Þjóðmál - 01.12.2016, Blaðsíða 31
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra ákvað að hætta ístjórnmálum. Hún
naut víðtæks stuðnings frá upphafi.
fréttum enda sannfærðir um að tímasetning
úrsagnarinnar hafi fyrst og síðast miðast við
að valda sem mestum skaða.
Glæsileg kosning
Ragnheiður Elín Árnadóttir, sem ákvað að
hætta í stjórnmálum eftir prófkjör í Suður-
kjördæmi í september síðastliðnum, naut
strax víðtæks stuðnings þegar hún haslaði
sér völl í stjórnmálum. Hún bauð sig fyrst
fram í Suðvesturkjördæmi - náði fimmta sæti
í prófkjöri og var kjörin á þing 2007.Tveimur
árum síðar flutti hún sig um set í Suðurkjör-
dæmi og ekki varð árangurinn lakari.
Fjórar konur voru í sex efstu sætunum í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi árið 2009. Ragnheiður Elín vann góðan
sigur í fyrsta sæti og lagði Árna Johnsen.
Unnur Brá Konráðsdóttir varð í þriðja sæti, íris
Róbertsdóttir í því fjórða og Björk Guðjóns-
dóttir í sjötta.
Fjórum árum síðar hlaut Ragnheiður Elín
glæsilega kosningu í fyrsta sætið með 64%
atkvæða og liðlega 82% atkvæða í heild.
Unnur Brá náði öðru sætinu með meira en
tvöfalt fleiri atkvæði en sá sem kom næstur.
Ragnheiður Elín varð ráðherra í ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks 2013-
2016.
í prófkjöri í Suðvesturkjördæmi fyrir
kosningarnar 2013 var Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir kjörin í annað sæti listans, á eftir Bjarna
Benediktssyni. Ragnheiður atti kappi við Jón
Gunnarsson og hafði betur með nokkrum
yfirburðum. f sama prófkjöri steig ný kona
inn á sviðið. Elín Hirst náði fimm sætinu með
um 52% atkvæða og 67% heildaratkvæða.
Hún settist á þing í framhaldinu. Ragnheiður
var formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins
frá 2013 uns hún ákvað að draga sig í hlé og
gefa ekki kost á sér í síðustu kosningum.
Ólöf Nordal hefur alla tíð notið velgengni
innan Sjálfstæðisflokksins. Hún náði þriðja
sæti í prófkjöri flokksins í Norðausturkjör-
dæmi fyrir kosningarnar 2007. Þetta var
hennar fyrsta tilraun. Þremur árum síðar var
hún kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Fyrir kosningarnar 2009 færði Ólöf sig til
Reykjavíkur en hún ákvað að sækjast ekki
eftir endurkjöri 2013.
Eftir að Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af
sér sem innanríkisráðherra var Ólöf, sem þá
var utan þings, fengin til að setjast í ráðu-
neytið. Hún var síðan kjörin varaformaður
á landsfundi 2015. Á sama fundi var Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir kjörin ritari flokksins.
Þannig eru konur í tveimur af þremur æðstu
embættum Sjálfstæðisflokksins. Ólöf tók þátt
í prófkjöri fyrir alþingiskosningar í haust og
hlaut yfirburða kosningu í 1. sæti.
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 29