Rit Mógilsár - 2020, Side 23
Rit Mógilsár 23
Kolefnisbinding
Kolefnisforði í standandi trjálífmassa ofanjarðar jókst
með auknum trjáfjölda á svipaðan hátt og viðarforði
en frjósemi lands og landslag hef ur líka mikil áhrif
eins og munur á milli staða sýndi (16. mynd).
Rannsóknir Brynhildar Bjarnadóttur (2007) á kol
efnis bindingu rússa lerkis á líkum aldri sem gerðar
voru í Vallanesi á Fljótsdalshéraði sýna svipaðar
niðurstöður og þessar mælingar. Að auki binst kol
efni í neðanjarðarhluta trjánna og jarðvegi (Owona
2019), sem ekki var metið í rannsókn okkar.
Snemmgrisjun
Um 50% af standandi rúmmáli voru felld í snemm
grisjun (17. mynd) og þannig fjarlægð um 60% af
gróður settum plöntu m í meðferðum 3500 og 5000.
Velta má fyrir sér hversu skyn samlegt það er að
gróðursetja svo þétt því mikill kostnaður liggur að
baki gróðursetningu og snemmgrisjun (2. tafla). Ef
reiknaður er kostnaður á hvern felldan rúmmetra
viðar í snemmgrisjun kemur í ljós að hann er um
14.000 kr. á m3 fyrir meðferð 3500 og um 24.000 kr.
á m3 fyrir meðferð 5000. Þessi kostnaður er langt
umfram það afurðaverð sem notað var í fram tíðar
spánni (3. tafla).
Af praktískum ástæðum þarf viður sem fluttur er
lengri vegalengdir til úrvinnslu að vera í stöðluð
um lengdum og hafa lágmarksþvermál til að
nýtast. Venjulega eru lengdirnar þrír eða fjórir
metrar og minnsta þvermál í grennri enda trjábols
sex sentímetrar. Ef notað er fall sem reiknar upp
mjókkun lerkitrjáa (Lárus Heiðars son og Pukkala
2011) kemur í ljós að lerki tré þarf að lágmarki að
hafa tíu sentí metra þvermál í brjósthæð og hæð
ekki und ir fimm metrum til að teljast nýtanlegt. Það
var því einungis á Hjartarstöðum og í Mjóa nesi sem
örlítið af nýtan legu efni var fellt í snemm grisjun inni
2018, því oftast eru stærstu trén ekki felld í snemm
grisjun nema þau séu gæða lítil og voru einhver
slík felld á fyrrnefndum stöðum. Á LitlaSteinsvaði
og Sturluflöt hafa tré ekki náð þessu þvermáli. Það
efni sem ekki fellur undir skilgreininguna „nýtanlegt
efni“ út frá timburnytjum nýtist þó vissulega að
einhverju leyti í nærumhverfinu sem kurl, eldiviður
og girðingastaurar.
Ef tilgangur ræktunarinnar er framleiðsla á efni til
flettingar, þarf að snemmgrisja lerki þegar gróður
setningarþéttleiki er á milli 3.000 og 5.000 tré á
hektara (Héraðs og Austur lands skógar og Skógrækt
ríkisins 2011). Þetta þarf að fara fram á meðan lerkið
er enn mjög ungt af því að það er ljóselskara en önnur
barrtré (Rantala 2007) og meðal og undirmálstré
draga því hratt úr vexti þegar grunnflötur fer yfir 15
m2 á hektara í yngri lerkiskógum (Parvi ainen 2007).
Of mikill þéttleiki dregur því úr þvermálsvexti í
skóginum, sem seinkar myndun á nýtanlegu efni.
Spá um framtíðar kolefnisbindingu
Grisjanir hafa áhrif á kolefnisbindingu en áhrifin
eru ekki afgerandi (18. mynd). Lotu lengd in fyrir
meðferðirnar óháð fjölda grisjana var á bilinu 4753
ár þegar hámarksarðsemi (NPV) af ræktun inni var
valin við gerð framtíðar spár inn ar. Það sem stjórn ar
að stórum hluta lengd vaxtarlotunnar er ávöxtunar
krafan. Við lægri ávöxtunarkröfu hefði vaxtarlotan
orð ið lengri í flestum tilvikum, sérstak lega fyrir
skóga þar sem fjöldi gæðatrjáa er lítill.
Aukinn upphafsþéttleiki skilar fyrst og fremst auk
inni bindingu í fáeina áratugi í upphafi vaxtar lot unn
ar (fyrir 35 ára aldur) sem er eðli legt fyrir ljós elska
frumherja tegund eins og lerki. Þegar niður stöður
framtíðarspárinnar voru skoðaðar fyrir með ferðir
3500ES og 5000ES sást að mikil sjálf grisjun hófst við
30 ára aldur og var viðvarandi fram að lokahöggi
(4. tafla). Kostnaður vegna bindingar á kol efni eykst
með auknum trjáfjölda og niður stöð ur þess ar ar
rann sóknar sýna að sleppa eigi snemm grisjun ef
megintilgangur rækt unar innar er kolefnisbinding
(21. mynd).
Ef ákveð ið er að horfa til áhrifanna yfir lengri
vaxtarlotu væri hugsan lega hag kvæmara að gróður
setja færri plöntur í upphafi, sleppa snemm grisjun
og koma þá seinna inn með fyrstu grisj un, þegar
skógurinn er á hæðarbilinu 710 metrar, og fengist þá
út úr fyrstu grisjun nýtan legt efni sem myndi greiða
kostnaðinn við hana eitthvað niður og jafnframt
auka kolefnis bind ingu til lengri tíma litið.
Tekjur af ræktuninni
Aukinn upphafstrjáfjöldi hafði lítil áhrif á arðsemi
ræktunarinnar yfir eina vaxtarlotu þegar tekjur af
ræktuninni á núvirði (NPV) voru há markaðar og til
gang ur ræktunarinnar var fram leiðsla á efni til flett
ingar (22. mynd).
Með auknum upphafs trjá fjölda eykst líka þörfin
á grisjunum og kostnaður við grisjanir er hár hér
á landi samanborið við nágrannalöndin (Fred rik
Karlson 2020, Videskog Finnlandi, munnleg heimild).
Það efni sem tekið er út í grisjunum er einnig að
stærstum hluta iðnviður sem ekki er mikill markaður
fyrir á Austurlandi eins og sakir standa, en það gæti
breyst fljótt.
Það sem hins vegar hafði afgerandi áhrif á arðsem
ina var fjöldi gæðatrjáa (21. mynd). Það er því mikil
vægt að skógareigendur haldi trjám ein stofna með
því að saga eða klippa af auka stofna og aukatoppa
af þeim. Að auki skilar greinahreinsun (uppkvistun)
kvistlausum viði sem eykur einnig viðargæði og ætti
að skila sér í hærra afurðarverði.