Rit Mógilsár - 2015, Síða 8
8 Rit Mógilsár 33/2015
vaxtarskilyrði þar sem jarðvegur er lítill (runna
heiði(kvistlendi):lyngmói). Algengur um allt land
og með mikla útbreiðslu. Í lista Steindórs og NÍ
eru 7 gróðurhverfi (B1-B6 og B8) sem heyra undir
þennan flokk með mismunandi samsetningu af
lynggróðri eða smárunnum.
BB bláberjalyngmói: Bláberjalyng ríkjandi.
Jarðvegur oft rakari og þykkari en í öðrum
lyngmóa. Aðrar tegundir: Krækilyng, víðir,
aðalbláberjalyng. (runnaheiði(kvistlendi):lyngm
ói). Algengt um allt land og með mikla útbreiðslu.
Í lista Steindórs og NÍ stendur eitt gróðurhverfi
(B7) fyrir þennan flokk.
BA aðalbláberjalyngmói: Aðalbláberjalyng
ríkjandi. Jarðvegur oftast frjósamari en í
bláberjalyngmóa. Oftast á svæðum þar sem
snjór leggst yfir og liggur lengi á veturna eins og
í snjódældum. (runnaheiði(kvistlendi):lyng mói).
Nokkuð algengt á Vestfjörðum, Norðurlandi
og Austurlandi en í frekar litlum einingum.
Sjaldgæft í öðrum landshlutum og helst þá upp
til fjalla. Í lista Steindórs er þessu gróðurhverfi
ekki lýst en hjá NÍ stendur eitt gróðurhverfi (B9)
fyrir þennan flokk. Þetta er nýtt gróðurhverfi
í gróðurhverfalykli skógræktar. Er tekið inn
vegna ábendinga frá skógfræðingum og vegna
þess að það er til í lista NÍ.
3.1.3. Hrísmói (eða hrísheiði, fjalldrapamói).
Einkennisstafur hrísmóa og birkilendis (Betula
ssp.) er C
C hrísmói (eða hrísheiði): Fjalldrapi ríkjandi
í þekju. Jarðvegur rakari en hjá öðrum
gróðurfélögum kvistlendis og eru oft óljós
skil milli þurrlendra runnamýra og hrísmóa.
Aðrar tegundir eru: Bláberjalyng, þursakegg,
krækilyng, grös, víðitegundir (grávíðir,
grasvíðir, loðvíðir). (runnaheiði(kvistlendi).
Algengt um allt land og með mikla útbreiðslu.
Í lista Steindórs eru þrír flokkar hrísmóa (C1-C3)
og í lista NÍ hefur þeim fjórða verið bætt við (C8)
sem heyrir undir þennan flokk með mismunandi
samsetningu annarra plantna.
3.1.4. Víðimói (eða víðiheiði)
Einkennisstafur er D
DL loðvíðismói: Algjört þurrlendisgróðurfélag.
Loðvíðirinn er hávaxnari en grávíðirinn og nær
bestum þroska þar sem sandfok er mikið. Aðrar
teg undir: Grávíðir, túnvingull, þursaskegg (runna
heiði(kvistlendi):víðiheiði). Sjaldgæft gróðurhverfi
í kortlagningu skógræktarlands.
DGu gulvíðismói: Oftast raklent gróðurfélag,
þar sem gulvíðirinn verður sjaldan ríkjandi
nema í rökum jarðvegi. Algengast á láglendi.
Aðrar tegundir: Grös, blómjurtir. (runnaheiði
(kvistlendi): víðiheiði). Ekki algengt gróðurhverfi
en getur myndað stóra fláka þar sem beit hefur
verið aflétt í nokkurn tíma. Í lista Steindórs er
einn flokkur gulvíðis (D5) eins og í lista NÍ en þar
hefur gulvíðir verið fluttur úr víðimóa í deiglendi
og hefur fengið deiglendiskóða (T4).
DGr grávíðismói: Grávíðirinn er ætíð lágvaxinn,
venjulega undir 40 sm. Jarðvegur rakur til
meðalrakur. Aðrar tegundir: Krækilyng, fjalldrapi,
grasvíðir, loðvíðir, elfting (runnaheiði(kvistle
ndi):víðiheiði). Er oftast hálendisgróðurhverfi
nema á nyrstu stöðum. Sjaldgæft gróðurhverfi
í kortlagningu skógræktarlands. Í lista Steindórs
eru þrír flokkar grávíðismóa (D1-D3) en í lista NÍ
hefur þeim verið fækkað í tvo (D1-D2).
3.1.5. Annað mólendi
E þursaskeggmóasefsmói: Ríkjandi tegundir
eru þursaskegg eða móasef. Oftast mjög
þurrlendur og frekar ófrjór. Aðrar tegundir:
Krækilyng, grös, rjúpnalauf. Svipar til lyngmóa
hvað frjósemi varðar. Mjög algengt gróðurhverfi
í kortlagningu skógræktarlands. Þursaskeggsmói
er mjög algengur í láglendisbeitarlöndum á
Norðurlandi og Austurlandi ef frá eru taldir
Austfirðir. Þar fyrir utan er helst að finna hann
langt inn til landsins á Suðurlandsundirlendi.
Mósefsmói er ekki eins algengur og útbreiddur
en kemur fyrir um allt land. E er einkennisstafur
þursakeggsmóa og F móasefsmóa. Í lista
Steindórs og NÍ eru þrír flokkar þursaskeggsmóa
(E1,E2 og E4) og tveir flokkar móasefsmóa (F1 og
F2).
G starmói: Ríkjandi tegund er stinnastör,
móastör eða rjúpustör. Rakt mólendi. Jarðvegur
oftast þykkur. Aðrar tegundir: Grös, grávíðir,
grasvíðir, krækilyng, bláberjalyng. Er oftast
hálendisgróðurhverfi nema á nyrstu og köldustu
stöðum. Sjaldgæft gróðurhverfi í kortlagningu
skógræktarlands. G er einkennisstafur starmóa.
Í lista Steindórs eru þrír flokkar starmóa (G1-
G3) en í lista NÍ hefur einum verið bætt við fyrir
rjúpustararmóa (G4).
J fléttumói: Fléttur, eins og fjallagrös og
hreindýramosi ríkjandi. Háplöntur hinar