Börn og menning - 2019, Side 9
9Óskabarn, óskadís, óskasteinn og óskasnillingur
Hraður stíll
Stílsnilld höfundar kemur víða fram. Til dæmis hef-
ur hún skemmt sér vel við að skíra upp staði á höf-
uðborgarsvæðinu og víðar við sköpun heims Fíusólar.
Grasabær er auðvitað dulnefni Garðabæjar, Kópavogur
verður Klettavogur, Kringlan Hringlan og svo framveg-
is. Stíllinn á frásögnunum er litríkur og þjáll, rennur
vel, eins og sjá má á dæmunum hér á undan. Meginein-
kenni á honum er hraði sem bæði gerir sögurnar fyndn-
ar og heldur lesendum við efnið. Aldrei er rými eytt í
óþarfa eða efnið tuggið ofan í lesandann. Gott dæmi
um svimandi hraða er samtal Fíusólar við Glóu frænku
í Fíasól á flandri (bls. 73–76) þegar stelpan lýgur Glóu
fulla (og lesandann um leið af því að við fáum ekki að
vita hið rétta fyrr en með Glóu), segir að mamma sé í
Belgíu og pabbi á Bolungarvík, Bidda í bíó og Pippa hjá
vinkonu sinni og sjálf sé hún að horfa á bannaða mynd
í sjónvarpinu! Aumingja Glóa verður alveg örvingluð:
„Vertu kyrr, farðu hvergi og slökktu á sjónvarpinu. Ég
verð að tala við hana ömmu þína og svo komum við í
hvelli.“ Mamma er auðvitað lengi að róa Glóu og notar
tækifærið á eftir til að messa dálítið yfir Fíusól um þann
ljóta leik að plata gott fólk.
Þó að sögurnar séu fullar af hollum boðskap er hann
aldrei uppáþrengjandi. Það skiptir máli hvað barnið
hefur sterka rödd og verður málsmetandi. Svo skipt-
ir auðvitað líka máli hvað sögurnar eru skemmtilegar
– sykurskeiðin reynist alltaf vel til að koma meðalinu
niður.
Höfundurinn
Fíasól er sköpunarverk Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
sem hefur verið meðal helstu barnabókahöfunda okkar
síðan hún kom fyrst fram fyrir rúmum tuttugu árum
með aðra dásamlega söguhetju, Elsku bestu Binnu mína
(1997). Bækur hennar eru orðnar ríflega tveir tugir,
þeirra á meðal eru verðlaunaðar súperbækur eins og
hin áhrifamikla Draugaslóð (2007) sem hlaut Barna-
og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins. Þrjár af
bókunum um Fíusól fengu á sínum tíma Bókaverðlaun
barnanna og sú nýjasta fékk Fjöruverðlaunin. Þau hlaut
líka næsta bók Kristínar Helgu á undan henni, Vertu
ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels (2017), sem þar að auki
var tilnefnd til Barna- og unglingabókaverðlauna Norð-
urlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunanna eins
og nýja bókin, Fíasól gefst aldrei upp. Á vef Bókmennta-
borgar lýsir Kristín Helga verkefni sínu með þessum
orðum:
Börn eru miskunnarlaus, kröfuharður, síkvikur
en jafnframt einlægur og þyrstur lesendahópur.
Fullorðnir láta sig til dæmis hafa það að sitja undir
lestri þar til yfir lýkur, hvort sem þeim líkar betur
eða verr. Þeir byrja ekki að iða í sæti, bora í nefið og
klípa næsta mann við hliðina ef sagan missir marks
eða höfðar ekki til þeirra. Þess vegna finnst mér
mikil áskorun fólgin í því að skrifa fyrir börn.
Þeirri áskorun mætir hún ótrauð og hefur sannarlega
haft erindi sem erfiði.
Höfundur er ritstjóri og rithöfundur.