Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 17
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 2021 17 Lögreglan á Vesturlandi tók á móti Haraldi Jónssyni skipstjóra á inga Rúnari AK-35 þegar hann kom úr síðasta gráslepputúrnum á þriðju- daginn í síðustu viku. Ástæðan var sögð sú að Haraldur hefði verið að veiðum í friðlandi við Kjalar- nes og Landhelgisgæslan hefði eitt- hvað við það að athuga. Blaðamað- ur Skessuhorns náði tali af Har- aldi þar sem hann var að ganga frá grásleppunetum. Hann segist vera orðinn ansi þreyttur á atganginum í Gæslunni. Meðal annars hringi hún í hann seint á kvöldin. Hann segir ástæðuna fyrir þessari afskiptasemi Gæslunnar sé þá að bóndi, sem oft standi hoppandi í fjörunni þegar þeir vitja netanna við Kjalarnes, en Haraldur segist ekki kippa sér neitt upp við það. Bóndinn er með æðar- rækt í landi sínu og segir Harald- ur einkennilegt hve oft Landhelg- isgæslan byrjar að hamast í honum strax í kjölfarið á þessu hoppi bónd- ans. Haraldur á inga Rúnar AK í fé- lagi við bróður sinn, Guðmund Pál Jónsson og son hans, Sigur- jón Guðmundsson. Að mati þeirra bræðra á það sér enga stoð í lögum að óheimilt sé að veiða á þessum slóðum og að auki löng hefð fyrir því að grásleppunet séu lögð þarna. Engin opinber gögn sé neinsstað- ar að finna um slíkt bann. Haddi segist vilja fá þetta mál endanlega á hreint. Hann segist hreinlega hafa óskað eftir því að vera kærður en ekki hafi enn orðið af því. Haraldur hefur lagt sín grásleppunet á þess- um slóðum í áraraðir. Aldrei hafi orðið nein eftirmál eða kærur enda sé enginn fótur fyrir slíku, að hans sögn. Að sögn Haraldar gekk grá- sleppuvertíðin vel, tíðin góð og mokafli. Verð fyrir grásleppuna er hins vegar sögulega lágt en mikill afli bjargaði því sem bjargað varð. Alls veiddu þeir á inga Rúnari um 50 tonn á þessari vertíð. frg Hér er Haraldur að landa netunum eftir örvertíðina síðasta vor. Ljósm. úr safni/mm Ósáttur við Landhelgis- gæsluna sem hleypur eftir hoppandi landeiganda Haraldur Jónsson, skipstjóri, búinn að taka upp grásleppunetin. Ljósm. frg. var hér á árum áður með námskeið á Akranesi fyrir félagasamtök og starfsfólk fyrirtækja. Þetta var mest í kringum 1990. Þá var ég með m.a. námskeið hjá kvenfélaginu, starfs- fólki HB & Co og hjá kennurunum í Grundaskóla svo eitthvað sé nefnt. Oft voru þessi námskeið haldin fyr- ir jólin.“ Þegar Marianne er spurð að því hvort hún taki að sér að gera muni eftir pöntunum frá fólki sagði hún að svo væri ekki. „Ég vil miklu frek- ar skapa þá sjálf, reyni að hafa þá fjölbreytta þannig að sem flestum líki. Ég sauma á dúkkur og þæfi og hef verið að gera fugla, kindur, hreindýr og hunda svo eitthvað sé nefnt.“ Snýst um að fá nýjar hugmyndir Marianne og vinkona hennar Áslaug fara oft í Góða hirðinn í Reykjavík og finna þar skemmtilega hluti sem þær geta unnið úr. Á heimili Mari- önnu er til dæmis gömul vekjara- klukka sem hún hefur á skemmti- legan hátt sett mynd af barnabarni sínu framan á klukkuna og vísarnir eru stilltir á þann tíma sem barn- ið fæddist. „Þetta snýst svo mikið um að fá hugmyndir og vinna út frá þeim. Mér finnst alltaf skemmtileg- ast að sauma á dúkkurnar og föndra við tölur og bönd sem á flíkurnar fara. Þetta er mikil vinna en mér finnst skemmtilegast að fást við það þótt að þetta taki mikinn tíma. Það er auðvitað hægt að hafa dúkkurn- ar stærri og fjöldaframleiða en það er ekki fyrir mig. Þetta verður því persónulegra þegar þetta er unn- ið svona vegna þess að þá verður enginn hlutur eins. En ég fæ ýms- ar hugmyndir og ég hef gert tösk- ur úr slöngum úr bíldekkjum sem ég hef fengið á dekkjaverkstæði og hjá Axel á reiðhjólverkstæðinu. Það er nú bara svoleiðis að ég hef bara svo mikið að gera eftir að ég hætti að vinna að sólahringurinn dugir varla,“ segir Marianne og hlær. Sjósund þegar gráðurnar verða átta Auk handavinnunnar og að atast í garðinum stundaði Marianne sjó- sund í fyrrasumar og finnst það gera sér mjög gott. „Ég ólst auðvitað upp við það að fara í sjóinn heima hjá mér í Noregi á sínum tíma. Ég vil ekki byrja alveg strax því sjórinn er enn bara um sex gráður en það er gott að fara þegar hann nær átta gráðum. Einnig finnst mér æðislegt að fara í hina frábæru laug Guð- laugu við Langasandinn,“ sagði Marianne að endingu. se/ Ljósm. mm Sauðféð er Mariönnu hugleikið. Nálapúði sem jafnframt má nota sem vúdú dúkku ef eigandanum er mjög illa við einhvern! Sessur úr vaðmáli sem hafa má í bílnum eða á ferð hvar sem er. Hægt að rúlla upp og geyma. Klukka sem Marianna útbjó og sýnir fæðingardag, ár og klukkuna þegar eitt barnabarnið kom í heiminn. Klukk- una fékk hún í Góða hirðinum. Töskur unnar úr traktora- og reiðhjólaslöngum. Kanínur af ýmsum gerðum. Brot af því sem Marianna hefur gert.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.