Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 117

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 117
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 117 VEGUR 365 Í febrúar 1994 leggja þingmennirnir Guðni Ágústsson og Eggert Haukdal fram þingsályktunartillögu5 um að Vega- gerð ríkisins geri „athugun á kostnaði og þýðingu þess fyrir uppsveitir Árnes- sýslu að gera brú yfir Hvítá við Bræðra- tungu og uppbyggðan veg með slitlagi frá Laugarvatni að Gjábakka, frá Felli að Múla og yfir Torfastaðaheiði [leturbr. höf ].“ Tillagan varð ekki útrædd og sú athugun sem lýst var eftir fór ekki fram. Tæplega 10 árum síðar birtist „365 Gjábakkavegur“ í samgönguáætlun frá Alþingi með 100 milljóna króna fram- lagi árin 2003 og 2004. Vegagerðin til- kynnir Skipulagsstofnun þessa ráðagerð 16. júlí 2004.6 Í samgönguáætlun fyrir árin 2005–20087 birtist vegurinn aftur, en nú sem „365 Lyngdalsheiðarvegur (af Laugarvatnsvegi hjá Laugarvatni, á Þingvallaveg við Gjábakka)“ og hefur fjárveitingin vaxið í 437 milljónir króna. Í vegaáætlun 2009–2012 segir að lengd vegarins sé 15 km og kostnaður liðlega einn milljarður króna. Hinn 15. október 2010 er vegurinn opnaður fyrir umferð. MEÐ OG Á MÓTI Í þeim gögnum sem höfundur hefur kynnt sér virðast helstu rök fyrir lagn- ingu vegarins hafa verið: • Stytta leið skólaaksturs barna úr Þingvallasveit að Laugarvatni og bæta forsendur fyrir vegasam- göngum að vetri til. • Flýta fyrir umferð frá höfuð- borgarsvæðinu austur í Laugardal og Biskupstungur. Þar er mikil frí- stundahúsabyggð. Væntanlegur sölu- eða leiguhagnaður af frekari frístunda- húsalóðum. • Tenging höfuðborgarinnar við full- burða veg yfir Kjöl, upphleyptan og klæddan, sem eigi að glæða og greiða alla umferð milli höfuðborgarsvæð- isins og Suðurlands annars vegar, og Norðurlands hins vegar. • Auka verslun og viðskipti við ferðamenn og frístundahúsbúa að Laugarvatni. Helstu atriði sem mæltu gegn vegi 365 voru þessi: • Stóraukin umferð. Henni fylgir ýmiss konar mengun í útblæstri bíla, mögulegur olíuleki, slysahætta, hávaði og annað það ónæði sem umferð hefur yfirleitt í för með Þingvallavatn er ein af gersemum Íslands, glitrandi af fegurð. Heið- blátt, djúpt, kalt og tært vatnið kemur alla leið úr Langjökli en við barm þess getur að líta eitt gjöfulasta hverasvæði Íslands. Eldfjöll fjallahringsins birtast í öllum regnbogans litum og endurspeglast í vatninu og auka á unað þess og töfra. Vatnið er miðdepill lands- lagsins og skapar úr því heild. Bláskógar með ilm birkiskógarins og litahaf botngróðursins með blágresi, engjarós, undafíflum og maríustökkum, bláberja-, beiti- og krækiberjalyngi, víðikjarri, fjall- drapa og skófum í öllum regnbogans litum ásamt víðáttumiklum sléttum grámosans, sem sífellt breyta um lit, skapar litasinfóníu sem á fáar sér líkar — að ógleymdu litskrúði haustsins þar sem eldrautt bláberjalyngið og heiðgulur víðirinn teygja sig upp fjalls- hlíðarnar og gefa fjöllunum nýjan svip. Það er því ekki að furða þótt þessi heimur hafi seitt til sín flesta íslenska listmálara til að túlka töfralitina á léreft. … Við Þingvallavatn mætast gróður og dýralíf tveggja heimsálfa – austurs og vesturs – og vatnið er vettvangur þróunar nýrra tegunda. Engan hafði órað fyrir því að fjórar bleikjugerðir hefðu þróast á 10.000 ára ferli vatnsins. Það er veraldarundur. Og fyrir nokkrum árum átti sér stað heimsviðburður á sviði náttúrufræði. Í Þingvallavatni fannst áður óþekkt marfló sem líklega hefur lifað þar af ísaldir, í hellum í berginu undir ísnum, hugsanlega í 10 milljón ár. Þetta er að öllum líkindum elsta vatnadýr landsins og eina helladýr Norður-Evrópu. Samfelld saga lífs á svæðinu spannar því milljón- ir ára. Þingvallavatn er nú að nokkru á heimsminjaskrá UNESCO, ásamt Malawivatni í Austur-Afríku sem er á sama gliðnunarbelti og Þingvallavatn, ásamt Bækalvatni í Síberíu, vegna lífríkis síns: 4 gerðir silungsafbrigða. Úr fylgiskjali Péturs M. Jónassonar með greinargerð við frumvarp til laga um verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess, sem umhverfisráðherra lagði fram haustið 2004 og varð að lögum vorið eftir:3,4 sér. Staðbundin aukning mengunar var talin hafa neikvæð áhrif á við- kvæmt lífríki Þingvallavatns. Gegn- umstreymisumferð í þjóðgarðinum eykst umtalsvert. • Vegurinn liggur um grunnvatns- svæði austan Þingvallavatns. Þar gæti orðið framtíðarvatnsöflunar- svæði höfuðborgarsvæðisins þegar grunnvatn fer að þrjóta á núverandi svæðum. Með veginum er vatnsauð- lindinni stefnt í hættu. • Vegurinn er breiður og upphækk- aður og sker Eldborgahraunið austan Þingvallavatns sem band og nær bein lína og spillir landslagi í Þingvalla- sveit og við jaðar þjóðgarðsins. • Gjábakkavegur leggst af sem ferða- mannavegur. Af honum er víða stór- kostlegt útsýni yfir Þingvallasveit og er hann því afar hentugur sem hæg- farinn ferðamannavegur. • Vegurinn getur torveldað eða jafn- vel komið í veg fyrir að skrá megi Þingvallavatn á heimsminjaskrá sem náttúruarf.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.