Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 90

Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 90
88 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 nýjar bækur Á þessum tíma var forgangsverkefni mitt að reyna að stöðva þann stórfellda þjófnað sem átti sér stað á eignasafni sjóðsins. Hermitage Fund hafði þegar tapað 90% af verðgildi sínu á rússneska greiðslufallinu og nú voru ólígarkarnir að stela þeim 10% sem stóðu eftir. Sjóðurinn yrði tæmdur ef ég gerði ekkert í málinu. Þessi þjófnaður átti sér stað í öllum geirum viðskiptalífsins, frá bönkum að náttúruauðlindum en stærsta fyrirtæki Rússlands stóð öllum öðrum framar í þessu athæfi, olíu- og gasrisinn Gazprom. Þegar litið var til framleiðslu og mikilvægis var Gazprom eitt af mikilvægustu fyrirtækjum heims en þó var allt markaðs- virði þess, 12 milljarðar dala, lægra en markaðsvirði meðal- stórs olíu- og gasfyrirtækis í Bandaríkjunum. Vetniskolefnis- lindir Gazprom voru 8 til 12 sinnum stærri en lindir tveggja stærstu olíufyrirtækja í heiminum, ExxonMobil og BP en samt gengu hlutabréf í Gazprom kaupum og sölum á 99,7% lægra verði en hlutabréf í þeim miðað við lindir mældar í olíufötum. Hvers vegna var verðið svo lágt? Einfalda svarið var að flestir fjárfestar töldu að 99,7% af eignum fyrirtækisins hefði verið stolið. En hvernig var hægt að stela næstum öllum eignum eins stærsta fyrirtækis í heiminum? Enginn vissi það með vissu en þó var litið á það sem staðreynd. Þrátt fyrir að ég vissi hversu viðsjárverðir Rússar geta verið gat ég varla trúað því að stjórn Gazprom hefði stolið öllu þessu. Ég gæti grætt stórfé ef einhvern veginn væri hægt að sýna fram á að mat markaðarins væri rangt. Ég þurfti að greina þetta fyrirtæki og finna út hvað raunverulega var í gangi. Ég þurfti með öðrum orðum að framkvæma „þjófnaðargreiningu“. Hvernig er þjófnaðargreining gerð á rúss- nesku fyrirtæki? Ekkert slíkt var kennt í viðskipta- deildinni í Stanford. Ég gat augljóslega ekki gengið fyrir stjórn Gazprom og storkað henni. Ég gat ekki heldur spurt greinendur neins alþjóðlegs fjárfestingarbanka. Það eina sem skipti þá máli var að fá greitt fyrir vinnu sína sem fól í sér að þeir voru svo háðir stjórn Gazprom að þeir viður- kenndu aldrei opinberlega þann svívirðilega þjófnað sem átti sér stað fyrir augunum á þeim. Þegar ég velti þessu fyrir mér varð mér ljóst að reynslan frá BCG var einhvers virði í þessu sambandi. Í ráðgjafastarfinu hafði ég lært að besta leiðin til að fá svör við erfiðum spurningum var að finna fólk sem þekkti svörin og spyrja það. Ég setti því saman lista yfir fólk sem vissi eitthvað um Gazprom: keppnauta, viðskiptavini, birgja, fyrrum starfsfólk, eftirlitsaðila og svo framvegis. Ég bauð síðan hverjum og einum í morgunverð, hádegisverð, kvöldverð, te, kaffi eða eftirrétt. Ég vildi ekki hræða fólkið of fljótt og sagði því þess vegna ekki í neinum smáatriðum eftir hverju ég væri að sækjast. Ég sagði bara að ég væri fjárfestir frá Vesturlöndum og hefði áhuga á að ræða við það. Mér til undrunar þáðu boðið þrír af hverjum fjórum af þeim um það bil 40 manneskjum sem voru á listanum mínum. Sá sem við hittum fyrst var yfirmaður áætlana- gerða hjá litlum keppinaut Gazprom. Hann var sköllóttur og dálítið of feitur, með sovéskt úr Eftirlýstur Kaflabrot úr bókinni Eftirlýstur eftir Bill Browder. Viðskipti og stjórnmál í Rússlandi samtímans. Mögnuð sönn frásögn af spillingu, ofbeldi og morði. Almenna bókafélagið gefur út.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.