Rit Mógilsár - 2015, Side 15

Rit Mógilsár - 2015, Side 15
Rit Mógilsár 33/2015 15 VIÐBÓTARBREYTUR VEGNA TRJÁGRÓÐURS SEM ÞEGAR ER Á SVÆÐINU Ef finnst náttúrulegt birki eða ræktaður skógur á svæðinu sem verið er að kortleggja hefur það upplýsingagildi að lýsa því nánar. Þó að ekki sé gert ráð fyrir gróðursetningum í náttúrulegum birkiskógum má vel vera að í ræktuðum skógum þurfi íbætur eða endurplöntun auk þess sem áhugavert er að skrá niður trjátegundir, aldur, kvæmi o.fl. varðandi þessar gróðursetningar. Áður voru skráðar þrjár breytur fyrir náttúrulegt birki en 20 breytur fyrir gróðursetningar (nýgræðslur). Hér er gerð einföldun á skráningunni þannig að sömu breytur eru nýttar að hluta til fyrir ræktaðan sem náttúrulegan skóg. Hér er lagt til að bætt verði við tveimur breytum sem lýsa aldri skógarins og þeirri hæð sem vænta má að hann nái fullvaxta. Þessar tvær nýju breytur eru í samræmi við landsúttekt á birkiskógum og kortlagningu þeirra á vegum Íslenskrar skógarúttektar (ÍSÚ) og í samræmi við alþjóðlega staðla á skráningu skóga (FRA2015 2012). 11. Ríkjandi hæð: Núverandi hæð ríkjandi trjágróðurs (heiti í fitjuskrá 510 Skógrækt: nuvHeadTrjaa) Ef birki eða skógrækt finnst er meðalhæð ríkjandi krónulags skráð í eftirfarandi flokka. Flokkarnir eru: 50: Meðalhæð undir 0,5 m 130: Meðalhæð 0,5 til 1,3 m 200: Meðalhæð 1,3 til 2,0 m 300: Meðalhæð 2,0 til 3,0 m 500: Meðalhæð 3,0 til 5,0 m 1000: Meðalhæð 5,0 til 10,0 m 1001: Meðalhæð yfir 10 m Hér er um breytingu að ræða frá fyrri flokkun. Í náttúrulegu birki verður síðasti flokkurinn tæpast notaður en fyrir ræktaða skóga er algengt að trjágróður nái meira en 10 m hæð. 12. Víkjandi hæð: Núverandi hæð víkjandi trjálags. Ef um er að ræða tvíhæða skóg, þ.e. yngra trjálag eða gróðursetning í reitnum er áberandi lægri en eldra trjálag eða gróðursetning, er hæð víkjandi trjálags/gróðursetningar skráð hér í sömu flokka og í breytu 11. 13. Hæð fullvaxta: Hæð trjágróðurs fullvaxta (heiti í fitjuskrá 510 Skógrækt: headFullvaxta) Reynt er að meta í hvaða hæðarflokk skógurinn fer þegar hann hefur náð fullri hæð. Þetta er mikilvæg breyta til að flokka skóg á alþjóðlega vísu. Skógur sem nær 5 m hæð fullvaxta kallast forest í alþjóðlegum skilgreiningum. Skógur sem ekki nær 5 m hæð fullvaxta kallast other wooded land. Hér á landi hefur verið stuðst við þá skilgreiningu að kalla trjágróður sem nær 2 m hæð fullvaxta skóg en lágvaxnari trjágróður kjarr. Bætt er við einum flokki fyrir náttúrulegt birki í þeim tilvikum þegar það er alveg jarðlægt. 50. Kræða: Hæð fullvaxta <0,5 m 200. Kjarr: Hæð fullvaxta 0,5-2,0 m 500. Lágskógur: Hæð fullvaxta 2,0-5,0 m 501. Háskógur: Hæð fullvaxta >5 m 14. Aldursflokkur (heiti í fitjuskrá 510 Skógrækt: aldursflokkur) Reynt er að meta aldur ríkjandi trjálags í eftirtalda aldurflokka: 10. Ungur (<15 ára) 20. Frekar ungur (15-30 ára) 45. Á vaxtarskeiði (30-60 ára) 80. Fullvaxta (60-80 ára) 100. Gamall (>100 ára) Þessir flokkar voru settir upphaflega fyrir náttúrulegan birkiskóg og henta nöfnin sem notuð eru misvel fyrir aðrar trjátegundir. Þess ber þó að geta að nákvæmari aldursgreining á sér stað í breytum sem lýsa gróðursetningaraldri hér neðar.

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.