Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Side 36
Fylltar paprikur 4-6 paprikur (alls konar litir) Nautakraftur 2 dósir af hökkuðum tómötum Nýrnabaunir í chilisósu Taco-krydd Óreganó Salt og pipar 5% nautahakk fra B.jensen Set í crock pot með nautakrafti, dós af hökkuðum tómötum, óregano, salti og pipar. Leyfi þessu að eldast á meðan ég er i vinnunni. Þegar ég kem heim bæti ég við ann- arri dós af tómötum, nýrnabaunum í chilisósu og smá taco-kryddi. Elda þetta aðeins lengur í potti. Set paprikurnar í eldfast form og fylli þær með kjötblöndunni. Set smá ost yfir og Olio Nitti ólífu- olíu. Inn í ofn í 15-20 mínútur á 180-200 gráðum. Ber þetta fram með hrísgrjónum, salati og sýrðum rjóma. Matseðill Kristínar Sifjar Hádegismatur Lífskornabolla með kalkúna­ skinku og osti. Weetabix með laktósafrírri mjólk. Millimál Epli eða banani. Finn Crisp með kotasælu. Kvöldmatur Kjúklingalæri, ofnbakaðir tóm­ atar, hrísgrjón. brokkólí eða það grænmeti sem er til. Borða líka oft fisk eða geggjaða crock pot rétti, eins og chili con carne. Kvöldsnarl Fæ mér stundum smá skyr ef ég þarf að klára macros. Harðfisk eða það sem vantar upp á. 36 MATUR Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Æfir af kappi og þá skiptir mataræðið öllu Kristín Sif Björgvinsdóttir, afreksíþrótta- og útvarpskona, segir matar- æðið skipta öllu máli þegar kemur að því að æfa af kappi og ná árangri. Venjulegur dagur hjá Kristínu Sif er annasamur en hvað ætli hún borði? Þ að er skrýtið að hugsa til þess að ég sé með jafn marga tíma í sól- arhringnum og Kristín Sif Björgvinsdóttir. Hún hressir landsmenn með jákvæðu og skemmtilegu lífsviðhorfi á útvarpsstöðinni K100, hún æfir CrossFit og hnefaleika af kappi og er auk þess tveggja barna móðir. Dagurinn byrjar snemma hjá Kristínu. „Kvöldið áður geri ég allt dótið mitt fyrir ræktina og daginn tilbúið. Ég byrja síðan daginn snemma og drekk ITS- blönduna, sem er eplaedik og engifer. Tek vítamínin mín sem eru öll náttúruleg frá New Nordic ásamt D-vítamíni og Pure Arctic lýsi. Drekk stórt glas af vatni og legg síðan af stað í daginn,“ segir Kristín. Nóg að gera „Venjulegur dagur byrjar á K100 í morgunþættinum Ís- land vaknar þar sem ég er einn af þremur þáttastjórn- endum. Þar er hlegið saman í nokkra tíma. Eftir það held ég áfram að vinna sem einn af næringarþjálfurum ITS Transformation sem hjálpar fólki með mataræði og svo miklu meira en það. Þegar ég er búin að því skelli ég mér á æfingu, ég æfi í Cross- Fit Reykjavík og fylgi pró- grammi frá styrktarþjálfar- anum mínum honum Unnari Helga – Unleash Training og suma daga fer ég í einkatíma hjá hnefaleikaþjálfara. Ég æfi hnefaleika hjá Mjölni og er í keppnisliði Hnefaleikafélags Reykjavíkur. Inn á milli er ég að sækja og skutla börnunum mínum og sinna þeim og reyni að vera alltaf heima til að gefa þeim að borða og sinna þeim vel þegar þau eru ekki í skól- anum eða að stunda íþróttir.“ Æfir stundum á fastandi maga Aðspurð hvað henni þykir best að borða fyrir æfingu segir Kristín að hún borði yfirleitt einum til tveimur tímum fyrir æfingu. „Ég fæ mér oft ristaða lífs- kornabollu með kalkúna skinku og osti og skyr. Ég fæ mér líka stundum ávöxt eða það sem mig langar í þann dag. Æfi líka stundum á fastandi maga. Fasta mjög oft til 12-13 og er nýfarin að taka inn á milli sólarhringsföstu,“ segir hún. Mataræðið er allt Kristín þekkir það af eigin raun hvað mataræðið skiptir miklu máli þegar kemur að því að æfa afreksíþróttir og keppa. „Mataræðið er allt. Það að æfa mikið krefst mikillar orku og þá er eins gott að borða nóg af gæða fæðu í réttum hlutföllum. Ég finn það mjög vel eftir að ég byrjaði að borða eftir mac- rosmataræðinu að blóðsykur- inn er í mun betra jafnvægi, bætingarnar svakalegar og orkan hundrað prósent betri til að æfa eins mikið og ég geri,“ segir hún. Kristín fylgir macros-mataræðinu hjá nær- ingarþjálfaranum Inga Torfa hjá ITS Transformations, þar sem hún starfar einnig sem næringarþjálfari. Aðspurð hvernig hún fari að því að halda skipulagi og aga segir Kristín að það sem hún er að gera sé svo gaman að það sé ekki svo erfitt. „Ég passa að skoða gildin mín reglulega og bera saman hvað ég er að gera við þau. Er það sem ég er að gera að færa mig nær markmiðum mínum?“ segir hún og bætir við: „En það koma dagar þar sem ég er þreytt og langar ekkert á æfingu og bara að fá mér ís, en þá er extra mikil- vægt að mæta á æfingu og velja eitthvað sem nærir mig vel í matinn.“ n Kristín Sif passar sig að borða nóg svo orkan sé góð. MYND/ANTON BRINK MYND/BETTY CROCKER 12. MARS 2021 DV Ég passa að skoða gildin mín reglulega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.