Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 8
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 20218 Með ljóslausan tjaldvagn á þjóðvegi VESTURLAND: Lögreglu- menn stöðvuðu ökumann með ljóslausan tjaldvagn á Vesturlandsvegi við Ölver að- fararnótt föstudags. Auk þess var tjaldvagninn án skrán- ingarmerkja en tjaldvagnar eru skráningarskyldir. Mikil hætta getur skapast af ljóslaus- um eftirvögnum enda skyggja þeir á afturljós bifreiða og eru lítt sýnilegir þegar birtu fer að bregða. Ökumaðurinn hlaut 40 þúsund króna sekt, en það er mun hærri upphæð en nýr afturljósabúnaður kostar! -frg Aflatölur fyrir Vesturland 8. til 14. maí. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu. Akranes: 25 bátar. Heildarlöndun: 61.905 kg. Mestur afli: Eskey ÓF-80: 15.608 kg. í þremur löndun- um. Arnarstapi: 33 bátar. Heildarlöndun: 127.147 kg. Mestur afli: Bárður SH-811: 80.590 kg. í sex löndunum. Grundarfjörður: 24 bátar. Heildarlöndun: 414.291 kg. Mestur afli: Hringur SH-153: 77.790 kg. í einni löndun. Ólafsvík: 49 bátar. Heildarlöndun: 537.797 kg. Mestur afli: Steinunn SH-167: 136.406 kg. í fjórum löndunum. Rif: 43 bátar. Heildarlöndun: 624.710 kg. Mestur afli: Saxhamar SH-50: 77.765 kg. í þremur löndunum. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 25.883 kg. Mestur afli: Signý Hu-13: 8.503 kg. í fjórum löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH-153 GRU: 77.790 12. maí. 2. Farsæll SH-30 GRU: 74.576 11. maí. 3. Sigurborg SH-12 GRU: 72.446 10. maí. 4. Runólfur SH-135 GRU: 63.439 10. maí. 5. Tjaldur SH-270 RIF: 59.327 10. maí. -frg Á bílastæði framan við slökkvistöð- ina við Sólbakka í Borgarnesi var á mánudaginn komið fyrir 40 feta gámi sem ætlaður er til að rúma dó- samóttöku til bráðabirgða. Verður opið fyrir móttöku dósa í nokkra klukkutíma á dag. Eins og kunn- ugt er var dósamóttöku Öldunn- ar í Brákarey lokað í febrúar vegna þess að brunavörnum er ábótavant í húsinu. Slökkviliðsmenn telja þessa stað- setningu gámsins slæma í ljósi þess að ekki megi takmarka á neinn hátt aðgengi og athafnasvæði slökkvi- liðsins nú þegar hættustig al- mannavarna er í gildi í héraðinu vegna hættu á gróðureldum. Hafa þeir samkvæmt heimildum Skessu- horns komið athugasemdum sínum um það á framfæri. „Okkur finnst ekki fara saman að almenningur komi með bíla og kerrur á bílastæð- ið ef útkall verður. Ég tala nú ekki um þegar hættuástand ríkir vegna þurrka,“ sagði slökkviliðsmaður í skeyti til Skessuhorns. mm Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði var kölluð út rétt fyrir klukkan átta að kvöldi þriðjudags í liðinni viku vegna konu sem slasast hafði í fjall- göngu í Kvígindisfelli, norðaust- ur af Hvalvatni. Konan hrasaði í hlíðum fellsins og slasaðist á fæti. Björgunarsveitarfólk og sjúkra- flutningamenn frá Heilbrigðis- stofnun Vesturlands fóru á vettvang með fjórhjól og búnað til þess að hlúa að konunni og flytja hana nið- ur af fjallinu. Þyrla flutti svo kon- una á sjúkrahús og var aðgerðum lokið um klukkan 21. mm Eftir hádegi síðastliðinn laugar- dag barst útkall á björgunarbátinn Björg í Rifi. Það var frá handfæra- bátnum Höllu daníelsdóttur RE, sem þurfti aðstoð en báturinn var þá staddur um eina sjómílu frá Rifi. Halla var að koma úr róðri af Flák- anum þegar drapst á vélinni. Leið- angurinn gekk vel og kom Björgin með Höllu til hafnar um 40 mínút- um eftir að útkallið barst. þa Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum 11. maí síðastliðinn tillögu skipulags- og umhverfisráðs um deiliskipuskipulagsbreytingu vegna Garðalundar og Lækjar- botna. Í breytingunni felst að heim- ilt verði að reisa 18 metra hátt fjar- skiptamastur ásamt 2,1 metra háum tækjaskáp, í um 200 metra fjarlægð frá byggð við Baugalund, um 250 metra frá næstu húsum í Jörundar- holti og um 170 metra frá fyrirhug- aðri byggð við Skógarlund. Það er Míla sem óskar eftir staðsetningu mastranna. Fram hefur komið að mikilvægt er að bæta farsímasam- band ekki síst í ljósi fyrirhugaðrar stækkunar Skógahverfis. Í bókun ráðsins frá 7. desember um sama mál lagði ráðið til að fjar- skiptamastur, til að bæta farsíma- samband á Akranesi, verði stað- sett við Garðalund annarsvegar og Flóahverfi hinsvegar. Staðsetning- ar á háum fjarskiptamöstrum verði kynntar sem skipulagsbreyting- ar. Jafnframt sagði að uppsetning mastranna væri til að auka þjónustu og öryggi íbúa og fyrirtækja, í ljósi þess að farsímasambandi er ábóta- vant á vissum stöðum á Akranesi. Nú hefur verið ákveðið að reist verði eitt mastur sem þjóna á hinni nýju og vaxandi byggð. frg Gámur til bráðabirgða fyrir dósamóttöku Björgunarsveitin Ok er hér komin á svæðið norðaustan við Hvalvatn. Ljósm. þbp Sóttu slasaða konu í Kvígindisfell Vélarvana skammt frá Rifi Fjarskiptamastur við Garðalund á Akranesi. Ljósm. úr fylgiskjali með deiliskipulagsbreytingu. Átján metra hátt fjarskiptamastur reist á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.