Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 28
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202128 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Pennagrein Í rekstri sveitarfélaga koma oftar en ekki upp hugmyndir og/eða vanda- mál sem þarfnast ríkulegs skilnings, stuðnings og oftar en ekki, skjótr- ar úrlausnar, löggjafans og fjár- veitingavaldsins. Eðli málsins sam- kvæmt eru því sveitarstjórnarmenn í reglulegum samskiptum við al- þingismenn hvers kjördæmis. Alþingismenn líkt og sveitar- stjórnarmenn eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Áhugasviðið mismun- andi og svo ræður pólitískur styrk- leiki þeirra auðvitað nokkru hvers þeir eru megnugir á þingi. Nú eru brátt liðin 12 ár síðan ég hlaut fyrst kjör sem bæjarfulltrúi á Akranesi og hef ég síðan marga fjöruna sopið í baráttu fyrir hags- munum Akurnesinga og míns kjör- dæmis. Á undanförnum fimm árum hef- ur Haraldur Benediktsson leitt lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvestur- kjördæmi og í kjölfar góðs árangurs í kosningum verið fyrsti þingmaður kjördæmisins. Hann hefur á þess- um árum skapað sér mikið traust með störfum sínum sem í hans til- felli nær langt út fyrir raðir Sjálf- stæðisflokksins. Það hefur verið auðvelt að ná sambandi við hann og hann hefur alltaf brugðist skjótt við þeim erindum sem honum berast. Samstarf okkar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins við Harald hef- ur verið ákaflega traust og saman höfum við náð farsælli lausn í mörg- um baráttumálum. Lausn sem ekki hefur verið augljós við fyrstu sýn. Af mörgu er að taka. Þar ber hæst framganga hans til réttlátrar lausn- ar í uppgjöri á lífeyrisskuldbinding- um kaupstaðarins, fjármögnun end- urbyggingar Faxabrautar, aukning fjárveitinga af ýmsum toga til Heil- brigðisstofnunar Vesturlands, bar- átta fyrir byggingu Sundabrautar, flýting á breikkun vegar um Kjal- arnes, framlag til Þróunarfélags Grundartanga tryggt svo einhver af þeim verkefnum séu nefnd er upp hafa komið og segja má að séu utan þeirra venjubundinna verkefna er snúa að starfi þingmanna. Á næstu misserum bíða mörg verkefni svo tryggja megi viðsnún- ing í fjármálum hins opinbera í kjölfar veirufaraldursins. Í þeirri baráttu mun reyna á styrk Harald- ar eftir áralanga reynslu hans í fjár- laganefnd. Okkar bíða einnig þau verkefni að tryggja betur ýmsa at- vinnustarfsemi er tengist útsvar- stekjum Akraneskaupstaðar. Þar ber væntanlega hæst að tryggja áframhaldandi starfsemi stóriðj- unnar á Grundartanga og framþró- un hennar. Því miður hefur ríkis- stjórnin ekki getað tryggt þá starf- semi á sama tíma og henni tókst með álverið í Straumsvík. Það er því mikið fagnaðarefni að Haraldur hafi áfram gefið kost á sér í oddvitasæti Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi. Það gerði hann m.a. eftir áskoranir á bæjarmálafundum hjá okkur Sjálf- stæðismönnum á Akranesi. Ekki er óeðlilegt að grípa til samlíkingar úr íþróttum þegar ég segi að mað- ur breytir ekki sigurliði. Þar þurfa heildarhagsmunir íbúa kjördæmis- ins að ráða. Mín skoðun er því sú að framboðslisti Sjálfstæðisflokks- ins er sigurstranglegastur undir forystu Haraldar Benediktssonar. Einar Brandsson Höf. er bæjarfulltrúi á Akranesi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ísland heldur toppsæti sínu sem það Evrópuland þar sem hæst hlut- fall heimila nýtir sér ljósleiðara- tengingu til að uppfylla