Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Síða 52

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Síða 52
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna og stýra hvaða atriði fá aðgang að henni en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni. Einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og sótt um þátttöku í göngunni en Hinsegin dagar setja sem skilyrði að öll atriði miðli skýrum skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. Gönguleið og uppstilling Byrjað verður að raða göngunni upp á Vatnsmýrarvegi (rétt hjá BSÍ) kl. 12 laugardaginn 8. ágúst. Þeir þátttakendur sem eru með atriði verða skilyrðislaust að mæta á þeim tíma til að fá sitt númer og stilla sér upp. Gangan leggur stundvíslega af stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Gönguleiðin liggur eins og undanfarin ár eftir Vatnsmýrarvegi, Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og framhjá Arnarhóli þar sem við taka glæsilegir útitónleikar. (Sjá kort bls. 34–35) Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í gleðigöngunni verða að sækja um það til Hinsegin daga eigi síðar en laugardaginn 1. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem finna má á vefsíðunni www.hinsegindagar.is. Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir Ásta, Eva, Helga, Setta og Steina en hægt er að senda þeim póst á gongustjori@gmail. com. Athugið að ekki er hægt að veita fólki með atriði aðgang að göngunni nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og send og skilmálar samþykktir. Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem vilja taka þátt í göngunni án þess að vera með sérstakt atriði fylgi henni alla leið frá Vatnsmýrarvegi. Aðrir eru vinsamlega beðnir um að bíða með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá. Auglýsingar bannaðar Hinsegin dagar eru stoltir af því að gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum sambærilegum göngum í heiminum þar sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu eru óheimilar. Með auglýsingabanninu er undirstrikað að gangan er grasrótarviðburður og þátttakendur taka þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki. Í örfáum undantekningartilvikum eru auglýsingar heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Gleðigangan The Pride Parade Vatnsmýrarvegi (BSÍ), laugardaginn 8. ágúst kl. 14:00. Vatnsmýrarvegur (BSÍ), Saturday 8 August at 2 p.m. 52

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.