Börn og menning - 2019, Síða 4
Óskabarn, óskadís,
óskasteinn og óskasnillingur
Bækurnar um Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur
Silja Aðalsteinsdóttir
Það bar svo við í haust sem leið að
á bókamarkaði barnanna birtist
gömul vinkona sem margir höfðu
saknað sárt: stuðboltinn Fíasól frá
Grænalundi í Grasabæ. Fyrsta bók-
in um hana, Fíasól í fínum málum,
kom út árið 2004 og á næstu árum
komu þær hver af annarri, Fíasól
í hosiló (2, 2005), Fíasól á flandri
(3, 2006) og Fíasól er flottust (4, 2008). Svo liðu tíu ár
án Fíusólar en fimmta bókin blæs á svoleiðis smámuni,
enda heitir hún Fíasól gefst aldrei upp (2018). Þegar
bókaflokkurinn byrjaði var Fíasól sjö ára, hún var orðin
átta ára í þriðju bók og níu ára í fjórðu bók en þegar
hún snýr aftur núna hefur hún bara elst um eitt ár, hún
er orðin tíu ára „og kraftmeiri en nokkru sinni fyrr“,
eins og segir aftan á kápu.1
Í bókunum eru smásögur úr lífi Fíusólar og lítt hirt
um samhengi í tíma, árstíðum og slíkum smáatriðum.
Þó má merkja að meiri heildarbragur er á síðustu bók-
unum en þeim fyrstu. Umfjöllunarefnin eru fjölbreyti-
leg eins og sjá má á kaflafyrirsögnum, til dæmis „Fíasól
og ferlegi ruslahaugurinn“ (það er einkaherbergi sögu-
hetju, 1, bls. 81), „Fíasól og fúli strætókallinn“ (þar
segir frá ferðalagi söguhetju í strætisvagni, 2, bls. 73),
„Fíasól og kyssistrákarnir“ (þar segir
frá baráttu söguhetju við strákana í
skólanum sem stríða stelpunum með
því að kyssa þær, 3, bls. 64 ), „Fíasól
og stóra sundslysaferðin“ (sem seg-
ir einmitt frá henni, 4, bls. 14) og
„Fíasól og dularfulla reikningspróf-
ið“ (þar sem söguhetja gleymir að
skila prófúrlausninni sem hún hefur
þó unnið samviskusamlega, 5, bls. 132). Allar bækurnar
fimm hefjast á ónefndum kafla sem kynnir söguhetju
og hennar nánasta sambýlis- og samstarfsfólk til sögu
þannig að allir lesendur, nýir og gamlir, byrji á sama
stað. Þessar kynningar tengjast iðulega titli bókarinnar,
til dæmis hefst Fíasól í hosiló á þessum texta:
Fíasól er sjö ára gömul gleðisprengja sem býr í
hræðilega herberginu í Grænalundi í Grasabæ. Þar
á hún heima með mömmu, pabba, Pippu systur
sem er ellefu og Biddu systur sem er unglingur.
Þar búa líka hundlötu kjölturakkarnir Hansína og
Jensína. Þær eru svo latar að þær nenna varla að
éta matinn sinn. Þær nenna alls ekki út í rigningu
og drattast ekki á fætur fyrr en rétt fyrir hádegi.
(bls. 6)
Fíasól er sjö ára
gömul gleðisprengja
sem býr í hræðilega
herberginu í Græna-
lundi í Grasabæ.
1 Eina bók um Fíusól vantar í þessa upptalningu, Fíasól og litla ljónaránið (2010) en hún er myndabók, ætluð yngri börnum. Athugið að hér á eftir eru til
hægðarauka iðulega notuð einföld númer í stað titlanna á bókunum.