gagna- flutningsþörf heimilisins. Þetta var kynnt á fundi í síðustu viku þar sem Fibre to the Home Council Europe kynnti stöðuna í álfunni miðað við september síðastliðinn. Í skýrslunni sem tekur mið af stöðunni í sept- ember 2020 nýttu 70,7% íslenskra heimila sér ljósleiðaratengingu en nálægt 90% heimila í landinu eru ljósleiðaratengd. Í öðru sæti í nýt- ingu þessarar öflugu tengingar var Hvíta Rússland með 70,1% nýt- ingu og í þriðja sæti Spánn með 62,6% nýtingu. mm Stundum er sagt í hálfkæringi að það fyrsta sem hverfi í aðdrag- anda kosninga séu staðreynd- ir. Þetta rifjaðist upp á dögunum þegar Sigurður ingi Jóhannsson samgönguráðherra kynnti um síð- ustu styrktarsamninga Fjarskipta- sjóðs við sveitarfélög um ljósleið- arauppbyggingu í dreifbýli. Síðar á þessu ári og því næsta lýkur því átakinu. Hafa þá 57 sveitarfélög hlotið styrki til teng- ingar á 6.200 stöðum frá því að verkefnið hófst árið 2016. Að auki hafa sveitarfélög og íbúar hinna dreifðu byggða komið að fjár- mögnun verkefnisins. Á einung- is fimm árum hefur átakið fært dreifbýli á Íslandi frá því að vera með afleita nettengingu í teng- ingu eins og þær gerast bestar. Að auki stóðst verkefnið áætlanir um kostnað og tíma þrátt fyrir að umfangið hafi orðið 60% meira en áætlað var í upphafi. Því mið- ur eru það ekki algengar fréttir í opinberum framkvæmdum. Þrátt fyrir að verkefninu sé ekki að fullu lokið er þegar komið í ljós hversu stórstígar framfarir verða með þessu átaki í hinum dreifðu byggðum. Allir þekkja reynsluna úr Covid-19 faraldrinum þegar fólk gat tekið vinnuna með sér heim án fyrirvara. Í rannsókn sem Vífill Karlsson hagfræðingur hefur nýverið birt koma fram fjölmarg- ir jákvæðir þættir í kjölfar ljóð- leiðaravæðingarinnar og má þarf nefna meira atvinnuöryggi, hærri launatekjur, meira atvinnuúrval, hagfelldara vistspor, bætt aðgengi að menntun og menningu og um- fram allt hefur byggðafesta aukist á þeim svæðum sem styrkjanna hafa notið. Allt eru þetta atriði sem fáir hefðu talið sig geta séð gerast fyrir örfáum árum síðan. Eins og áður sagði hófst verk- efnið árið 2016 í ráðherratíð Ólaf- ar Nordal en undirbúningur 2014 í tíð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í innanríkisráðuneytinu. Ólöf fól Haraldi Benediktssyni að stjórna verkefninu fyrir hönd stjórnvalda og hefur hann leyst það afar vel af hendi og tekist að skapa pólitíska sátt um það þannig að mikill sómi er að. Hann hefur jafnframt viðr- að hugmyndir um hvort hægt sé að nýta verklagið við ljósleiðaravæð- inguna í átak til fleiri verkefna eins og lækkunar húshitunarkostnaðar í dreifbýli og lagningu tengivega. Vonandi verða þær hugmyndir að veruleika auk þess sem einnig verði ráðist í sambærilegt átak við ljósleiðaravæðingar smærri þétt- býlisstaða. Hér hafa verið nefndar stað- reyndir í sögu þessa átaks. Á kynningarfundi Sigurðar inga sem nefndur var í upphafi þessar- ar greinar taldi hann sig hins vegar upphafsmann átaksins. Það stað- festir sem fyrr var nefnt að reynt sé að breyta staðreyndum í að- draganda kosninga. Sigurður ingi og Framsóknarmenn munu hvorki skreyta sig né fljúga langt á stoln- um fjöðrum þessa máls. Svo vel þekkja menn forsögu þess. Halldór Jónsson Höfundur er áhugamaður um byggð í landinu öllu Ísland í fararbroddi í nýtingu ljósleiðara í Evrópu Veldur hver á heldur Framsókn reynir að fljúga með stolnum fjöðrum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.