Fiskifréttir


Fiskifréttir - 30.08.1996, Page 1

Fiskifréttir - 30.08.1996, Page 1
ISSN 1017-3609 FRETTIR 32. tbl. 14. árg. föstudagur 30. ágúst 1996 V* Smuguveiðarnar: Búið að landa 4000tonnum — lélegt hjá ísfiskskipunum en þokkalegt hjá vinnsluskipum Nú í lok vikunnar stefndi í að landaður afli íslenskra togara út Smugunni á þessu sumri væri kominn í rúm 4000 tonn, miðað við afla upp úr sjó, samkvæmt athugun sem Fiskiféttir hafa gert. Um miðja vikuna voru 17 skip búin að landa afla úr Smugunni eða voru á landleið og er áætlað aflaverðmæti þessara skipa um 340 milljónir króna. Þessar tölur styðja ágiskanir norsku strandgæslunnar um að Smuguaflinn í sumar geti verið orðinn ríflega 20 þúsund tonn. í hópi skipanna, sem landað hafa afla fram að þessu eða eru á heimleið, eru fáir frystitogarar en þeim mun fleiri saltfisktogarar og ísfisktogarar. Ljóst er að fæst ís- fiskskipanna hafa riðið feitum hesti frá veiðunum í Barentshafi. Þó virðist Már SH hafa gert ágætan túr en togarinn landaði 220 tonn- um af ísfiski í Englandi í sl. viku að verðmæti 20 millj. kr. Dagrún IS seldi einnig í Englandi og fékk 11 millj. kr fyrir 120 tonna afla. Mun lakari er árangur ísfiskskipanna Harðbaks EA, Kaldbaks EA, Hoffells SU og Hólmaness SU en þessir togarar voru með 37-60 tonn af ísfiski að verðmæti 2,4 til 5 millj- ónir króna. Saltfisktogararnir hafa margir hverjir náð þokkalegum ár- angri og þannig voru, Hegranes SK, Klakkur SH og Akurey RE með 23-25 millj. kr túra og Rauði- núpur ÞH var með um 15 millj. kr aflaverðmæti. Af skipunum 16 voru aðeins fjórir frystitogarar og þar af höfðu þrír, Engey RE, Örfirisey RE og Hrafn Sveinbjarnarson GK náð ágætum árangri. Afli skipanna upp úr sjó var að jafnaði 500-600 tonn og aflaverðmætið 50-65 millj. kr. Alls hafa um 50 íslenskir togarar verið að veiðum í Smugunni og búast má við því að aflatölur og aflaverðmæti hækki verulega þegar vinnsluskipin ljúka sínum túrum. í þessu sambandi má nefna að Málmey SK var komin með rúmlega 70 milljón króna aflaverð- mæti í sl. viku en togarinn var þá enn að veiðum. Sjá nánar bls. 9 Krístrún RE: Reynir netaveiðar á Hryggnum — um leið og haldið verður til línuveiða Áform eru uppi um að áhöfn Kristrúnar RE reyni netaveiðar djúpt úti á Reykjaneshryggnum á næstunni. Skipið er eitt sjö ís- lenskra línuskipa, sem fengið hafa leyfi til þess að veiða karfa utan kvóta á hryggnum á tímabilinu frá 1. ágúst til 15. október nk, og að sögn Ásbjörns Jónssonar hjá Fisk- kaupum hf. nær leyfið einnig til netaveiða. Kristrún RE hefur verið að netaveiðum að undanförnu á hefð- bundnum miðum og að sögn Ás- björns hafa aflabrögðin verið frek- ar léleg. Því hafi verið ákveðið að halda til veiða út á Reykjanes- hrygginn en þar hefur mjög stór karfi fengist á línuna. Samkvæmt tilraunaveiðileyfi sjávarútvegs- ráðuneytisins má veiða karfann ut- an kvóta fyrir utan línu sem dregin er nokkurn veginn 150 mílur frá landi en þetta er sama svæðið og úthafskarfatogararnir hafa fengið að stunda veiðar á án þess að leggja kvóta á móti veiðinni. — Við eigum 20 net sem þola meira dýpi en er að finna á hefð- bundinni netaslóð. Þessi net á að vera hægt að leggja niður á um 600 metra dýpi án þess að þau eyði- leggist og við höfum hugsað okkur að gera tilraun til þess að veiða karfann í þau. Netaveiðar hafa verið stundaðar á stórum karfa úti á Fjöllunum og við erum nokkurn veginn vissir um að það er hægt að fá þennan karfa í netin dýpra úti á hryggnum, segir Ásbjörn Jónsson. Dýrasti matfískur í heimi veiðist í lögsögunni!. Bláuggatúnfiskur gengur inn í ís- lensku landhelgina. Þetta er niður- staða tilraunaveiða á túnfiski sem japönsk skip stunduðu nú í ágúst- mánuði. Tvö skip fengu leyfi til veiðanna og fékk annað þeirra stærsta túnfiskinn í veiðiferðinni innan landhelginnar. Fiskurinn var 2,64 metrar á lengd, 337 kíló að þyngd og áætlað verðmæti þessa eina fisks var rúmlega 800 þúsund ísl. krónur. Myndina tók Hörður Andrésson um borð í túnfiskveiðiskip- inu Ryuo Maro Sjá nán- ar bls. 8 SKIPAÞJONUSTA Íssoí Olíufélagið hf Sjö íslensk línuveiðiskip hafa nú fengiö leyfi til að stunda utankvótaveiðar á stórum karfa innan landhelginn- ar á svæðinu frá um 150 mflum og út að 200 mflunum á Reykjaneshryggnum. f leyfinu felst einnig að Ieyft verður að veiða karfann í net og hyggst áhöfn a.m.k. eins línuskips gera tilraun til netaveiða. Meðfylgjandi mynd var tekin um borð í Kristbjörgu VE úti á Reykjaneshryggnum en skipið hefur stundað veiðar á hryggnum með góðum árangri tvö undanfarin sumur. Maðurinn, sem snýr baki í myndavélina, heitir Geirharð Guðmundsson en niður um lúguna gægist Fldjárn Már Hallgrímsson Mynd/Fiskifréttir: Gunnar Oddsteinsson

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.