Börn og menning - 2015, Blaðsíða 28
Börn og menning28
Erla Elíasdóttir Völudóttir
Stúlkan sem opnaði öskjuna
Stúlkan með náðargjafirnar
Mike Carey
Þýð. Magnea J. Matthíasdóttir
Björt bókaútgáfa
2015
Fyrr á þessu ári kom framtíðarspennu-
sagan Stúlkan með náðargjafirnar (The Girl
with All the Gifts) út hjá bókaútgáfunni
Björt í þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur.
Höfundurinn er hinn breski Mike Carey
en undanfarna áratugi hefur hann skrifað
firnin öll af teiknimyndasögum, m.a. fyrir
útgáfurisann Marvel, auk skáldsagna, ljóða
og smásagna.
Stúlkan með náðargjafirnar er byggð á
smásögu Careys frá árinu 2012, „Iphigenia
from Aulis“, en hún birtist í safnriti
hryllingssagna sem eiga það sameiginlegt
að sögusviðið er skólastofa. Ífígenía í Ális
er persóna úr grísku goðsögunum og þótt
nafn hennar sé ekki nefnt nema einu sinni í
framhjáhlaupi í Stúlkunni með náðargjafirnar
geymir bókin ýmsar aðrar vísanir í gríska
goðafræði.
Ætur, hermenn og börn
Sögusviðið er Bretland dystópískrar framtíðar,
skammt frá Lundúnum en í að minnsta
kosti 20 ára fjarlægð frá samtíma okkar.
Siðmenningin eins og við þekkjum hana hefur
hrunið í kjölfar þess að jarðarbúar fóru að
sýkjast unnvörpum af illskeyttum sníkjusvepp
sem gerir fólk að „ætum“. Æturnar eru það
sem kalla má lifandi dauðar; sveppurinn
hefur drepið heilastarfsemi þeirra og tekið
stjórnina svo að líkaminn heldur virkni
sinni og ráfar stefnulaust um, hungraður í
mannshold. Það mannfólk sem eftir er heldur
til í herstöðvum og öðrum rammbyggðum,
afgirtum byggingum, að frátöldu gengi
útlaga sem kallaðir eru junkarar og hafast
við utan girðingarinnar, meðal ætanna.
Aðalpersóna bókarinnar, stúlkan með
náðargjafirnar, heitir Melanie. Henni finnst
nafnið ekki hæfa sér sérlega vel – það merkir
„svarta stúlkan“, en hún er afar ljós á hörund
– og dreymir um að heita eftir Pandóru úr
grísku goðafræðinni, sem hún hefur lært um
í skólanum.
Melanie er skarpgreind og athugul en
hefur lítið séð af umheiminum. Hún býr í
litlum klefa í stórri byggingu þar sem hún
gengur líka í skóla. Vopnaðir hermenn sækja
hana á hverjum morgni, binda hana niður
í hjólastól, aka henni eftir ganginum að
kennslustofunni og skila henni aftur sömu