Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 6

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 6
Náttúrufræðingurinn 6 INNGANGUR – LÝSING ÁRINNAR Öxará er ein af þeim ám sem allir Íslendingar hafa heyrt nefnda og vita nokkur deili á enda á hún sér traustan sess í sögu og bókmenntum þjóðarinnar. Þrátt fyrir það hefur hún ekki verið mikið rannsökuð, rennsli hennar hefur aldrei verið mælt og rennslissveiflur hafa ekki verið skráðar skipulega. Tölur um hæð Öxarárfoss eru á reiki í fræði- ritum og ýmislegt í sögu árinnar er á huldu. Hér á eftir er fjallað um þessa þætti og birtar fyrstu nákvæmu rennsl- ismælingarnar sem gerðar hafa verið í ánni (1. tafla). Einnig eru birtar mæl- ingar á hæð Öxarárfoss. Reynt er að ráða í sögu árinnar, breytingar á farvegum og rennsli um láglendið, hvenær hún fór að falla til Almannagjár og hvað hæft sé í þeirri gömlu sögn að fornmenn hafi veitt henni til þingstaðarins og í leiðinni skapað Öxarárfoss. Öxará á upptök sín í Myrkavatni , litlu stöðuvatni á mörkum Árnessýslu og Kjósarsýslu sunnan og vestan við Botns- súlur. Vatnið er 0,67 km2 að flatarmáli og liggur í rúmlega 410 m hæð yfir sjó. Í því er urriði en ekki bleikja.1 Úr vatn- inu fellur áin til suðausturs um Öxarár- dal. Innarlega á dalnum bætist í hana árspræna sem kemur hátt úr hlíðum Botnssúlna og Súlnaá nefnist. Fallegur foss er skammt ofan ármótanna við Öxará en sjálf fellur hún þar um snotur gljúfur með svipmiklum klettamynd- unum. Áin fellur til suðausturs norðan við Búrfell og síðan um Kjóavelli. Þar breiðir áin úr sér á fallegum eyrum sem lindalækir liðast um. Neðan við vellina eru ármót við Búrfellsá, sem er helsta þverá Öxarár. Ofan við Brúsastaði tekur áin nánast 180° beygju fyrir svo- kallaðan Rana og fellur þar í fossum og flúðum niður á láglendið. Þarna lét Jón Guðmundsson bóndi á Brúsastöðum og bryti í Valhöll virkja Öxará upp úr 1930 eins og síðar verður rakið. Virkj- unin starfaði í nokkra áratugi og sjást ummerki hennar enn vel. Neðan virkj- unarinnar rennur áin meðfram hæðar- hrygg og síðan út á flatlendið við Brúsa- staði þar sem heitir Kerlingarhraun, sem er hluti af Þingvallahrauni. Þarna hefur hún hlaðið miklu efni á hraunið og myndað stóra framburðarkeilu úr sandi og möl. Um hana liggja margir farvegir, sem flestir eru þurrir, sumir til suðurs, í átt að Kárastöðum en aðrir í átt að Almannagjá. Farvegurinn sem hún fylgir nú virðist fremur ungur og lítt sorfinn en eldri farvegur sést í hrauninu nokkru sunnan árinnar. Þessir farvegir sameinast nokkru ofan við Öxarárfoss. Hraunið er þversprungið og árfarveg- urinn liggur yfir gjár og sprungur. Þar tapast allmikið vatn úr ánni. Einn slíkan stað má sjá nokkru upp af þjóðveginum og brúnni. Þar er allvíð sprunga við ána full af vatni. Sprungan er gömul og að hluta til hulin jarðvegi en hér og hvar sér þó í hana. Þar er hægt að sjá vatnið streyma hægum straumi frá ánni og út í hraunið. Vatnsmagn árinnar er sýnilega mun meira upp við virkjunina gömlu en það er við Öxarárfoss. Í Öxarárfossi fellur áin fram af mis- gengisbrúninni sem myndar Almanna- gjá. Mjög lítill gljúfurgröftur hefur átt sér stað þar í brúninni og sýnir það ljóslega að farvegurinn er ungur. Neðan við fossinn tekur áin 90° beygju og rennur eftir gjánni alllangan spöl undir háum hamraveggjum