aðilinn á staðnum. IRISHMAN PUB Staðurinn þar sem sem tölvunördar og Dungeons&Dragons vinahópar sletta úr klaufunum. Þarna eru yfirleitt stærri hópar, fjórir eða fleiri, í þeirri trú að þarna sé gott að eiga samræður. Tónlistin er þó nokkuð há, stundum trúbadorar og því fara flestar samræður fram með öskrum sem gera það að verkum að kliðurinn og lætin eru nokkuð mikil. SÓLON B5 var aðalstaðurinn fyrir skinkur, spægipylsur, lögmenn og laganema. Þar mátti einnig finna hálfstálpaða unglinga í svimandi hormónavímu. Rétti staðurinn fyrir hözzlið. Nú hefur B5 því miður skellt í lás og því spurning hvaða staður mun taka við keflinu. Helst er talið að Sólon verði arftakinn. Nánast sama staðsetning og sögulega hefur Sólon einmitt tekið á móti þeim sem gefast upp á röðinni fyrir utan B5 á köldum vetrarkvöldum. PETERSEN SVÍTAN Ef þú vilt vera fínn á því, en ert því miður ekki með lykilorðið eða á listanum hjá Kjarval, þá er gott að skella sér á Petersen svítuna. Þar er besta útisvæðið í borginni með besta útsýnið. Ekki örvænta þó að það sé svalt úti því nóg er af teppum. Heitustu skemmtistaðirnir í miðbænum 12. MARS 2021 DV Það er oft erfitt að henda reiður á því hvaða skemmtistaðir og knæpur standa manni til boða í miðborginni enda eru eigendaskipti og nafnabreyt- ingar tíðar og allt getur breyst á örfáum mánuðum. Nú styttist í COVID-lok og því um að gera að rifja upp hvaða staðir standa til boða í miðborginni okkar. Einhvern tímann verður COVID búið og við getum aftur fengið okkur litríka kokteila. MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.