Börn og menning - 2019, Qupperneq 10

Börn og menning - 2019, Qupperneq 10
Lestrarhvetjandi verkefni í Hagaskóla Inga Mjöll Harðardóttir Lestur er afar mikilvægur þáttur í lífi fólks og er í raun ein mikilvægasta færnin í nútímasamfélagi. Varla líð- ur sá dagur að ekki þurfi að lesa texta, hvort sem um er að ræða fréttir, texta á sam- félagsmiðlum eða annað sem tengist daglegu lífi. Þá er ekki síður mikilvægt að geta lesið sér til ánægju og notið góðra bókmennta. Á undanförnum árum hefur mikið verið fjallað um minnkandi lesskilning íslenskra ungmenna og rann- sóknir hafa sýnt að verulega er þörf á að efla lesskilning á unglingastigi. Menn hafa áhyggjur af því að stór hóp- ur unglinga taki sér vart bók í hönd utan skólans og hafi enga ánægju af að lesa sér til afþreyingar. Þróunarverkefni tengd læsi Höfundur þessarar greinar hefur starfað sem íslensku- og sérkennari í Hagaskóla í rúma þrjá áratugi og hefur auk þess leitt þróunarverkefni um eflingu læsis meðal nemenda. Höfundur hefur ásamt samkennurum sín- um reynt að leita ýmissa leiða til þess að efla lesskilning nemenda sinna og hvetja þá til lestrar. Fyrsta þróunar- verkefnið sem tengist læsi í skólanum fór af stað árið 2009. Það var þverfaglegt þróunarverkefni um lestur og lesskilning þar sem nemendum voru kenndar aðferðir gagnvirks lestrar. Í gagnvirkum lestri tengir nemandinn efnið við fyrri þekkingu sína, beitir ályktunarfærni sinni, spyr sig spurninga og spáir fyrir um framhaldið. Frá því fyrsta þróunarverk- efnið fór af stað hefur mikil áhersla verið lögð á læsi í skól- anum og fjöldi nýrra verkefna litið dagsins ljós. Til að ná tilætluðum árangri teljum við mikilvægt að það sem gert er með nemendum sé bæði gagnlegt og skemmtilegt. Sem dæmi um verkefni má nefna að hefð hefur verið fyrir því í nokkur ár að nemendur í 10. bekk heimsæki leik- skólanemendur í hverfinu og lesi fyrir þá frumsamdar sögur. Unglingarnir semja þá sögur í litlum hópum, myndskreyta þær og lesa með leikrænum tilburðum fyrir leikskólabörnin. Oft hafa svo leikskólanemend- ur endurgoldið heimsóknirnar með því að koma og syngja með nemendum Hagaskóla. Almennt hafa nem- endur mikla ánægju af umræddu myndasöguverkefni. Þeir hafa ekki bara gaman af að semja sögurnar og myndskreyta þær heldur hafa þeir ómælda ánægju af að flytja þær fyrir leikskólabörnin sem undantekningalaust skemmta sér konunglega. Annað verkefni eru yndislestrarstundirnar sem um árabil hafa verið fastur liður í skólastarfinu. Þær eru þrisvar í viku og eru hluti af stundaskrá nemenda. Í lestrarstundunum lesa nemendur bækur að eigin vali sér til yndis og ánægju, 20 mínútur í senn. Þar sem nemendur ráða algjörlega sjálfir hvaða bækur þeir lesa í þessum stundum er bókakosturinn jafn fjölbreyttur og Unglingarnir semja þá sögur í litlum hópum, myndskreyta þær og lesa með leikrænum tilburðum fyrir leikskólabörnin.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.