Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 30
Náttúrufræðingurinn 30 maí – grunnt maí – djúpt júlí – grunnt júlí – djúpt ágúst – grunnt ágúst – djúpt október – grunnt október – djúpt -1,0 0,81. RDA-ás / RDA Axis 1 (λ = 0,205) -0,8 0,81. RDA-ás / RDA Axis 1 (λ = 0,205) 2. R D A -á s / R D A A xi s 2 (λ = 0 ,1 39 ) 2. R D A -á s / R D A A xi s 2 (λ = 0 ,1 39 ) AlonNana BosmCoreDaphGale LeptoSp CyclpSpp Náplíur AsplPrio KertCoch KertQuad PolyaSpp FilnTerm NothFoli NothSqua SynchSp ConoUnicTrichSpp PloesSpp Blaðgræna Clorophyll-a Vatnshiti Water temperature Dýpi Depth 0 2 4 6 8 10 12 14 Fj öl br ey til ei ka st uð ul l N 2 ma í g ru nn t ma í d júp t júl í g ru nn t ág ús t g ru nn t ág ús t d júp t ok tó be r g ru nn t ok tó be r d júp t júl í d júp t 1 m 10 m 35 m 5 m 25 m -1,5 1,51. PCA-ás / PCA Axis 1 (λ = 0,299) -1,0 1,5 2. P C A -á s / P C A a xi s 2 (λ = 0 ,2 43 ) og saman skýra þeir tæplega 38% af breytileikanum í svifdýragögnunum (10. mynd). Greinilegt er að árstíðabund- inn vatnshiti og dýpi, sem eru tengdir þættir, hefur áhrif á gerð samfélaganna, eins og áður hefur komið fram. Þannig er vægi árfætlulirfa, augndílis og spaða- þyrlna mest á vorin. Á haustin er vægi langhalaflóa, ranaflóa, sólþyrlna, spaða- þyrlna og skottþyrlna (Trichocerca teg.) mest (11. mynd). Yfir sumarmánuðina ( júlí og ágúst) er þéttleiki svifdílis og eyraþyrlna (Synchaeta teg.) mestur á grynnra vatni (1, 5 og 10 m), en þéttleiki slóðaþyrlna, sólþyrlna og spaðaþyrl- unnar mestur á 25 og 35 m dýpi. Svo virðist sem hitalagskipting í vatninu4 hafi áhrif á tegundasamsetn- ingu svifdýrasamfélaga (12. mynd). Þetta kemur í ljós þegar borin eru saman tvö ár þar sem mikill munur er á styrk hitaskila í vatninu, annars vegar árið 2012 sem var mjög hlýtt og hægviðrasamt og eru hitaskilin þá með þeim sterkustu sem mynduðust á rann- sóknartímabilinu, og hins vegar árið 2013 sem var svalara og vindasamara og hitaskilin með veikasta móti. Árið 2012 má sjá greinilegan mun á samfélögum svifdýra eftir dýpi í maí, júlí og ágúst (12. mynd), en árið 2013 er hins vegar minni munur á samfélagsgerð svifdýra eftir dýpi í sömu mánuðum. UMRÆÐUR SVIFDÝR FYRR OG NÚ Þeir 23 hópar krabbadýra og þyr- ildýra sem fundust í vatnsbol Þing- vallavatns á tímabilinu 2007–2016 hafa allir fundist áður í svifvist vatnsins. Í rannsókn sem fram fór á árunum 1974–1977 í Þingvallavatni11 fundust 44 tegundir svifdýra, þ.e. tíu tegundir krabbadýra, þar af tvær sjaldgæfar tegundir sem ekki fundust í vöktuninni 2007–2016, og 34 tegundir þyrildýra, heldur fleiri tegundir en í vöktuninni nú. Skýrist þetta meðal annars af því að tegundargreining þyrildýra var ýtarlegri í rannsókninni 1974–1977. Í vöktuninni nú var sjónum á hinn bóginn einkum beint að þeim tegundum þyrildýra sem komu fyrir í mestum þéttleika. Þegar á heildina er litið er tegunda- samsetning svifdýra í vöktuninni nú í nokkuð góðu samræmi við það sem var árin 1974–1977. Meðal krabbadýra eru sömu hópar ríkjandi nú og þá, þ.e. langhalafló, svifdíli og augndíli. Sama má segja um þyrildýr, þar sem sólþyrla, spaðaþyrla og fjaðraþyrla eru meðal ríkjandi tegunda. Eyraþyrla er sjald- gæfari nú en þá. Skúfþyrlan Collotheca mutabilis og spjótþyrlan Kellicottia longispina voru þá nokkuð algengar, en koma ekki fyrir nú. Þess ber að geta að spjótþyrlan hefur fundist í sýni sem tekið var í útfalli vatnsins. Spaða- þyrlan Keratella hiemalis var þá einnig nokkuð algeng, en í vöktuninni nú var ekki greint á milli hennar og svipaðrar tegundar, K. quadrata. Slóðaþyrlan er 8. mynd. Niðurstöður PCA-hnitunargreiningar á tegundasamsetningu svifdýra eftir dýpi í Þingvallavatni 2007–2016. Sérhvert tákn á myndinni sýnir svifdýrasamfélag á ákveðnu dýpi. Því lengra sem er á milli tákna á grafinu, því ólíkari er tegundasamsetningin í svifdýrasamfélögunum. – Results of PCA-ordination for zooplankton communities in Lake Þing- vallavatn 2007–2016. Each symbol represents a zooplankton commu- nity at a given depth. The longer the distance between symbols, the more different are the zooplankton communities. 9. mynd. Tegundafjölbreytileiki (N2) í svifdýrasamfélögum eftir árstíma og dýpi í Þingvallavatni 2007–2016. Línan innan hvers kassa sýnir miðgildi en efri og neðri mörk hvers kassa sýna hvar 75% og 25% gildanna liggja. Öryggismörk að ofan og neðan sýna hvar 90% og 10% gildanna liggja og punktar sýna útgildi. Grunnt er 1 m, 5 m og 10 m; djúpt er 25 m og 35 m. – Species diversity (N2 or the inverse of Simpson‘s index) of zooplankton communities by time of year and depth in Lake Þingvallavatn 2007–2016. The boxes indicate the 25th and 75th percentiles and the line within the median. Whiskers below and above indicate the 10th and 90th percentiles respectively and dots represent outliers. Grunnt (shallow) is 1 m, 5 m og 10 m deep water; djúpt (deep) is 25 m and 35 m deep.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.