Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 24
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202124 Eigendur Græna kompanísins í Grundarfirði efndu til ljóðasam- keppni meðal barna í bæjarfélag- inu frá 14. apríl til 1. maí sl. „Við vorum með þennan fallega glugga með taflborðið fyrir innan og út- sýnið yfir Kirkjufellið og okkur langaði að skreyta hann á einhvern einstakan hátt,“ segir Lilja Magn- úsdóttir einn af eigendum Græna kompanísins í samtali við Skessu- horn. „Þannig kviknaði sú hug- mynd að fá krakkana í Grundar- firði í lið með okkur, enda her- bergið sem glugginn er í svokallað barna- og unglingabókaherbergi. Svo við efndum til ljóða/smásagna- samkeppni meðal krakkanna hér í plássinu með það fyrir augum að Aðalfundur Skógræktarfélags Borg- arfjarðar var haldinn sunnudag- inn 2. maí síðastliðinn. Þar hætti Óskar Guðmundsson sem formað- ur félagsins og tók Pavle Estrajher við keflinu. Laufey Hannesardóttir verður áfram gjaldkeri, Ragnheið- ur Freysteinsdóttir er markaðs- stjóri, Sigursteinn Sigurðsson með- stjórnandi og Hafdís Huld kemur ný inn í stjórnina, einnig sem með- stjórnandi. Loks verður Friðrik Aspelund framkvæmdastjóri félags- ins í verktakavinnu. Félagar SB eru um 150 talsins og hefur félagið í sinni umsjón fjög- ur skógræktarsvæði innan Borg- arbyggðar: Einkunnir, daníels- lund, Reykholt og Grafarkot. Að sögn Pavle, nýs formanns SB, þá er markmið félagsins ávallt að fá fleiri félaga inn í starfið en meirihluti starfseminnar er í sjálfboðavinnu að undanskildum framkvæmdar- stjóra sem er í um 30% starfi. Hef- ur stjórn SB áætlanir um að bæta við félögum með því að skipuleggja viðburði á skógræktarsvæðum sín- um sem vekja vonandi áhuga fólks á útivist, sveppatínslu, náttúruvernd og fleiru. Vilja byrja framleiðslu Ýmis mál eru á dagskrá hjá nýrri stjórn skógræktarfélagsins. Stefnt er á að hefja framleiðslu á hráefni úr borgfirskum viði og er áætlað að hefja framleiðslu á eldivið svo dæmi sé tekið. Til þess þarf félagið hús- næði en Pavle segir að búið sé að senda fyrirspurn á Borgarbyggð og beðið sé svara hvað það varð- ar. Hann segir engu að síður brýna nauðsyn að fá húsnæði til að hægt sé að fara af stað með framleiðslu yfir höfuð og vill ólmur senda orð út í kosmósið, að ef einhver veit um húsnæði fyrir félagið að þá má hafa samband við hann. Hugmynd- in með að hefja framleiðslu er til að nýta allt hráefni til fulls eins og þegar skógar eru grisjaðir, að allt efni sé endurnýjað á einn eða ann- an hátt. Pavle segir möguleikana nokkra og væri hægt að bæta trjá- kurli og spæni við framleiðsluna síðar meir, verði af þessu. Samstarf við Ferðafélag Borgarfjarðar Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Ferðafélag Borgarfjarðar munu sameina krafta sína og fara í sam- starf til að betrumbæta gönguleið- ir í fólkvanginum Einkunnum við Borgarnes. Ákveðið hefur verið að ferðafélagið muni fara yfir göngu- leiðir í Einkunnum, merkja og endurnýja stikur þar sem við á og lagfæra skilti til að auðvelda gest- um að rata um svæðið og nýta það til fulls. Að auki hefur landvörð- ur landshlutans kynnt fyrir skóg- ræktarfélaginu ákveðna verndar- áætlun og fór yfir hvað mætti bet- ur fara í Einkunnum. Loks er búið að hefja viðræður við Skógræktar- félag Akraness um mögulegt sam- starf til að nýta tækjakost sem þarf að hafa til að viðhalda útivistar- svæðum á borð við Einkunnum í Borgarnesi og Garðalundi á Akra- nesi. glh Síðastliðinn laugardag var fjórða og síðasta mótið í Snæfellings- mótaröðinni í hestaíþróttum hald- ið í Reiðhöllinni í Ólafsvík. Fyrri mót í röðinni voru haldin í Söð- ulsholti, Stykkishólmi og Grund- arfirði. Góð þátttaka hefur verið á mótunum í vetur þrátt fyrir sam- komutakmarkanir. Í mótaröðinni taka keppendur með sér stig úr hverju móti og fer stigafjöldi eft- ir því í hvaða sæti keppandi lendir í. Samanlagður stigafjöldi úr öllum mótum ræður svo úrslitum í móta- röðinni. Keppt var í fjórum flokk- um. Í flokki 10 til 13 ára var Hauk- ur Orri Bergmann Heiðarsson í fyrsta sæti. Í flokki 14 til 17 ára var Harpa dögg Bergmann Heiðars- dóttir í fyrsta sæti. Í flokki minna vanra var Veronica Osterhammer í fyrsta sæti og í flokki meira vanra Gunnar Tryggvason. Einnig var pollaflokkur þar sem upprennandi hestamenn tóku sín fyrstu spor í keppni. Heppnaðist mótaröðin í vetur mjög vel enda mikil gróska í hestamennsku á svæðinu og fer vaxandi. þa Þau báru sigur úr býtum í keppninni. Úrslit í Snæfellsnes- mótaröðinni Ljóðið „Vertu þú“ eftir Jódísi Kristínu og Ísabellu Ósk. Ljóðasamkeppni meðal barna í Grundarfirði Sigurvegarar í ljóðasamkeppninni. F.v. Steinunn Cecilia, Jódís Kristín, Ísabella Ósk og Heiðrún. Gestir fylgdust með verðlaunaafhendingu á miðvikudaginn í síðustu viku. fá eitthvað skemmtilegt sem hægt væri að skrifa í gluggann,“ heldur Lilja áfram. Viðtökurnar voru góð- ar og bárust þeim 30 ljóð. „Þegar við ætluðum að velja einn sigurveg- ara voru þrjú ljóð sem báru af og ekki hægt að velja á milli. Svo nið- urstaðan varð sú að við enduðum með þrjá sigurvegara og ljóðin þrjú skreyta nú gluggann okkar fína,“ segir Lilja. Verðlaun voru veitt á miðviku- daginn í síðustu viku og fengu sig- urvegarar veitingar og bók að eigin vali. Sigurvegarar í ljóðasamkeppn- inni eru: Jódís Kristín Jónsdóttir og Ísa- bella Ósk davíðsdóttir með ljóðið „Vertu þú“ Heiðrún Oddsdóttir með ljóðið „Regn“ Steinunn Cecilia Steinardóttir með ljóðið „Fiðrildi.“ arg/ Ljósm. Signý Gunnarsdóttir Fólksvangurinn Einkunnir er vinsælt útivistarsvæði rétt fyrir utan Borgarnes, sem margir nýta sér til heilsubótar. Skógræktarfólk vill vekja áhuga fólks á útivist

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.