Þjóðmál - 01.09.2015, Page 61

Þjóðmál - 01.09.2015, Page 61
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 59 aldrei átti sér stað raunverulegt samtal milli manna, engar umræður. Lilja Mósesdóttir sagðist eitt sinn hafa gengið á Steingrím J. á þingflokksfundi vegna skulda útgerðinnar. Án niðurfellingar þeirra yrði aldrei unnt að gera breytingar á fiskveiðistjórnunar- kerfinu, líkt og kveðið var á um í samstarfs- samningi stjórnarflokkanna. Steingrímur sagði að ekki væri gert ráð fyrir neinum afslætti á skuldum útgerðarinnar. Þá sagði Lilja: „Þú ert þá að segja að ekkert verði gert til að breyta kvótakerfinu.“ Steingrímur svaraði Lilju engu. Lilja segir samskipti í þingflokknum hafa verið í hæsta máta yfirborðsleg og til þess fallin að halda málum leyndum. Sama hafi verið upp á teningnum í þingsalnum. Lilju sýndist þó ástandið sýnu verra í Samfylkingunni. Þar hafi aldrei mátt ræða nokkurn skapaðan hlut. Hún kveðst fljótt hafa náð ágætu sambandi við þingmenn Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks og þaðan fékk hún miklu meiri upplýsingar um ýmis málefni heldur en frá samflokksmönnum. Alltaf voru það sömu þingmenn Vinstri grænna sem létu í sér heyra, en þeir hinir sömu skilgreindir sem „nöldurseggir“. Þetta var hópur- inn í kringum Ögmund Jónasson, Lilja sjálf, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Atli Gíslason og að nokkru leyti Ásmundur Einar Daðason. Þessi hópur hittist oft, ýmist heima hjá Ögmundi eða Lilju. Hún segir ástandið hafa verið mjög undarlegt, en stundum voru þingflokksfundir haldnir á miðnætti og reglulega var „órólega fólkið“ minnt á að það fengi „íhaldið aftur“ með þessu áframhaldi: „Þið viljið íhaldið aftur,“ var viðkvæðið. „Ég var til í að fella ríkisstjórnina, en ekki allir. Það urðu örlög hópsins,“ segir Lilja og vísar til „órólega hópsins“. Jóhanna Sigurðardóttir vandaði þessum þingmönnum Vinstri grænna ekki kveðjurnar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar þegar hún sagði um þennan hóp að „of mikil orka og tími“ færi í að „smala þeim saman og ná málum í gegn“. Þá vísaði hún til orða ónefndrar flokkssystur sinnar sem sagt hafði að þetta væri „eins og að smala köttum“. Lilja Mósesdóttir segir Steingrím J. hafa talað á þessum tíma í predikunartón og mikið stuðst við biblíulegar tilvitnanir og bætir við: „Steingrímur J. Sigfússon er mjög merkileg týpa. Hann upplifði sjálfan sig sem frelsara.“ Eins og áður var minnst á mun Steingrímur telja að hann hafi bjargast úr bílslysinu forðum fyrir forsjón almættisins og að hann hefði verk að vinna hér á jörð. Á þingflokksfundum varð honum tíðrætt um „göngin“. Það var sífellt verið að ræða um „göngin“ og „ljósið við enda ganganna“. Það væri engu líkara en hann teldi sig vera að sinna guðlegri köllun. Jón Bjarnason tekur í sama streng í samtali við höfund og segir að Steingrímur hafi ítrekað rætt um það á þingflokksfundum að hann væri „blóðrisa á bakinu“ eftir erfiðið og þyrfti stöðugt að bæta á sig verkefnum. Í raunum sínum bar það við að Steingrímur hótaði þing- flokknum að segja af sér. Í eitt skipti er hann gerði það mælti Atli Gíslason þingmaður: „Góði besti segðu þá af þér!“ Fátt var um svör hjá Steingrími. Líklega hefur enginn stjórnarflokkur hér- lendis þurft að glíma við jafnmikla stjórnarand- stöðu meðal eigin þingmanna og vinstristjórnin 2009–2013. Ekki einasta gekk Ögmundur úr ríkisstjórn heldur vann Jón Bjarnason, þing- maður og ráðherra flokksins, nokkrum sinnum á móti stefnu stjórnarinnar og fleiri þingmenn greiddu atkvæði gegn stjórnarfrumvörpum. Steingrímur segir Ögmund hafa fengið bak- þanka yfir því að ganga úr stjórninni. Ögmundur kom þó ekki aftur inn í stjórnina fyrr en í september 2010 og settist í stól innanríkis- ráðherra. Alls gengu fjórir þingmenn úr þing- flokki Vinstri grænna á kjörtímabilinu og einn afsalaði sér þingmennsku. Heldur betur hafði orðið breyting, því áður ríkti mikil eindrægni meðal þingmanna flokksins á sama tíma og hinir þrír höfuðflokkarnir glímdu reglulega við innbyrðis erjur. Steingrímur telur að hér hafi mestu skipt að margt nýtt fólk hafði komið inn 2009. Það hafi ekki haft neinn „tíma til að skólast til“ eins og hann orðar það í bókinni Frá hruni og heim. Steingrímur einkavæðir bankana Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein- gríms J. Sigfússonar varði gríðarlegum fjármun- um, milljörðum á milljarða ofan, til vonlausra „Steingrímur J. Sigfússon er mjög merkileg týpa. Hann upplifði sjálfan sig sem frelsara.“

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.