Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 12
Náttúrufræðingurinn
12
ÖXARÁ Á SÍÐARI ÖLDUM
Allar ár taka breytingum í aldanna
rás, sumar breytast mikið frá kynslóð
til kynslóðar en aðrar eru tiltölulega
stöðugar. Öxará fyllir fyrri hópinn.
Breytingar hennar eru bæði af náttúr-
unnar og mannanna völdum. Unglegir
farvegir í hrauninu milli Brúsastaða
og Almannagjár sýna ljóslega að áin
hefur jafnan verið dyntótt og hún hefur
oft skipt um rás. Mestu breytingarnar
hafa líklega orðið árið 1789. Þá urðu
miklar jarðhræringar í Árnesþingi.
Gliðnunarhrina, sem upphaf átti í
Henglinum, virðist hafa gengið yfir
Þingvelli samfara miklum sprungu-
hreyfingum og landsigi. Hugsanlega
hefur kvikuhlaup átt sér stað en eldsum-
brota varð ekki vart. Umbrotin hófust
10. júní og fyrstu vikuna var aldrei kyrrt
þannig að ekki liðu meira en 10 mínútur
milli kippa. Virknin hélt áfram allt sum-
arið en dvínaði hægt og hægt. Jörð rifn-
aði og gliðnaði um allt að fjóra metra
og miklar sprungur opnuðust á Þing-
völlum.25 Þar seig land svo vatn flæddi
yfir veginn sem lá meðfram vatnsbakk-
anum að vestan til Almannagjár. Eftir
það var farið að nota Kárastaðastíg
sem leið niður á Vellina. Öxará var ekki
ósnortin en flæmdist víða um Vellina og
land blotnaði mjög í kring um þingbúð-
irnar. Þetta varð með öðru til þess að
alþingisstaðurinn gamli leið undir lok
nokkrum árum síðar. Þær stofnanir sem
við tóku voru settar niður í Reykjavík.
Hólmar hafa jafnan verið í Öxará
milli Neðrafoss og árósanna. Í forn-
ritunum er víða minnst á Öxarárhólma
en þar fóru fram hólmgöngur áður en
þær voru bannaðar með lögum á Íslandi.
Á síðari öldum hafa ýmsir hólmar í ánni
fengið nöfn, Þorleifshólmi, Jakobs-
hólmi, Kagahólmi og Guðlaugshólmi.
Allt eru þetta áreyrarhólmar sem taka
sífelldum breytingum. Öxarárhólmi
sem svo er nefndur í dag og er aðalhólmi
árinnar er örugglega ekki sami hólminn
og hét því nafni á þjóðveldisöld. Þor-
leifshólmi heitir eftir Þorleifi jarlsskáldi
frá Brekku í Svarfaðardal, sem veginn
var á alþingi einhvern tíma nálægt árinu
1000 og heygður var þar á völlunum.
Í dag er hólminn landfastur austan ár
samkvæmt landakortum. Í dagbókum
Eggerts og Bjarna er getið um þennan
hólma og sagt frá því að þar hafi haugur
Þorleifs verið en Öxará hafi sópaði
honum á brott að mestu.26
DREKKINGARHYLUR
Drekkingarhylur er einn þekktasti
staðurinn í Öxará. Þar er sagt að karlar
hafi iðkað sund um þinghaldið að fornu
og konur þvegið þvotta.27 Þetta var fyrir
kristnitöku og áður en dauðadómar
voru leiddir í lög. Það var ekki fyrr
en eftir siðbót Lúthers að tekið var að
drekkja konum í hylnum. Eftir það fékk
hann sitt núverandi nafn. Ekki er vitað
hvað hann kallaðist áður. Á kynningar-
spjaldi við hylinn má lesa að 18 konum
hafi verið drekkt í hylnum, fyrst 1618
en síðast 1749. Þar eru nöfn kvennanna
listuð upp en dauðasök þeirra var oftast
tengd óleyfilegum barneignum, kyn-
ferðismálum eða galdri. Hylurinn var
hátt í 100 m langur og 15 m á breidd. Til
er lýsing frá 1772 á aftökuaðferðinni við
Drekkingarhyl:
„Sökudólgurinn var bundinn í poka
sem steypt var yfir höfuð honum og
tók niður á miðjan legg. Reipi sem
böðullinn hélt í handan hylsins, var
bundið um konuna. Eftir að hún hafði
staðið þannig um stund var henni
kippt í vatnið og haldið niðri með
stöng uns hún var dauð.“28
Nú er Drekkingarhylur minni en
áður var því grjóti var rutt í hann við
vega- og brúargerð á síðari tímum. Árið
1897 var Öxará brúuð þegar vegur var
lagður niður í Almannagjá hjá Hak-
inu, þar sem þjónustumiðstöðin er nú.
Þetta var trébrú og var lögð yfir kletta-
haftið þar sem áin féll í stríðum streng
úr hylnum. Árið 1911 var gerð ný stein-
steypt brú í stað gömlu brúarinnar.
Björn Th. Björnsson segir í Þingvalla-
bók sinni að við það tækifæri hafi verið
sprengt með dínamíti skarð í hraun-
haftið undir brúnni þannig að verulega
lækkaði í hylnum. Fossinn fagri undir
brúnni hafi lækkað að sama skapi og
orðið að flúð og svipur hjá sjón frá því
sem áður var. Brúna sjálfa kallar Björn
5. mynd. Flóð og vegaskemmdir á Þingvöllum
25. febrúar 2013. – A flood in Öxará damaging
the road in Almannagjá on February 25, 2013.
Ljósm./Photo: Einar Á.E. Sæmundsen.