Fiskifréttir


Fiskifréttir - 30.08.1996, Page 3

Fiskifréttir - 30.08.1996, Page 3
FISKIFRÉTTIR föstudagur 30. ágúst 1996 Fiskiskip/endurbætur Steinunn SH orðin sem ný — eftir umfangsmiklar endurbætur Steinunn SH 167 frá Ólafsvík hefur gengist undir miklar breytingar undanfarin ár. Segja má að smiðshöggið hafi verið rekið á verkið í vor og sumar og var skipið sem nýtt þegar eigendurnir tóku við því nú í vikunni að lokum síðasta þættinum í þessum endurbótum. Haustið 1990 hófst fyrsti kafli þessa verks þegar nýr vélbúnaður var settur í skipið, þ. á. m. ný 715 hestaafla Caterpillarvél. Síðastlið- ið haust var svo settur nýr skutur á skipið og við það lengdist það um tvo metra. Jafnframt var komið fyrir nýjum tækjum í brúna, þar á meðal ratsjá og dýptarmæli frá Furuno og stærri vélbúnaði fyrir Maxsea tölvu. í vor var svo tekið til hendinni á ný og allt endurnýjað ofan þilfars hjá Stálsmiðjunni hf. Komið var fyrir nýju stýrishúsi og byggt alveg út í stjór. Skipstjóra- klefinn færðist niður á miðhæðina og þar fékkst rými fyrir viðbótar- klefa. Eldhús og borðsalur voru færð til. Nýju sónartæki frá Furuno var bætt við í brúna. Nýjum snur- voðar- og togvindum frá Osey hf. var komið fyrir á skipinu. Pá var millidekkið endurnýjað og klætt, nýjar raflagnir settar og ýmsar aðr- ar lagfæringar gerðar. Að síðustu var Steinunni SH siglt til Skipa- smíðastöðvar Njarðvíkur þar sem hún var sandblásin og máluð með Hempels málningu frá Slippfélag- inu Málningarverksmiðju. Steinunn SH að loknum endurbótum nú í vikunni. (Mynd: Snorri Snorrason). Á dragnót allt árið Steinunn SH 167 er 144 brúttó- lesta stálbátur smíðaður í Garða- bæ árið 1971 en lengdur og yfir- byggður árið 1982. Hann er í eigu samnefnds útgerðarfélags í Olafs- vík en að því standa fimm bræður og faðir þeirra. „Það má segja að við séum komnir með nýjan bát, það er ekki hægt að hafa þetta öllu nýrra,“ sagði Brynjar Kristmun- dsson, einn eigendanna, í samtali við Fiskifréttir. „Síðastliðin tvö ár höfum við eingöngu verið á drag- nót og gengið ljómandi vel. Uppi- staða aflans er þorskur en á vorin höfum við verið að taka flatfisk. Við reynum að ná í skarkola þegar við getum, en fram að þessu höfum við ekki haft möguleika á tegund- um eins og skrápflúru. Til þess að geta stundað veiðar á henni þarf meira tóg en þá 1.000 faðma sem rúmast hafa á hverri tromlu. Eftir breytingarnar verður það hins veg- ar hægt. Ætlunin er að vera áfram á dragnótarveiðum, en við erum einnig útbúnir til veiða með netum og trolli, ef svo verkast vill,“ sagði Brynjar. Gervihnattaeftirlit í Smugunni: Fylgst með Smuguskipum utan úr geimnum Hvítu punktarnir tákna íslensku togarana sem raða sér á landhelgislínuna í suðvesturhorni Smugunnar. Teikning af Smugunni á innfellri mynd. Tromsö — Magnús Þór Hafsteinsson Meðfylgjandi mynd var tekin úr gervihnetti í 800 km hæð yfir Smugunni í Barentshafi 20. ágúst sl. og sýnir hvernig togararnir, sem þá stunduðu veiðar þar, dreifðust um svæðið. Hvítu punktarnir eru togararnir á dökkum haffletinum. Eins og sjá má togaði flotinn þá eftir línunum sem marka norsku efnahagslögsöguna í suðri og Sval- barðasvæðið í vestri. Myndin var tekin úr fullkomn- um ratsjárgervihnetti sem Kanadamenn skutu upp í nóvemb- er í fyrra. Norski sjóherinn kaupir myndir frá þessum gervihnetti sem sendar eru beint til jarðstöðvar í Tromsö. Norska strandgæslan styðst við þessar myndir til að fylgjast með skipaumferð í Bar- entshafi. Dagblaðið Norðurljós í Tromsö greinir frá því að síðast- liðna mánuði hafi umfangsmiklar prófanir fari fram á búnað hnattar- ins. Norðmenn hafa fjárfest í tækjabúnaði fyrir 200-250 milljónir ísl. króna til að taka á móti mynd- um frá hnettinum. Að sögn blaðs- ins tekur það hnöttinn einn og hálfan tíma að fara einn hring um- hverfis jörðu og hann getur vaktað svæði frá 300 ferkílómetrum niður í 10 fermetra í einu. Eins og sjá má staðfestir myndin lýsingar sjómanna á því hvernig togaraflotinn togar kerfisbundið eftir landhelgislínunum í von um að veiða þorskinn um leið og hann syndir inn í Smuguna. Væri lína dregin milli punktanna kæmu landhelgismörkin fram. Efst fyrir miðri mynd má greina sex skip sem að líkindum eru stödd inni á Svalbarðasvæðinu. Norð- menn segja þetta vera hentifána- togara, sem skráðir eru í Sierra Leone og Panama en eru flestir í eigu Portúgala. Þeir stunda þarna veiðar á skrápflúru í botntroll en reglugerðir um veiðar á Svalbarða- svæðinu ná ekki yfir skrápflúruna, sem hingað til hefur verið vannýtt í Barentshafi. Fj ölstof naráðstef na Hafrannsóknastofnunarinnar Hafrannsóknastofnunin býður til ráðstefnu þar sem niðurstöður svonefndrar fjölstofnaáætlunar stof- nunarinnar, sem staðið hefur yfir frá árinu 1992, verða kynntar með erindum og veggspjöldum. Tími: 3. og 4. september kl. 09 til 17 báða dagana. Staður: Scandic Hótel Loftleiðir - ráðstefnusalur. Fjallað verður um efni ráðstefnunnar í stuttum erindum (20 mínútur) á 6 þemafundum og með veggspjaldasýningu. Alls verða flutt 25 erindi og 10 veggspjöld verða til sýnis. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Dagskrá: Þriðjudagur 3. september: 09:00 09:10-10:55 11:00-12:05 12:05-13:05 13:05-13:45 13:50-14:30 15:00-17:00 Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra, setur ráðstefnuna. Dýrasvif og uppsjávarfiskar. Botndýr og fæða botnfiska. Matarhlé. Botndýr og fæða botnfiska (framh.). Veggspjaldakynning: Fæða fiska Fæðuþættir og atferli þorks. Miðvikudagur 4. september: 09:00-10:20 10:25-12:05 12:05-13:05 13:05-14:45 15:15-17:00 Fæðuvistfræði sjófugla. Fæðunám sjávarspendýra. Matarhlé. Fjölstofnalíkan byggt á útbreiðslu, göngum, vexti og áti fiska. Samantekt, almennar umræður og ráðstefnulok Að ráðstefnu lokinni verða veitingar í boði s j ávarútvegsráðherra.

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.