Þjóðmál - 01.09.2015, Side 88

Þjóðmál - 01.09.2015, Side 88
86 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 sókna og kostamats sé skilvirkt, og það verður að gæta þess að fara ekki of djúpt í saumana á virkjunartilhögun á þessu stigi, því að dýpri rannsóknir eru hlutverk þess, sem rannsóknar- leyfið hlýtur, eða virkjunarfyrirtækisins við mat á umhverfisáhrifum og við verkhönnun virkjunar- innar, sem síðan að lokum þarf samþykki Orkustofnunar og framkvæmdaleyfi viðkomandi sveitarfélags. Löggjafinn hefur sett mýmarga varnagla, sem hindra eiga einsýni við val á tilhögun eða óafturkræf náttúruspjöll. Í raun virðist grunnstefið yfirleitt vera, að náttúran fái að njóta vafans, með þeirri undantekningu, að of ágeng nýting jarðhitasvæða, einkum háhita, hefur verið leyfð. Vinda þarf ofan af því, þó að það geti leitt til meiri þarfar á vatnsafls- virkjunum um sinn. Síðan á 7. áratugi 20. aldarinnar, þegar áhugamenn um nýtingu orkulindanna hér á landi óttuðust samkeppni frá kjarnorkuverum, hafa menn talið, að íslenzkar orkulindir væru samkeppnishæfar í alþjóðlegu samhengi. Gríðarleg þróunarvinna hefur síðan 1990 farið fram til leysa orkuvandamál heimsins, sem stafar af gríðarlegum bruna jarðefnaeldsneytis við raforkuvinnslu og til að knýja farartæki. Margvíslegur árangur hefur náðst, en nú er komin fram á sjónarsviðið ný tilhögun kjarn- orkuvera, sem strax á næsta áratugi er talin geta keppt við nýtingu íslenzku orkulindanna. Ef væntingar til Þóríum-kjarnorkuveranna rætast, stórra og smárra, þá munu íslenzku orkulindirnar hrapa í verði, ef marka má grein7) í Morgunblaðinu í sumar, þar sem spáð var vinnslukostnaði raforku frá Þóríum-orkuverum árið 2030 undir 10 USD/MWh8 . Greininni lýkur á eftirfarandi hátt: „Frumefnið Þóríum heitir í höfuðið á norræna þrumuguðinum Þór. Það er kannski táknrænt, að Þóríum mun væntanlega hafa mikil áhrif hér á Sögueyjunni. Í mínum huga er það þannig, að við höfum um þrjú ár til að fá hingað orkusækinn iðnað. Eftir það fer varla nokkur norður í Ballarhaf til að ná sér í orku. Enginn veit því fyrir víst í hvaða stöðu við verðum til að semja um raforkuverð eftir nokkur á.“ Af öllum þeim ástæðum, sem raktar hafa verið í þessari grein, ber brýna ástæðu til að auka skilvirkni frummats og flokkunarferlis orkulindanna jafnframt því, sem tryggja þarf, að áhrif stjórnmálamanna komi ekki við sögu bráðabirgða kostnaðarmats og umhverfismats, sem eru undanfari endanlegrar flokkunar í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk. Eðli- legt má hins vegar telja, að endanleg flokkun sé á hendi Alþingis, enda hafa margir þingmenn jafnan mikinn áhuga á þessu máli, og það varðar ríka hagsmuni í bráð og lengd. Þingmenn hafa í þessu máli sem öðrum frjálsar hendur, en aðeins í undantekningartilvikum ættu þeir að hafa ástæðu til að sniðganga leiðbeiningarnar, sem fólgnar eru í bráðabirgða kostnaðar- og umhverfismati, sem hér er lagt til, að OS annist, og þá er jafnframt gerð krafa um ítarlegan rökstuðning. Til að einfalda stjórnsýsluna í þessum efnum og bæta núverandi ferli, eins og rakið hefur verið, liggur beint við að fela OS verkefni Verkefnastjórnunar Rammaáætlunar með laga- breytingu um OS um leið og lögin um „verndar og orkunýtingaráætlun“ verða afnumin eða heimfærð á OS. Tilvísanir og skýringar: 1) Heimasíða Orkustofnunar, OS. 2) ON – Orka náttúrunnar, er dótturfélag Orku- veitu Reykjavíkur, OR 3) Ólafur Flóvenz er dr. scient í jarðeðlisfræði og forstjóri Íslenskra orkurannsókna, ÍSOR. 4) Guðni Axelsson er PhD í forðafræði jarðhita og sviðsstjóri kennslu og þróunar hjá ÍSOR. 5) Vefsetur höfundar: http://www.bjarnijonsson.blog.is 6) TWh/a: les terawattstundir á ári, tera =1000 giga = 1000´000 mega 7) Kjartan Garðarsson, vélaverkfræðingur, Morgunblaðið 11. júlí 2015, „Orkubyltingin mikla er að hefjast“. 8) 10 USD/MWh = 1,30 kr/kWh m.v. 1 USD=130 kr . Af öllum þeim ástæðum, sem raktar hafa verið í þessari grein, ber brýna ástæðu til að auka skilvirkni frummats og flokkunar- ferlis orkulindanna jafnframt því, sem tryggja þarf, að áhrif stjórnmálamanna komi ekki við sögu bráðabirgða kostnaðarmats og umhverfismats, sem eru undanfari endanlegrar flokkunar í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.