Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 53

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 53
Brot á þessum reglum verður til þess að atriði er hafnað eða vísað úr göngunni. Leikstjórn Hinsegin dagar leggja áherslu á að þátttakendur vandi til verka við skreytingar vagna og búninga. Skilaboðin geta verið með óteljandi móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda miklu máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla peninga. Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra sem gefa góð ráð til göngufólks. Ræðið hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og þau benda á leiðir sem kosta lítið en setja flottan svip á atriðin ykkar. Sendið póst til Hinsegin daga í tæka tíð (pride@ hinsegindagar.is) og við aðstoðum ykkur við að komast í samband við leikstjóra sem hafa langa reynslu af götuleikhúsi og uppákomum af öllu tagi. Göngustyrkir Hinsegin dagar veita minni háttar fjárstyrki til gönguatriða. Umsóknir um þá skulu berast Gunnlaugi Braga Björnssyni, fjármálastjóra hátíðarinnar, um leið og sótt er um þátttöku. Netfang hans er gjaldkeri@ hinsegindagar.is. Styrkir eru einungis veittir gegn framvísun reikninga og skulu þeir hafa borist til Hinsegin daga (b.t. fjármálastjóra), Suðurgötu 3, 101 Reykjavík, fyrir 31. ágúst. Ekki er veittur styrkur til að fjármagna leigu á farartækjum eða eldsneyti. Gæði atriðanna skipta miklu máli þegar kemur að því að meta hverjir fá styrk. Hinsegin dagar áskilja sér rétt til að samþykkja eða hafna öllum beiðnum um styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar. Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before 1 August by filling out a form which can be found on the website, www.reykjavikpride.com. For any further information about the parade, please contact the parade managers Ásta, Eva, Helga, Setta and Steina by e-mail, gongustjori@gmail.com. The parade leaves from Vatnsmýrarvegur, close to the Bus Terminal (BSI), and ends in front of the concert stage at Arnarhóll in the city center. All participants are asked to show up at the starting point at 12 a.m. on Saturday, 8 August. The parade starts at 2 p.m. sharp. Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Finnið ykkur vinsamlegast annan vettvang fyrir steggja- og gæsapartí dagsins. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar, ekki niðurlægingar! Starfsfólk Forlagsins á Fiskislóð eru sérstakir hjálparkokkar göngustjórnar Hinsegin daga og fá hlýjar þakkir fyrir! 53

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.