Börn og menning - 2019, Page 32
Börn og menning32
hann hefur í gegnum starf sitt fengið að kynnast rjóm-
anum í norrænum barnabókum í gegnum Barna- og
unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Það
eru mikil forréttindi að fá að starfa á sviði barnabók-
mennta og fylgjast með straumum og stefnum á því
sviði og hvernig barnabækurnar endurspegla norrænt
nútímasamfélag.
Ragnheiður Gestsdóttir, rit- og myndhöfundur, end-
aði svo ráðstefnuna á kraftmiklu erindi um mikilvægi
góðs myndefnis í barnabókum. Í erindinu fjallaði hún
um hvernig við munum öll eftir myndum úr barna-
bókum æskunnar og þeim tilfinningum sem myndirnar
vöktu með okkur, við lærðum að nema tilfinningarnar
áður en við áttum orð yfir þær. Börn þurfa fjölbreytt
myndefni þar sem þau geta upplifað allan tilfinninga-
skalann, listrænar myndir sem ögra hugsuninni og
byggja upp myndrænan orðaforða. Í heimi nútíma-
barna þar sem tjáningin fer alltaf sífellt meira fram í
gegnum myndmál er enn mikilvægara en áður að bjóða
upp á fjölbreyttar myndir en ekki falla í þá gryfju að
fjöldaframleiða einsleitar myndir sem byggja allar á
sama alþjóðlega fegurðarstaðlinum. Íslenskar barna-
bækur þurfa að geta endurspeglað íslenskt samfélag,
menningu, andrúmsloft, sögu og allt það sem orðin ná
ekki yfir og við munum ekki finna í bókum frá öðrum
löndum. Íslensk barnabókaútgáfa er ekki mikil og því
mikilvægt að vandað sé vel til og að fyllt sé hugvitsam-
lega upp í heildarmyndina með vönduðu vali á þýddum
barnabókum. Því að myndlestur er líka lestur – og mynd-
ir skipta máli!
IBBY og Bókmenntaborgin gefa út vegg-
spjald fyrir bókasöfn
Í stjórn IBBY erum við ávallt að leita leiða til þess að
hvetja börn til lestrar. Á ferðum okkar um netheima
höfum við oft rekist á fallegar hugvekjur um mikilvægi
lestrar. Þessar hugvekjur eru ávallt góð áminning í heimi
þar sem alls konar áreiti annarra miðla fangar athyglina.
Þegar þær eru vel skrifaðar getur textinn sjálfur verið
hugarkonfektmoli sem kemur manni úr hversdagsleik-
anum stutta stund. Við fengum Bókmenntaborgina til
liðs við okkur að gera veggspjald, enda er hún ávallt
tilbúin að koma börnunum á hugarflug með Sleipni.
Það voru hæg heimatökin þegar stjórnarmenn IBBY
tóku höndum saman um textagerð og fengu svo Berg-
rúnu Írisi Sævarsdóttur í lið með sér. Hún myndgerði
textann þannig að hvert orð og stafirnir lifnuðu við
með skemmtilegum myndum. Veggspjöldunum verður
dreift á öll skólasöfn á landinu.
IBBY Nordic
Nú í byrjun árs bauðst IBBY á Íslandi að vera meðlim-
ur í nýstofnuðum samtökum, IBBY Nordic. Markmið
samtakanna er að efla norrænt samstarf og vera sam-
eiginleg rödd á alþjóðlegum vettvangi. Samtökin munu
ekki hafa eiginlega stjórn heldur eiga tveir fulltrúar frá
hverju landi að mæta á fundi sem haldnir verða árlega.
Næsti fundur verður í nóvember í Osló og fundurinn
2020 í Finnlandi. Á fundunum verður rætt um ný
leiðarljós alþjóðlegu IBBY-samtakanna, hvernig hægt
sé að skapa betri aðstæður þeirra sem búa til og miðla
barnabókum og hvernig megi styrkja norrænar barna-
bókmenntir frá hugmynd að bók og frá bók til lesanda.
Á fundinum verður einnig rætt hvernig IBBY-samtök-
in geti unnið að hagsmunagæslu norrænna barnabók-
mennta. Einnig á að ræða hvernig hægt sé að styrkja
gerð kennsluefnis og annarra hjálpargagna um norræn-
ar barna- og unglingabókmenntir. Þá munu samtök-
in deila greinum og fræðsluefni frá Norðurlöndunum
í sameiginlegu fréttabréfi og þannig stuðla að miðlun
þekkingar milli landanna. Það verður spennandi að
sjá hvert þetta samstarf leiðir okkur og vonumst við til
að geta eflt enn frekar norrænar barnabókmenntir og
miðlað þekkingu okkar á milli.
Að lokum
Nú fer sumarið að koma, sólin hækkar á lofti og börn-
in fá langþráð sumarfrí. Sumarið gefur börnunum
frelsi til að leita uppi ævintýri hvort sem það er úti
í náttúrunni eða í undraheimi bókanna. Mig langar
að hvetja ykkur til að velta fyrir ykkur hvaða bókum
sé hægt að gauka að börnunum og með hvaða orð-
um megi hvetja þau til að upplifa frelsið og gleðina
í því að sökkva sér í ævintýraheim og þurfa ekki að
hafa áhyggjur af neinu. Látum það líka eftir okkur að
lesa bækur, ekki síst barnabækur svo að við getum rætt
um þær við börnin okkar. Það gæti komið foreldrum
á óvart að heyra hvað þau hafa skýrar skoðanir á efni
og innihaldi og hvað þau hafa margt til málanna að
leggja. Sláum margar flugur í einu höggi: Verum góðar
fyrirmyndir, skemmtum okkur í ævintýraheimi bóka
og njótum sumarsins!