Börn og menning - 2019, Blaðsíða 5

Börn og menning - 2019, Blaðsíða 5
5Óskabarn, óskadís, óskasteinn og óskasnillingur Í Fíasól á flandri er söguhetjan auðvitað „ferðalangur“ í kynningu, í Fíasól er flottust er hún æðislegur hug- myndaflugmaður og í nýju bókinni er hún kynnt sem reddari og „björgunarforingi í sinni eigin hjálparsveit“. Þar að auki er fyrir framan kynningarkaflann ævinlega stutt tilvitnun í einhvern orðheppinn, oftast barn. Til dæmis er þessi setning fremst í nýju bókinni: „Hey, amma, svona er bara lífið“ (Ólíver Helgi, sjö og hálfs árs) Bækurnar eru því byggðar upp af vandvirkni og allt gert til að laða unga lesendur að þeim. Útlitið er líka úthugs- að. Letur er þægilega stórt og skýrt og allar bækurnar eru ríkulega myndskreyttar af Halldóri Baldurssyni. Á myndunum má sjá að Fíasól er með svartan lubba sem kemur stundum við sögu, einkum þegar aðstandendur vilja greiða stelpunni en hún vill frekar safna í hreiður handa þröstunum! Svarta hárið hefur hún frá pabba sín- um, eins og einnig má sjá á myndunum, en mamma og eldri systurnar eru ljósar yfirlitum. Myndir Halldórs eru óhátíðlegar, hraðar og fyndnar eins og texti bókanna. Og sérstaka ánægju hefur roskinn lesandi af myndinni í dagblaðinu sem fúli strætóstjórinn er að lesa, undir henni má lesa textann „Davíð hækkar vextina“ og á xxxxx myndinni er gamalkunnug teikning af þáverandi for- sætisráðherra (2, bls. 83). Gamansamar þroskasögur Aðalefni bókaflokksins sem heild er að skapa persónu Fíusólar og lýsa sjálfstæðisbaráttu hennar og veitir ekki af fimm bindum til að skila því verkefni. Fíasól er dá- samlegt barn í bók, hugmyndarík svo af ber, algerlega ófeimin, fjörmikil og gríðarlega ráðrík. Að mati ömmu er hún „óskabarn, óskadís, óskasteinn og óskasnilling- ur“ (3, bls. 24) og ennþá nákvæmari upptalningu á helstu eiginleikum hennar fáum við í Fíasól er flottust (bls. 89–90), það er Stúfur jólasveinn sem skrifar (og er ekki vel að sér í stafsetningu, eins og Fíasól er fljót að benda á): Góþ, blíðþ, hjalpsom, dugle, findin, akvedin, klar, listfeng, hugmyndaríg, ákveðin, sniðþug, um- hyggjusom, sgemmmdileg o vodalea o svaggalea ákvedin. Líklega yrði maður fljótlega sjúkrahúsmatur ef mað- ur byggi með henni! Hún er eftirlæti pabba síns en hann vinnur langa vinnudaga og hefur ekki eins mik- ið af henni að segja og mamma sem vinnur heima.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.