Börn og menning - 2019, Qupperneq 31

Börn og menning - 2019, Qupperneq 31
Barnabækur skipta máli IBBY fréttir Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir Verkefni Íslandsdeildar IBBY-sam- takanna þennan veturinn hafa verið margvísleg að vanda. Blanda af föstum liðum og nýjungum. Markmiðið er alltaf að efla barna- bókmenntir og barnamenningu með umfjöllun, útgáfustarfsemi og viðurkenningum. Gerðubergsráðstefnan Árlega er haldin barnabókaráðstefna í Gerðubergi. Að ráðstefnunni standa ýmis félög sem koma á einhvern hátt að barna- og unglingabókum, þar á meðal IBBY- samtökin. Ráðstefnan var haldin 2. mars síðastliðinn og bar hún yfirskriftina „Þetta er bara barnabók“. Titillinn vísar í umræðu sem átti sér stað á Facebook þar sem fólk tókst á um gæði nýútkominnar barnabókar. Í þeirri umræðu féllu þessi orð: „Þetta er bara barna- bók.“ Lítilsvirðingin sem orðin lýsa gerði þá sem láta sig barnabókmenntir varða svo forviða og hugsi yfir stöðu barnabókarinnar í samfélaginu að efnið var nægt í heila ráðstefnu. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráð- herra byrjaði ráðstefnuna á ávarpi þar sem hún ræddi um um mikilvægi þess að börn hafi bækur til að lesa og útskýrði hvaða aðgerða hún hefur gripið til sem ráð- herra til að styðja við bókaútgáfu. Á eftir Lilju flutti rithöfundurinn Margrét Tryggva- dóttir erindi um hvaða aðgerðir hún telur að muni skila bestum árangri fyrir barnabækur í íslensku samfélagi. Talaði hún fyrir norsku leiðinni þar sem ríkið velur barnabækur út frá gæðum, kaupir þær og dreifir til bókasafna landsins. Þannig tryggir ríkið aðgengi barna að góðum bókum. Gagnrýndi Margrét að með nýfengnum styrkj- um til bókaútgefenda til útgáfu bóka á íslensku væri einungis ver- ið að ýta undir fjölda nýrra titla á íslensku. Í lögunum er ekkert sagt um gæði efnis eða tungumáls og ekkert um aðgengi barna að góðum bókum sem endurspegla uppruna þeirra og samtíma. Þá er ekki held- ur neitt sem hvetur íslenska höfunda til að framleiða slíkt efni þar sem staðan í núverandi styrkjakerfi er ekki góð. Tölur sýna að texta- og myndhöfundar barnabóka á Íslandi fá þegar á heildina er litið lítið fyrir sinn snúð. Katrín Lilja Jónsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, hélt erindi um bókabloggið. Að Lestrarklefanum standa konur sem hafa ástríðu fyrir bókum og þá ekki síst barnabókum en þær skipa stóran sess hjá Lestrarklefan- um. Í erindi sínu sagði Katrín frá því hvernig hún ákvað að fara að skrifa um barnabækur sem hún les bæði fyrir sjálfa sig og börnin sín. Hún hafði tekið eftir því að litla umfjöllun var að finna um barnabækur og með Lestrarklefanum vildi hún fylla upp í það tómarúm. Umfjallanirnar eru hugsaðar fyrir foreldra sem eru að leita að einhverju áhugaverðu til að lesa fyrir börnin sín og einnig áhugafólk um barnabókmenntir. Þá má bæta við að undirrituð hefur fylgst með Lestrarklefanum og er léttur, persónulegur og aðgengilegur textinn afar skemmtilegur og umfjallanir eru gagnlegar og góðar fyrir þá sem vilja kynna sér jafnt það nýjasta sem gull- mola íslenskra og þýddra barnabóka. Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, hóf erindi sitt á því að segja frá því hvernig Teikning: Bergrún Íris Sævarsdóttir.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.