misgengis- sprungunnar. Þarna er árbotninn þak- inn möl allt niður að Drekkingarhyl. Ofan við hylinn er stórgrýti og fram af því fellur áin í flúðum niður að hylnum. Vatnsborð Drekkingarhyls er um 12 m lægra en í hylnum undir Öxarárfossi (2. tafla). Úr Drekkingarhyl fellur áin yfir berghaft og í flúð, sem nefnist Neðri- foss, út úr Almannagjá og niður á vell- ina. Flúðin er um 5 m há og er undir Öxarárbrúnni gömlu, sem síðar verður rætt um. Á Völlunum dreifir áin úr sér og kvíslast milli hólma og eyra, straum- hörð efst en lygn þar sem hún fellur til vatnsins. Öxará er fiskgeng að flúð- inni neðan Drekkingarhyls sem er um 650 m ofan ósa. GAMLIR FARVEGIR Gamlir farvegir í hrauninu neðan við Brúsastaði sýna að áin hefur áður runnið á þessum slóðum til suðvesturs um Kárastaðahraun meðfram Stór- höfða og Kárastaðaási, sums staðar úti á hrauninu, annars staðar milli hrauns og hlíða. Vatnsnúið grjót er þar í farveg- inum og sums staðar er hann nokkuð grafinn. Þarna nefnist hann Árfar eða Árför. Við Vinaskóg slær farvegurinn sér frá hlíðinni. Þar hefur áin borið talsverða malarfyllu út á hraunið og kaffært vesturjaðar þess í allþykkum lögum af fínmöl og sandi. Þegar nálg- ast vatnið og hina fornu árósa breikkar farvegurinn, klofnar upp og verður að sléttum grasgrundum en þýfðir móar eru á báðar hliðar, nokkru hærri. Úti í vatninu er Árfarsgrynning. Öxará virð- ist hafa runnið til vatnsins á nokkrum stöðum í grennd við Skálabrekku og breytt sér frá einum tíma til annars. Mestu ummerkin eftir hana og mesti framburðurinn er í Skálabrekkuvík sunnan Skálabrekku. Þar upp af víkinni eru gamlar strandlínur, malarkambar og fleiri ummerki frá þeim tíma að yfirborð Þingvallavatns var 10–13 m hærra en nú er. Það var fyrir um 10.000 árum. Krist- ján Sæmundsson kannaði og mældi þessar strandlínur og skrifaði um þær í grein í Náttúrufræðinginn fyrir rúm- lega hálfri öld.2 Malarkambarnir teygja sig inn á Þingvallahraunið og eru yngri en það. Sagt er að áin hafi legið í Árfari á landnámstíð og verður vikið að því síðar. Ekki er ljóst hvar ósar hennar við vatnið voru þá en líklegast er að það hafi verið í Skálabrekkuvík. Á síðustu öldum hefur áin aldrei komist í Skálabrekkuvík í vatnavöxtum heldur runnið þvert yfir hraunið beint sunnan Kárastaða. Þar hafa orðið landslagsbreytingar og sig á síðari tímum þannig að vatn gat flætt þá leið yfir hraunið. Farvegurinn er ekki auðsær en þó sjást vatnsnúnar klappir. Árósinn sjálfur er sæmilega greinilegur. Þarna rennur nú lítill lækur til vatnsins. Efnislitlar framburðarfyllur eru með- fram honum og við ströndina. Ekki er ljóst hvenær Öxará hætti endanlega að fara í hinn gamla farveg sinn um Árfarið og til Skálabrekku. Á fyrri hluta 20. aldar átti hún það til, eða kvísl úr henni, að fara þessa leið. Þetta gerðist oftast í leysingum þegar krapa- og ísstíflur mynduðust í ánni. Í örnefna- lýsingu frá 1939 segir svo: „ ... stundum í leysingum stífl- ast Öxará af krapi og íshröngli fyrir innan Brúsastaði og flæðir þá vestur hraunið sunnan undir Stórhöfða og hefur myndað sér þar farveg greini- legan … “.3 Þetta sýnir að fram eftir 20. öld gat komið fyrir að áin leitaði í sinn gamla farveg í Árfari og til ósa við Skála- brekku. Nú er henni haldið stöðugri í farvegi sínum með uppruddum garði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.