Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Síða 37
Una í eldhúsinu Hægelduð nautalund með ofnbökuðu rótargrænmeti og sveppasósu Hægelduð nautalund Fyrir 4-5 manns 1 kg nautalund 3-4 msk. smjör 2 msk. ólífuolía 1 msk. rósmarín, ferskt Gróft salt og svartur pipar Gott að vefja lundinni inn í plast- filmu í smá tíma ef tími gefst. Byrjið á að útbúa marineringu, setjið saman í skál pipar, rósmarín og ólífuolíu og blandið vel saman. Smyrjið lundina vel upp úr mar- ineringunni og pakkið lundinni inn í plastfilmu, gott að vefja lundinni inn í þrefalt plast og látið bíða í um 4-5 klukkustundir. Fjarlægið plastfilmuna og steikið lundina á pönnu í um það bil 30-40 sekúndur hverja hlið, lokið kjötinu vel áður en það er sett í ofninn. Bakið lundina í ofni við 170 gráðu hita, mér finnst mikilvægt að hafa kjöthitamæli til að mæla kjarnhita lundarinnar en hann á að ná um 53-54 gráðum. Þá er lundin tekin út úr ofninum og smá salti stráð yfir hana og ég set gjarnan smá smjörklípu yfir hana líka. Leyfið lundinni að jafna sig í um 10-15 mínútur áður en hún er borin fram. Verði ykkur að góðu. Sveppasósa 1 stk. villisveppaostur 100 g portobelloveppir (má sleppa) ½ grænmetisteningur 250 g matreiðslurjómi Salt og pipar að vild Byrjið á að skera niður sveppina. Bræðið saman í potti villisveppaostinn ásamt rjóm- anum, passið að hafa vægan hita og hræra vel í blöndunni allan tímann svo að hún brenni ekki við. Bætið sveppunum saman við ásamt grænmetis- teningi. Saltið og piprið að vild. Leyfið sósunni að hitna vel og malla í góða stund, svo að hún verði bragðmikil og sveppirnir mjúkir og góðir. Steikt rótargrænmeti Gulrætur Rauðrófur Rófur Kartöflur Hvítlaukssmjör Salt og pipar Ferskt timían Blandið saman ykkar uppáhalds grænmeti í eldfast form, ég setti hér gulrætur, rauðrófur, rófur og kart- öflur og skar allt saman langsum, velti þessu upp úr hvítlaukssmjöri og kryddaði með salti, pipar og fersku timían. Bakað í ofni við 180 gráður í um 40 mínútur. Þegar grænmetið á um 10 mínútur eftir er extra gott að taka það út úr ofninum og strá smá smjörklípu yfir og setja aftur inn, það verður einstaklega bragðgott og mjúkt í sér. Það er fátt sem er meiri helgarmat- ur en alvöru hægelduð nautalund með gómsætri sveppasósu. Með þessu leggur Una til að hafa steikt rótargrænmeti. Fullkomin máltíð! MYNDIR/AÐSENDAR MATUR 37DV 12. MARS 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.